Fréttablaðið - 10.02.2008, Blaðsíða 67
ATVINNA
SUNNUDAGUR 10. febrúar 2008 2719
í o k k a r l i ð i ?
Actavis hf. Reykjavíkurvegi 76-78 220 Hafnarfirði s 550 3300 f 550 3301 @ actavis@actavis.is w www.actavis.is
Actavis er alþjóðlegt fyrirtæki sem sérhæfir sig í þróun, framleiðslu og sölu hágæðasamheitalyfja. Hjá Actavis starfa um 11 þúsund einstaklingar í 40 löndum,
sem eru reiðubúnir að taka áskorunum með það að markmiði að koma Actavis í fremstu röð samheitalyfjafyrirtækja.
Actavis leitar að metnaðarfullum einstaklingum til starfa sem eru tilbúnir að takast á við krefjandi verkefni.
Actavis leitast við að ráða starfsfólk sem:
• sýnir metnað í hverju því sem það innir af hendi
• sýnir viðskiptavinum fyrsta flokks þjónustulund
• leggur áherslu á samvinnu, því í sameiningu komumst við lengra en við getum ein
• ber virðingu fyrir auðlindum sínum og sýnir hagkvæmni í daglegum störfum
• hefur nægan sveigjanleika til að geta gripið tækifærin sem því gefast
• sýnir framsækni og lætur hlutina gerast
Elísabet S. Arndal ráðgjafi hjá Hagvangi elisabetsa@hagvangur.is, veitir nánari
upplýsingar um störfin í síma 520-4700. Umsóknir óskast fylltar út á
heimasíðu Hagvangs, www.hagvangur.is fyrir 18. feb. n.k.
Sérfræðingur í umbótastjórnun
Starfið felur í sér verkefnastjórnun ýmissa umbótaverkefna sem tengjast framleiðsluferlum, gagnagrunnum og
fjármálum fyrirtækisins. Starfinu fylgja mikil samskipti og samstarf við aðrar deildir fyrirtækisins. Lögð er áhersla á
raunhæft val verkefna og skipulagða úrlausn þeirra. Fyrirtækið leggur mikla áherslu á stöðugar umbætur til að auka
samkeppnishæfni sína og bæta þjónustuna við viðskiptavini.
Við leitum að einstaklingi með verkfræðimenntun og góða tölvukunnáttu. Æskilegt er að viðkomandi hafi þekkingu á
gagnagrunnum og notkun þeirra. Viðkomandi þarf að vera góður í mannlegum samskiptum og eiga gott með að
vinna með öðrum. Nauðsynlegt er að hafa þekkingu á verkefnastjórnun og geta komið vel frá sér efni, bæði á íslensku
og ensku.
Þjónustuborð upplýsinga- og tæknideildar
Upplýsinga- og tæknideild Actavis hf. sér um þróun tölvu – og upplýsingatæknimála Actavis á Íslandi, ber ábyrgð á
rekstri tölvukerfa og tölvubúnaðar Actavis á Íslandi, sér um notendaþjónustu og tölvukennslu, aðgangsstjórnun og
umsjón með afhendingu tölvubúnaðar og fjarskiptabúnaðar til starfsmanna o.fl.
Við leitum eftir einstaklingi með reynslu af hugbúnaðarþjónustu, kerfisfræðimenntun og þekking á Concord er kostur.
Viðkomandi þarf að búa yfir ríkri þjónustulund, enskukunnátta er kostur.
Starf í tæknideild
Tæknideild sér um viðhald, viðgerðir og uppsetningu á öllum tækjabúnaði við lyfjaframleiðslu Actavis á Íslandi, auk
þess að sjá um gildingar og kvarðanir á ýmsum búnaði í samvinnu við aðrar deildir. Vinnan fer fram eftir skriflegum
leiðbeiningum og öll viðhaldsvinna er skráð í viðhaldsforrit. Um er að ræða vaktavinnu þar sem unnið er á tvískiptum
vöktum.
Við leitum að einstaklingi með vélfræðimenntun eða sambærilega menntun, sem er nákvæmur og þjónustulundaður.
Actavis veitir starfsmönnum sínum árlega styrki til íþróttaiðkunar auk
fræðslustyrks. Við höfum gott mötuneyti og öflugt starfsmannafélag
auk þess sem World Class opnaði nýlega líkamsræktarstöð í
húsakynnum Actavis að Dalshrauni 1.
Náttúrufræðistofnun Íslands óskar eftir að ráða
safnstjóra bóka- og skjalasafns
Starfssvið:
Yfi rumsjón með bóka- og skjalasafni Náttúrufræði-
stofnunar Íslands.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Bókasafns- og upplýsingafræðimenntun er skilyrði,
BA próf að lágmarki.
• Þekking á og reynsla af notkun GoPro skjalavistun
arkerfi s nauðsynleg.
• Æskilegt er að viðkomandi hafi skráningarheimild í
Gegni.
• Frumkvæði og sjálfstæði í starfi .
• Mjög góð íslenskukunnátta, auk góðs valds á ensku.
Bóka- og skjalasafn heyrir undir upplýsingadeild
Náttúrufræðistofnunar. Bókasafnið er eitt stærsta
sérfræðibókasafn landsins á sviði náttúrufræða og verið
er að skrá ritakost í Gegni, landskerfi íslenskra bóka-
safna. Skjalavistun fer fram í rafræna skjalastjórnun-
arkerfi nu GoPro og snýst starfi ð um utanumhald og
eftirfylgni rafrænnar skjalavistunar, auk þess að sinna
varðveislu eldri skjala.
Við ráðningar í störf við Náttúrufræðistofnun Íslands er
tekið mið af jafnréttisstefnu stofnunarinnar og eru konur
jafnt sem karlar hvött til að sækja um auglýst starf. Um
fullt starf er að ræða og leitað er að starfsmanni sem á
auðvelt með mannleg samskipti. Laun eru samkvæmt
kjarasamningi ríkisins og viðeigandi stéttarfélags. Skri-
fl egum umsóknum skal skila til Náttúrufræðistofnunar
Íslands, Hlemmi 3, 105 Reykjavík, eða á netfangið
ni@ni.is, í síðasta lagi 17. febrúar 2008.
Viðkomandi þarf að geta hafi ð störf sem allra fyrst.
Upplýsingar gefur Birta Bjargardóttir, forstöðumaður
upplýsingadeildar í síma 590 0500 eða í
netfangi ni@ni.is.
Starfsfólk í miðasölu ber ábyrgð á að veita viðskiptavinum góða þjónustu í sölu og ráðgjöf á miðum á
viðburði og þarf að tileinka sér nauðsynlega vöruþekkingu til þess. Vinnutími er breytilegur föstudaga frá kl. 18:00,
laugardaga frá kl. 12:00 og suma sunnudaga.
Sölu- og markaðsfulltrúar bera ábyrgð á að veita viðskiptavinum góða þjónustu í sölu og ráðgjöf. Vinnutími er virka
daga frá kl. 9 til17. Laun eru árangurstengd að hluta og því möguleiki að byggja upp góðar tekjur.
Æskileg reynsla, kostir og eiginleikar umsækenda í starf sölu- og markaðsfulltrúa
- Frumkvæði og árangursdrifni
- Vilji til að vinna í hóp
- Metnaður og vandvirkni
Umsóknir og ferilskrá umsækjenda sendist á tölvupóstfangið gudmundur@broadway.is
- Reynsla í sölumennsku
- Reynsla í notkun á tölvum
- Reynsla í samskiptum
Ármúla 9, 108 Reykjavík Sími: 533-1100 - www.teiti.isTeiti, veisluþjónusta Broadway
- Skipuleg vinnubrögð
- Seigla og keppnislund
- Traust og heiðarleiki
Teiti veisluþjónusta
óskar eftir starfsfólki
Sölu- og markaðsfulltrúa í fullt starf (möguleiki á góðum launum)
- Jákvæðni og glaðlyndi
- Hæfni í samskiptum
- Fagleg framkoma
Helgarstarfsfólk í miðasölu (tilvalið fyrir skólafólk)
Teiti, veisluþjónusta Broadway hefur í 20 ár verið eitt framsæknasta fyrirtæki landsins í veislu- funda- og ráðstefnu-
haldi fyrir fyrirtæki, einstaklinga, félagasamtök og stofnanir. Boðið er upp á þjónustu við árshátíðir, brúðkaup,
fermingar, erfidrykkjur, afmæli, fundi, kynningar, ráðstefnum og aðra viðburði í 14 veislu- og fundasölum.
Treystu fagfólki
fyrir þínu teiti
Veisluþjónusta
Broadway