Fréttablaðið - 13.02.2008, Blaðsíða 31
MIÐVIKUDAGUR 13. FEBRÚAR 2008
● HUGMYNDASAMKEPPNI UM
HÁSPENNULÍNUMÖSTUR
Landsnet hf. hefur efnt til hugmyndasamkeppni
um hönnun háspennulínumastra í samstarfi við
Arkitektafélag Íslands. Markmið samkeppninnar
er að fá hugmyndir að gerð og útliti masturs eða
mastra í 220 kV háspennulínu. Landsnet leggur
áherslu á að sjónræn áhrif mastranna (línunnar)
verði skoðuð sérstaklega í samkeppni þessari og
að keppendur komi með tillögur að útfærslu
mastra sem taka tillit til þessa eins og kostur er,
og er þá bæði miðað við möstur (línu) nærri
þéttbýli og í óbyggðu landi.
Samkeppnin er almenn hugmyndasam-
keppni og er gefin út á íslensku og ensku og
verður auglýst erlendis. Dómnefnd er skipuð
fimm fulltrúum, tveimur arkitektum frá AÍ og
þremur fullrúum frá útbjóðanda. Skiladagur
samkeppninnar er 28. mars 2008 og frestur
til fyrirspurna rennur út 3. mars 2008.
Nánari upplýsingar um samkeppnina
má finna á vef Arkitektafélags Íslands,
www.ai.is.
● SKÓFLUSTUNGA Á AKUREYRI
Menntamálaráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, tók fyrstu
skóflu stunguna að fjórða áfanga nýbygginga Háskólans á Akureyri við
Sólborg nýverið.
Byggingin er liður í því að koma starfsemi háskólans á eitt og sama
svæðið sem er til mikillar hagræðingar. Í viðbyggingunni verða hátíðar-
salur og fyrirlestrarsalur, auk smærri kennslurýma. Einnig er gert ráð fyrir
bílastæðum og háskólatorgi.
Verklok eru áætluð sumarið
2010. Auk menntamálaráðherra
tóku Þorsteinn Gunnarsson rekt-
or og Reynir Albert Þórólfsson,
formaður Félags stúdenta, til
máls.
Sjá nánar á www.akureyri.net
BAWER
VARÚÐARLJÓS • LJÓSKASTARAR • DÍÓÐULJÓS • KELSA LJÓSAGRINDUR Á FLESTA VÖRUBÍLA
Holland dráttarstólar 25 og 36 tonna • Undirvagnsvarnir með ljósum
NÝTT
NÝTT NÝTT
NÝTT