Fréttablaðið - 09.02.2008, Blaðsíða 91
LAUGARDAGUR 9. febrúar 2008 59
FÓTBOLTI Sir Alex Ferguson, stjóri
Man. Utd, var ekki par sáttur við
enska knattspyrnusambandið eftir
að áform liða í ensku úrvalsdeild-
inni um að spila leiki á erlendri
grundu láku út í fjölmiðla.
„Enska knattspyrnusambandið
hefði átt að eyða tíma í að tala við
stjórana og leikmenn til hlítar
áður en það lét nokkuð frá sér,“
sagði Ferguson en öll 20 liðin í
úrvalsdeildinni höfðu samþykktu
möguleikann að bæta við einni
umferð í deildarkeppninni sem
yrði þá spiluð erlendis. Var talað
um að byrja leiktíðina 2010-11.
„Þeir geta aldrei nokkurn tíma
haldið kjafti þarna í sambandinu.
Það sem fer virkilega í taugarnar
á mér er að David Gill, yfirmaður
knattspyrnumála hjá United, sagði
þeim að hafa hljótt um málið þar
sem það væri enn á viðræðustigi
en svo er það bara í öllum fjöl-
miðlum. Þessi mál hefði átt að
ræða innbyrðis áður en þau fóru í
fjölmiðla. Annars hef ég ekki
meira um málið að segja.“
Viðbrögð stjóra í enska boltan-
um við þessum hugmyndum hafa
annars verið blendin en flestir
stjórar virðast þó vera hrifnir af
hugmyndinni.
Þeirra á meðal eru þeir Roy
Keane, Kevin Keegan og Arsene
Wenger. - hbg
Sir Alex Ferguson ekki sáttur við enska sambandið:
Geta ekki haldið kjafti
ÓSÁTTUR Sir Alex Ferguson skilur ekki þann endalausa leka sem er í herbúðum
enska knattspyrnusambandsins. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
FÓTBOLTI Ungstirnið Micah
Richards hefur bundið enda á
sögusagnir þess efnis að hann sé
á förum frá City með því að
skrifa undir nýjan fimm og hálfs
árs samning við félagið.
Þessi 19 ára gutti
hefur slegið ræki-
lega í gegn hjá City
og var meðal
annars orðaður
við Chelsea.
Hann getur
leikið bæði í
stöðu mið-
varðar sem
og bakvarðar.
Richards
hefur þegar
leikið ellefu
landsleiki og
skorað í þeim eitt
mark. - hbg
Micah Richards:
Framlengir við
Man. City
NFL Stuðningsmenn Super Bowl-
meistara New York Giants
glöddust mjög í gær þegar
varnarþjálfarinn Steve Spagnuolo
skrifaði undir nýjan þriggja ára
samning sem er metinn á 6
milljónir dollara.
Spagnuolo gjörbreytti varnar-
leik Giants á sínu fyrsta ári sem
varnarþjálfari liðsins. Hann fékk
gríðarlegt klapp á bakið fyrir það
hvernig vörn Giants tók líklega
bestu sókn NFL frá upphafi og
pakkaði henni saman í Super
Bowl.
Margir vildu meina að Spagnu-
olo hefði átt að vera maður
leiksins en ekki Eli Manning.
- hbg
Meistarar NY Giants:
Halda varnar-
þjálfaranum
STEVE SPAGNUOLO Sést hér með Tom
Coughlin aðalþjálfara.
NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
NFL Lögreglan í Phoenix hefur
handtekið mann sem hugleiddi að
skjóta fólk á Super Bowl-leiknum
í Arizona á dögunum.
Maðurinn hafði fengið höfnun á
vínveitingaleyfi á barnum sínum
og var langt frá því að vera
sáttur. Hann sendi fjölmiðlum
átta síðna bréf þar sem hann
hellti úr skálum reiði sinnar og
útskýrði af hverju saklaust fólk
fengi að borga fyrir skilnings-
leysi yfirvalda.
Í fyrstu ætlaði maðurinn að
skjóta fólk í verslunarmiðstöð en
hann hætti við þá áætlun og fór
þess í stað að leikvellinum þar
sem Super Bowl fór fram.
Hann kom sér þægilega fyrir
með riffil og 200 skot. Sat og
hugleiddi málið í eina mínútu
áður en hann hætti við og keyrði
heim þar sem hann brotnaði
saman í fangi unnustu sinnar. - hbg
Svekktur bareigandi:
Ætlaði að
skjóta fólk á
Super Bowl
Á MORGUN KL. 13:10
MAN. UTD. – MAN. CITY
Á MORGUN KL. 15:50
CHELSEA – LIVERPOOL
RISASUNNUDAGUR!
TRYGGÐU ÞÉR ÁSKRIFT Í TÍMA!
Í DAG
KL. 12:35 Aston Villa - Newcastle SÝN 2
KL. 14:45 Everton - Reading SÝN 2
KL. 14:55 West Ham - Birmingham EXTRA
KL. 14:45 Derby - Tottenham EXTRA 2
KL. 14:55 Bolton - Portsmouth EXTRA 3
KL. 14:55 Sunderland - Wigan EXTRA 4
KL. 18:00 4-4-2 SÝN 2