Fréttablaðið - 13.02.2008, Blaðsíða 12
12 13. febrúar 2008 MIÐVIKUDAGUR
DÓMSMÁL Tuttugu og þriggja ára
karlmaður hefur verið dæmdur í
fimm mánaða fangelsi, þar af
fjóra mánuði skilorðsbundna,
fyrir líkamsárás. Hann tók 48 ára
karlmann hálstaki, beit hann í
fingurinn og kýldi 22 ára son
hans.
Árásin átti sér stað þegar feðg-
arnir sátu við borð fyrir utan veit-
ingastaðinn Kaffi Viktor í Hafnar-
stræti í Reykjavík 1. september
2006.
Faðirinn hlaut sentimetra lang-
an skurð á fingri, sonurinn rotað-
ist og skarst á kinn, höku og innan
á vör.
Fyrir dómi sagði árásarmaður-
inn, sem vann sem dyravörður á
staðnum, að feðgarnir hefðu ráð-
ist á sig ásamt hópi manna þegar
hann reyndi að fá þá til að færa sig
inn.
Samstarfsmaður hans tók undir
það. Vitnisburður þeirra var ekki
tekinn trúanlegur fyrir dómi, og
árásin sögð tilefnislaus.
Til viðbótar við fangavistina var
maðurinn dæmdur í Héraðsdómi
Reykjavíkur til að greiða föðurn-
um tæpar 200 þúsund í bætur og
syninum 30 þúsund krónum betur.
Auk þess þarf hann að greiða
málsvarnarlaun verjanda síns, 261
þúsund krónur.
- sþs
Tuttugu og þriggja ára maður dæmdur í mánaðarlangt óskilorðsbundið fangelsi:
Dyravörður beit og kýldi feðga
VIÐ UPPHAF NÝS ÁRS Í Peking fylgdist
þessi kona með lítilli mús hlaupa
inni í hjóli. Músakúnstirnar voru liður
í hátíðahöldum í tilefni af því að ár
rottunnar hófst á fimmtudag.
NORDICPHOTOS/AFP
■ Dyravörðurinn var á skilorði
fyrir líkamsárás þegar dómur
í þessu máli féll. Hann var
dæmdur í sex mánaða fangelsi,
þar af fjóra skilorðsbundna, í
október 2006 fyrir líkamsárás
og vopnalagabrot.
■ Þá sló hann annan mann í
höfuðið með öxi fyrir utan
Leikbæ í Mjódd, þannig að
hann marðist á höfði.
■ Árásin var algjörlega tilefnis-
laus, samkvæmt niðurstöðu
Héraðsdóms Reykjavíkur.
LAMDI MANN MEÐ
ÖXI ÁN TILEFNIS
DÓMSMÁL Aðalmeðferð í DC-
málinu svokallaða fór fram í
Héraðsdómi Reykjavíkur á
mánudag. Þar eru tíu manns
sakaðir um að hafa brotið
höfundaréttarlög með því að
skiptast á skrám í gegnum
forritið DC++. Þetta er í fyrsta
skipti sem mál af þessu tagi
kemur fyrir íslenskan dómstól.
Rannsókn málsins hefur
dregist mikið, en hún hófst í
september árið 2004. Þá voru
tölvur sakborninganna gerðar
upptækar í húsleitum um land
allt.
Dómur í málinu verður kveðinn
upp 3. mars. - sþs
Dómur kveðinn upp 3. mars:
Aðalmeðferð í
DC-máli lokið
A
T
A
R
N
A
Nóatúni 4 · Sími 520 3000
www.sminor.is
Kynntu þér málið í Stjórnmálaskóla Sjálfstæðisflokksins í Valhöll sem er frá
18. feb. til 13. mars. Námskeiðið stendur yfir í fjórar vikur og fer fram á
mánudags-, þriðjudags- og fimmtudagskvöldum.
Dagskráin er á heimasíðu Sjálfstæðisflokksins, www.xd.is undir hnappi Stjórnmálaskólans.
Skráning og nánari upplýsingar í síma 515 1777/515 1700, einnig á netfangi disa@xd.is
Um hvað snúast stjórnmál?
Valhöll
Háaleitisbraut 1
105 Reykjavík
sími 515 1700
www.xd.is
• borgarmálin
• listina að hafa áhrif
• flokksstarfið
• menntun og menningarmál
• velferðarmál
• ferða- og samgöngumál
• efnahagsmál
• umhverfismál
• utanríkismál
• sjávarútvegsmál
• landbúnaðarmál
• stjórnskipan og stjórnsýslu
• greina- og fréttaskrif
• Sjálfstæðisflokkinn
• starfshættir Alþingis
Fyrirlestrar og umræður um
DANMÖRK Lögreglan í Danmörku
handtók í fyrrinótt þrjá menn sem
ætluðu að ráða af dögum einn af
teiknurunum tólf, sem gerðu skop-
myndirnar af Múhameð spámanni
árið 2005.
Mennirnir voru handteknir í
Árósum. Einn þeirra er fertugur
danskur ríkisborgari af mar-
okkóskum uppruna en hinir tveir
eru túnískir ríkisborgarar.
Mennirnir ætluðu að ráðast á
teiknarann Kurt Westergaard á
heimili hans og ráða hann af
dögum. Westergaard teiknaði
mynd af höfði Múhameðs með
sprengju eins og höfuðfat ofan á
sér. Þessi teikning er sú sem vakti
einna hörðust viðbrögð af Múham-
eðsteikningunum tólf, sem birtust
í Jótlandspóstinum þann 30. sept-
ember árið 2005 og vöktu hörð við-
brögð múslíma víða um heim.
Túnismönnunum tveimur verð-
ur vísað úr landi en danski ríkis-
borgarinn verður væntanlega
fljótlega látinn laus. Hann verður
þó áfram undir eftirliti leyniþjón-
ustunnar.
Leyniþjónusta dönsku lögregl-
unnar hefur lengi fylgst með
mönnunum og haft veður af áform-
um þeirra. Kurt Westergaard og
eiginkona hans hafa haft lögreglu-
vernd í þrjá mánuði.
„Vissulega óttast ég um líf mitt,“
sagði Westergaard í yfirlýsingu á
vefsíðum Jótlandspóstsins, „en ég
hef snúið óttanum upp í reiði og
biturleika. Ég er reiður út af því að
ósköp hversdagsleg verk, sem ég
hef gert í þúsundavís, skuli vera
misnotuð til að leysa úr læðingi
slíkt brjálæði.“ Westergaard, sem
er orðinn 73 ára, segist ekki vita
hve lengi hann þurfi að búa við lög-
regluvernd, „en ég held að eftir-
hreyturnar af þessum brjáluðu
viðbrögðum muni endast svo lengi
sem ég lifi.“
Westergaard lét þetta þó ekki
aftra sér frá því að mæta til vinnu
sinnar á Jótlandspóstinum í gær,
eins og aðrir starfsmenn blaðsins.
Starfsmenn þar eru vanir morðhót-
unum frá öfgamúslímum. Öryggis-
ráðstafanir á blaðinu voru hertar
mjög þegar heiftin var hvað mest
árið 2006, og eru enn strangar.
Jótlandspósturinn endurbirti
Múhameðsteikningu Westergaards
í gær á vefsíðum sínum. Mörg
dönsk dagblöð lýstu því einnig yfir
í gær að þau ætli að endurbirta
þessa teikningu í dag.
gudsteinn@frettabladid.is
Vildu myrða
skopteiknara á
áttræðisaldri
Þrír menn voru handteknir í Danmörku fyrir að
hafa lagt á ráðin um að myrða danska teiknarann
Kurt Westergaard. Margir danskir fjölmiðlar hafa
vegna þess endurbirt teikningu Westergaards.
KURT WESTERGAARD Maðurinn, sem teiknaði eina af Múhameðsteikningunum sem
birtust í Jótlandspóstinum haustið 2005, segist vissulega óttast um líf sitt.
NORDICPHOTOS/AFP