Fréttablaðið - 06.02.2008, Blaðsíða 12
6. FEBRÚAR 2008 MIÐVIKUDAGUR4 ● fréttablaðið ● verktakar
Verkstjórinn Magnús Hjálmars-
son hjá Borgarvirki er einn
fárra sem getur státað af titlin-
um sprengjustjóri.
„Sprengjustjóraréttindin fást í
gegnum námskeið hjá Vinnueft-
irlitinu. Þar eru meðal annars
fyrirlestrar og dæmatímar en
í lok námskeiðs þreyta þátttak-
endur próf og fá sprengjustjóra-
réttindi ef þeir standast próf-
ið,“ segir Magnús Hjálmarsson,
verk- og sprengistjóri hjá jarð-
vinnuverktakafyrirtækinu Borg-
arvirki.
Hann er jafnframt með svo-
kölluð ADR-réttindi til flutnings
á sprengiefnum. Magnús segir
fáa á Íslandi með þessi réttindi og
enn færri sem starfa við spreng-
ingar að jafnaði.
„Við sérhæfum okkur í spreng-
ingum og höfum starfað sem
jarðvinnuverktakar með sama
eiganda og kennitölu í tuttugu og
fimm ár,“ segir Magnús sem nú
vinnur að verkefni við Helgafell
í Mosfellsbæ og var nýkominn úr
síðustu sprengingu þegar blaða-
maður náði tali af honum. „Við
sprengjum mikið fyrir vegagerð,
húsgrunna, skurði, gatnagerð en
það er minna um gömul hús og
mannvirki. Þó höfum við verið að
sprengja brýr á hálendinu fyrir
Vegagerðina,“ segir Magnús sem
tekur fram að fyllsta öryggis sé
alltaf gætt við sprengingar. „Við
höfum aldrei lent í neinum háska
enda vel gætt að réttri hleðslu og
öllu öryggi. Sérstaklega í þéttbýli
þar sem einnig þarf að gæta að
titringi og raski fyrir nágranna,“
útskýrir Magnús sem segir einnig
að leyfi þurfi fyrir sprengingum
auk þess sem halda þarf birgða-
bókhald dag hvern sem sprengt
er. Borgarvirki starfar bæði sem
verktakar og undirverktakar og
að sögn Magnúsar eru starfs-
menn átján og vélar af ýmsum
gerðum. Bæði gröfur, ýtur og
vörubílar. Magnús segir spreng-
ingar geta oft sparað tíma og pen-
ing í framkvæmdum, meðal ann-
ars þar sem eru miklar klappir.
Þá getur verið gott að hafa álfana
á sínu bandi sem Magnús segir
hafa verið honum hliðhollir alla
tíð. „Ég hef aldrei orðið var við
nein mótmæli af hálfu álfanna.
Samt hefur maður nú heyrt ýmsar
skrítnar sögur þar sem frægasta
dæmið er kannski álfhóllinn við
Digranesskóla. Þar var sveigt
framhjá og ástæðan sögð vera
meðal annnars brotnar tennur og
bilaðar vélar. Við reynum bara að
vinna okkar verk í sátt við alla,
bæði mannfólk, náttúru og álfa,“
segir Magnús brosandi.
rh@frettabladid.is
Sprengir í sátt
við álfa og menn
Sprengjustjórinn Magnús Hjálmarsson hjá Borgarvirki segir öryggið ætíð vera í
fyrirrúmi. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Borgarstjóri Reykjavíkur, Ólafur
F. Magnússon, tók fyrstu skóflu-
stunguna að nýjum skóla í Norð-
lingaholti í vikunni. Þar verða
undir einu þaki leik- og grunnskóli,
tónlistarskóli og fullorðinsfræðsla.
Heildarkostnaður við bygging-
una er áætlaður um tveir milljarð-
ar króna en vonast er til að skól-
inn verði tekinn í notkun í ársbyrj-
un 2010. Í mars á síðasta ári var
haldin lokuð samkeppni um hönn-
un Norðlingaskóla en það var arki-
tektastofan Hornsteinar sem bar
sigur úr býtum. Tillaga Hornsteina
byggist á hugmynd um skólaþorp,
það er skólastofur og önnur skóla-
rými sem hvelfast um eitt sameig-
inlegt miðrými eða torg en í heild
verður húsnæðið 6.700 fermetrar.
Nýr skóli í Norðlingaholti
Ólafur F. Magnússon borgarstjóri tók
skóflustungu að Norðlingaskóla ásamt
skólabörnum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
● TÍMAMÓT Í SÖGU
SKIPU LAGSSTOFNUNAR
Árið 2008 markar tímamót í sögu
Skipulagsstofnunar af ýmsu til-
efni. Fyrir 70 árum var skipulags-
lögum breytt þannig að skipu-
lagsnefnd var veitt heimild til að
ráða húsameistara og ráðunaut í
heilbrigðismálum sér til aðstoð-
ar. Ráðning Harðar Bjarnasonar
arkitekts til skipulagsnefndar-
innar árið 1938 markar upphaf
þeirrar stofnunar sem síðar varð
embætti skipulagsstjóra ríkisins
og Skipulagsstofnun árið 1998.
Þannig eru á árinu 2008 70 ár frá
því komið var á fót forvera Skipu-
lagsstofnunar. Á því ári verða
einnig tíu ár frá gildistöku skipu-
lags- og byggingarlaganna og
15 ár frá því fyrstu lög um mat á
umhverfisáhrifum voru sett hér
á landi.
Á þessum tímamótum mun
Skipulagsstofnun vekja athygli á
nokkrum viðfangsefnum stofn-
unarinnar og stuðla þannig að
aukinni umræðu.
Nánar á www.skipulag.is
Þessi teikning gefur hugmynd um hvernig skipulag skólans kemur til með að vera.
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
N1 VERSLANIR WWW.N1.IS
N1 býður úrval af legum og tengdum vörum
fyrir iðnað, bifreiðar og sjávarútveg. Hafðu
samband við fagmenn okkar í síma 440 1233.
LEGUR
Legur · Leguhús · Reimar · Tannhjól · Reimskífur
Pakkdósir · Sérverkfæri · Legufeiti