Fréttablaðið - 13.02.2008, Qupperneq 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 512 500013. febrúar 2008 — 43. tölublað — 8. árgangur
HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA GRÆJUR ATVINNA TILBOÐ VINNUVÉLAR O.FL.
Af heimsborgum veraldar er París í mestu
dálæti hjá Ólafi Sveinssyni, framkvæmdastjóra
A4, en þangað fer hann gagngert til að anda
borginni að sér.
„Sjarmi Parísar er svo notalegur og þangað finnst
mér best að fara til þess eins að upplifa borgina og
anda henni að mér,“ segir Ólafur Sveinsson, fram-
kvæmdastjóri A4, sem komið hefur til frönsku höfuð-
borgarinnar yfir tíu sinnum á fáeinum árum.
„París er „in“-borgin núna, enda orðið miklu ódýrara
að komast þangað nú en fyrir nokkrum árum,“ segir
Ólafur sem er vel kunnugur lystisemdum Parísar.
„Í París þarf maður ekki að hafa neitt é
stafni Andrú l
„Í Latínuhverfinu finnst mér ég upplifa hina einu
sönnu Parísarstemningu; í kringum Notre Dame-
kirkjuna og hinum megin Signu. Víst getur maður
farið á Louvre-listasafnið í hvert einasta sinn og allt-
af séð eitthvað nýtt, en stærsti gallinn við París er
þungur ferðamannastraumur þar sem allir ætla að
komast yfir að skoða það sama á sem skemmstum
tíma. Því þarf maður að passa sig á að vera snemma
dags á ferli til að losna við minnst tveggja tíma bið-
raðir við helstu aðdráttaröfl borgarinnar, og þótt
sumrin séu verst í þessu samhengi getur verið vanda-
mál að komast að mörgum helstu skoðunarstöð
árið um kring. Menn þu f þhv ð þ
Innöndun í París
Ólafur Sveinsson, framkvæmdastjóri A4-skrifstofuvöruverslananna, er einna kunnugastur París af þeim fjölmörgu stöðum sem
hann heimsækir í leik og starfi á ári hverju.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
HREIN DEKK FÆKKA SLYSUM
Dekk sem ekki eru reglu-lega hreinsuð geta orðið hál þar sem tjara leggst í raufarnar og stíflar.
BÍLAR 2
HÍBÝLIN HRISTASTHæstu hús á Íslandi sveiflast ekki nema um fáeina senti-metra enda yfirleitt steypt og stíf.
HEIMILI 3
VEÐRIÐ Í DAG
MIÐVIKUDAGUR
verktakar Úr dúkum í tónlistSigríður Beinteinsdóttir tónlistarkona stundaði dúk-lagningar í eina tíð. BLS. 2
MIÐVIKUDAGUR 13. FEBRÚAR 2008
Heildarlausnir í lyfturum fyrir skvinnsluna
Nútímaleg hönnun • Gott aðgengi ökumanns • Hljóðlátur • Hemlar í olíubaði • Gott þjónustuaðgengi
íslenskur iðnaðurMIÐVIKUDAGUR 13. FEBRÚAR 2008ÓLAFUR SVEINSSON
Andar París
að sér
Ferðir bílar Heimili
Í MIÐJU BLAÐSINS
ÍSLENSKUR IÐNAÐUR
Mikil verðmæti
felast í úrgangi
Sérblað um íslenskan iðnað
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG
VERKTAKAR
Sigga Beinteins skipti úr
dúklagningum í tónlistina
Sérblað um verktaka og byggingar
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG
OPIÐ LAUGARDAG KL:11-16
Bleikja fyrir
Keiru
Keira Knightley fær
hlýjar móttökur á La
Primavera, leggi hún leið
sína þangað á Valentín-
usardaginn.
FÓLK 22
Mjólkað á ný
Mjólkurframleiðsla er nú hafin
á ný í Stærra-Árskógi, en
fjósið á bænum brann
ásamt stórum hluta
bústofnsins fyrir
þremur mánuðum.
TÍMAMÓT 18
VIÐSKIPTI „Eftirspurnin er gríðar-
leg. Við hefðum getað selt yfir
100 þúsund dekk í fyrra, en kom-
umst bara til að framleiða 20
þúsund,“ segir Þorlákur Björns-
son, einn eigenda Green Dia-
mond Tire í New York.
Harðkornadekk samkvæmt
íslenskri uppskrift eru framleidd
í verksmiðjunni, sem bæði er í
eigu Íslendinga og stýrt af
Íslendingum. Nafn verksmiðj-
unnar vísar til þess að harð-
kornadekkin séu umhverfisvæn
auk þess sem kornunum í dekkj-
unum er líkt við demanta.
„Við vonumst til þess að geta
farið að framleiða 460 þúsund
dekk þegar á næsta ári,“ segir
Þorlákur. „Við væntum þess að
opna fimm verksmiðjur víða um
Bandaríkin og fimmfalda starfs-
mannafjöldann á næstu árum.“
Íslendingar hafa tekið þátt í
rekstri Green Diamond í eitt og
hálft ár. „Við höfum fjárfest tölu-
vert í uppbyggingu. Þetta er vel
á annað hundrað milljóna króna,“
segir Þorlákur. Fjórir Íslending-
ar eiga í Green Diamond og einn
Bandaríkjamaður. Þá kom Saga
Capital nýlega inn í myndina sem
fagfjárfestir.
Harðkornadekkin eru að mestu
búin til með endurvinnslu á göml-
um hjólbörðum. „Við seljum
venjuleg dekk handa venjuleg-
um fjölskyldum á venjulegu
verði. Svo er þetta umhverfis-
vænt.“
Fyrirtækið Nýiðn hefur einka-
leyfi á aðferðinni sem notuð er
hjá Green Diamond. Nýiðn hefur
þróað dekkin frá árinu 1994.
- ikh / sjá Markaðinn
Geta ekki mætt eftirspurn eftir harðkornadekkjum í Bandaríkjunum:
Íslensk dekk á Manhattan
SKIPULAGSMÁL Tónlistarmenn hafa
brugðist reiðir við hugmyndum
um að Nasa-salurinn verði rifinn
vegna uppbyggingar við Ingólfs-
torg. Gera tillögur ráð fyrir því
að þar sem skemmtistaðurinn er
nú rísi hótel. Kári Sturluson hefur
farið fyrir tónlistarmönnum og
telur að þarna sé vegið harkalega
að tekjugrunni sínum, atvinnu og
þá í leiðinni farsæld fjölskyldu
sinnar.
Hanna Birna Kristjánsdóttir,
forseti borgarstjórnar, leggur á
það ríka áherslu að ekki hafi
verið tekin nein ákvörðun, en
tillagan verður tekin fyrir á fundi
skipulagsráðs í dag en þar er
Hanna Birna formaður.
- jbg / sjá síðu 24
Tónlistarmenn æfir:
Slá skjaldborg
um Nasa
HLÝNANDI - Í dag verður austan
eða suðaustan átt, hvöss allra
syðst annars hægari. Rigning á
suðurhluta landsins þegar líður á
daginn en þurrt nyrðra. Hlýn-
andi veður og hiti víðast 2-8 stig
síðdegis.
VEÐUR 4
SKIPULAGSMÁL Tillögur um breyt-
ingar á gatnakerfi við nýtt tónlist-
arhús eru á lokastigi og verða lík-
lega kynntar fyrir borgarstjórn á
næstunni. Að sögn Gísla Marteins
Baldurssonar borgarfulltrúa verð-
ur líklegast lagt til að Geirsgata,
sem liggur meðfram húsinu, verði
lögð í stokk.
Kostnaður við slíka framkvæmd,
ef af verður, yrði á bilinu 2,5 til 3
milljarðar. Þeim kostnaði yrði
skipt á milli ríkisins og Reykjavík-
urborgar, sem saman eiga fyrir-
tækið Austurhöfn, og Portus hf.,
sem sér um byggingu og rekstur
hússins. „Inni í verkefninu voru þó
peningar fyrir annars konar gatna-
lagningu, brú og götu, svo þetta er
ekki allt viðbótarkostnaður,“ segir
Helgi S. Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri Portus. „Það væru
þá allir að taka á sig aukinn kostn-
að til þess að skapa meiri gæði,“
segir Gísli Marteinn.
Fyrirliggjandi skipulag svæðis-
ins gerir ráð fyrir að Geirsgata sé
á yfirborði og fari svo á brú yfir
göngugötu, sem eigi að tengja
hafnarsvæðið við miðborgina.
Gísli Marteinn segir þó að þeir
sem að verkinu komi séu ekki
hrifnir af því skipulagi. Með því að
setja götuna í stokk myndi umferð
á yfirborðinu vera lítil og hæg, svo
gangandi og hjólandi umferð væri
í forgangi.
„Markmiðið er að tengja mið-
borgina við tónlistarhúsið svo hún
stækki í raun bara til norðurs og
þetta verði hluti af miðborginni,“
segir Gísli Marteinn. - þeb / sjá síðu 4
Milljarðar í gatna-
gerð við Geirsgötu
Á næstu vikum verða lagðar fram tillögur að breytingum á umferðarskipulagi
við nýja tónlistarhúsið. Lagt verður til að Geirsgata verði lögð í stokk. Kostnað-
urinn, allt að þrír milljarðar, mun skiptast milli ríkis, borgar og Portus hf.
MANHATTAN Íslensku harðkornadekkin
hafa slegið í gegn vestanhafs. Til stendur
að opna fimm verksmiðjur i Bandaríkj-
unum þar sem dekkin verða framleidd
eftir íslenskri uppskrift.
DANSAÐ Á NASA Tónlistarmenn eru
ósáttir við að hótel rísi þar sem Nasa
stendur við Austurvöll.
ATVINNA Um 750 manns hafa sótt
um starf sem flugliðar hjá Iceland
Express sem auglýsti átján stöður
fyrir sumarvertíðina.
„Það hefur alltaf verið nokkur
ásókn í þessi störf hjá okkur en ég
man ekki eftir öðru eins,“ segir
Matthías Imsland, framkvæmda-
stjóri fyrirtækisins.
„Ég held að skýringuna megi
bæði finna í því að það er jafnvel
aðeins minna framboð af vinnu en
oft áður og svo því að fyrirtækið
hefur áunnið sér afskaplega
sterka og góða ímynd svo fólk
sækist eftir því að vinna hjá
okkur. Nú og svo virðist það alveg
greinilegt að gamli sjarminn yfir
flugfreyjustarfinu lifi góðu lífi.“
- jse
Metaðsókn í starf flugliða:
Flugfreyjustarf-
ið heillar enn
BJÖRK Í INDÓNESÍU Söngkonan Björk Guðmundsdóttir hélt tónleika í Jakarta í Indónesíu í gærkvöldi. Tónleikarnir fóru fram í
tennishöll borgarinnar. Björk heldur tónleika í Kóreu, Japan og Kína síðar í þessum mánuði. NORDICPHOTOS/AFP
Haffa sárt saknað
Eurovision-aðdáendur gráta brott-
hvarf Haffa Haff úr keppninni.
FÓLK 25
Beðið eftir Degi
Dagur Sigurðsson mun væntanlega
svara HSÍ í dag hvort hann sé til í
að klára viðræður um
starf landsliðsþjálfara
en hann er með
drög að samningi
í höndunum.
ÍÞRÓTTIR 27