Fréttablaðið - 06.02.2008, Blaðsíða 17
H A U S
MARKAÐURINN 9MIÐVIKUDAGUR 6. FEBRÚAR 2008
Ú T T E K T
hans. Í fyrsta lagi hafi starfsmönnum bank-
ans fjölgað mjög á síðasta ári. Launakostnað-
ur jókst þannig um 77 prósent milli ára, var
27,9 milljarðar króna í fyrra. Sé tekið tillit
til kostnaðar af þessum þáttum sem einvörð-
ungu falla til einu sinni, svokallaðs einskipt-
iskostnaðar, segja þeir Lárus og Alexander
aukninguna mun minni milli ára, en á árinu
var skipt um forstjóra bankans þegar Bjarni
Ármannsson lét af störfum og Lárus tók við.
Þá segja þeir að yfir standi skipulagsbreyt-
ingar sem stuðla eiga að aukinni hagkvæmni
í rekstri og aðhaldi í kostnaði.
Eins segja forsvarsmenn Glitnis aðstæð-
ur á fjármálamörkuðum hafa átt sinn þátt í
að rýra afkomu bankans, enda fjármögnun-
arkostnaður vegna skuldatryggingaálags ná-
lægt hæstu hæðum. Bankinn er hins vegar
sagður vel varinn gegn skakkaföllum með
lausafé upp á sex milljarða evra, eða sem
jafngildir um 576 milljörðum króna. Að auki
hefur Glitnir tekið sjötíu milljarða gjaldeyr-
isstöðu til að verja sig gegn lækkun á gengi
krónunnar. Lárus segir tekjupósta bankans
dreifða og skapi það Glitni ákveðið öryggi.
Straumur fjárfestingarbanki skilaði svo
hagnaði upp á tæpa 14,9 milljarða króna á
árinu 2007 (miðað
við gengi evrunnar
um áramót), eða 162,9
milljónum evra. Hagnaðurinn
er umtalsvert minni en árið áður þegar
hann var vel yfir 500 milljónum evra. Arð-
semi eigin fjár bankans var 11,3 prósent á
árinu.
„Ég tel að árið 2007 hafi verið mjög gott
hjá Straumi,“ segir engu síður William Fall,
forstjóri bankans, en hann kynnti uppgjörið
sama dag og Glitnir kynnti sitt.
William Fall bendir á að fjölbreytni í tekj-
um bankans hafi aukist mikið milli ára auk
þess sem umsvif bankans hafi aukist. Þókn-
unartekjur hækkuðu til dæmis um meira en
50 prósent og vaxtatekjur um 60 prósent, þótt
gengishagnaður hafi dregist saman. „Þriðji
fjórðungur ársins var erfiður og við höfum
orðið fyrir áhrifum af erfiðum aðstæðum á
alþjóðlegum fjármálamörkuðum. Hins vegar
erum við alls ekki í sömu slæmu stöðu og
margir aðrir,“ segir Fall og bendir á að
Straumur eigi til að mynda enga hagsmuni í
undirmálslánum eða skuldabréfavafningum.
Hann telur hins vegar að þetta ár geti orðið
erfitt. „Ég tel að enn eigi eftir að koma vond
tíðindi af fjármálamörkuðum,“ segir hann en
bætir um leið við að erfitt sé að spá fyrir um
hvaða áhrif slík tíðindi kunni að hafa hér. Í
kynningu sinni á uppgjörinu sagði William
Fall einnig að fjármálaóróleikinn hefði minni
áhrif eftir því sem austar drægi í Evrópu og
að Straumur horfði til Finnlands
og Tékklands. „En það stendur
ekki til að við förum til Rúss-
lands eða Úkraínu. Það eru
næg tækifæri fyrirliggjandi
á þeim mörkuðum sem við
störfum á nú þegar.“
KAUPÞING HÆGIR
FERÐINA
Hjá Kaupþingi horfa
stjórnendur til þess
að efla innri vöxt
bankans og taka á
kostnaðarliðum í
rekstri hans. Hagn-
aður bankans árið
2007 nam 70.020
milljónum króna,
heldur yfir sam-
anlögðum hagn-
aði Glitnis og
Landsbank-
ans, líkt og áður
segir. Afkoman
er hins vegar
tæpum 18 pró-
sentum verri en
árið áður þegar
hagnaður bank-
ans nam 85,3
milljörðum.
Hreiðar Már
Sigurðsson, for-
stjóri Kaupþings,
er engu síður
ánægður með upp-
gjörið, þrátt fyrir að
viðsnúningur á fjár-
málamörkuðum hafi
sett á það mark sitt.
Hann segir 23,5 prósenta
arðsemi eigin fjár á árinu
vel viðunandi. Hann segir
vaxtatekjur bankans aldrei
hafa verið hærri áður en á
fjórða ársfjórðungi 2007.
Í kynningu á uppgjörinu í höf-
uðstöðvum Kaupþings við Borgar-
tún sem fram fór síðasta fimmtudag
kom fram að Hreiðar Már telji sér-
stakt fagnaðarefni að innlán sem hlut-
fall af heildarútlánum til viðskiptavina
hafi aukist verulega á árinu. Innlán fóru
úr 29,6 prósentum í byrjun árs 2007 í 41,8
prósent við lok árs. Hann segir að hald-
ið verði áfram að auka hlutfall innlána
í fjármögnun bankans, svo sem með efl-
ingu og frekara landnámi innlánastarf-
semi sem rekin er á netinu undir merkjum
Kaupthing Edge.
Hreiðar segir að í ljósi erfiðra aðstæðna
á fjármálamörkuðum verði áhersla bank-
ans fremur á innri vöxt en stækkun. Engu
síður hafi bankinn augun opin gagnvart tæki-
færum sem upp kunni að koma. Hann segir
lausafjárstöðu bankans góða. Daginn áður en
uppgjör bankans var kynnt var upplýst um
að Kaupþing félli frá yfirtöku á hollenska
bankanum NIBC og um leið var blásið af
fyrirhugað hlutafjárútboð sem nota átti til
að fjármagna þau kaup að hluta. Um var að
ræða sameiginlega niðurstöðu J.C. Flowers,
seljanda NIBC og Kaupþings, en hollensku
eigendurnir hefðu um leið eignast stóran hlut
í Kaupþingi. Var staðan metin svo að í stað
þess að sameiningin gerði bankanum auð-
veldara að fjármagna sig á erlendum mörk-
uðum, væru horfur á að það gagnstæða gerð-
ist. Hreiðar segir þessa niðurstöðu vissulega
nokkur vonbrigði fyrir stjórnendur bankans
en um leið styrki hún lausafjárstöðu Kaup-
þings, sem í kjölfarið verði að teljast mjög
góð. Bankinn á laust fé til að greiða útistand-
andi lán í 440 daga án þess að afla fjár á
mörkuðum. Þá segir Hreiðar ýmsar leiðir í
fjármögnun bankans til skoðunar, án þess þó
að fara nánar út í hverjar þær kunni að vera.
Í viðtali við Markaðinn staðfesti hann einn-
ig að í gangi væru viðræður við fjárfesta í
Katar um aðkomu þeirra að bankanum, en
þar lægi ekki fyrir niðurstaða enn.
❶
❷
❸ ❹
SPÁIR ERFIÐU ÁRI
William Fall, forstjóri
Straums, telur að árið 2008
kunni að verða erfitt og
telur að ekki séu að fullu komnar
fram slæmar fréttir úr fjármála-
heiminum. Erfiðara sé um að spá
hver áhrif slíkra frétta verði hér.
MARKAÐURINN/GVA
FYRSTA ÁRSUPPGJÖRIÐ
KYNNT Lárus Welding, nýr
forstjóri Glitnis, kynnti sitt
fyrsta ársuppgjör á Hilton
hótel Nordica á þriðjudaginn í
síðustu viku.
MARKAÐURINN/VILHELM
HREIÐAR MÁR
SIGURÐSSON Kaupþing
er langstærsti banki lands-
ins. Hreiðar Már Sigurðsson,
forstjóri bankans, fór yfir horfur í
rekstri hans og lykiltölur síðasta
árs í höfuðstöðvum bankans í lok
síðustu viku. MARKAÐURINN/PJETUR
Á KYNNINGU
LANDSBANKANS
Sigurjón Þ. Árnason,
bankastjóri Landsbankans,
fer yfir lykiltölur í rekstri bankans.
Unnið er að eflingu og frekari
landvinningum IceSave innláns-
forms bankans. MARKAÐURINN/ANTON