Fréttablaðið - 13.02.2008, Blaðsíða 49
MIÐVIKUDAGUR 13. febrúar 2008 25
Tónleikar verða haldnir á Gauki á
Stöng í kvöld til styrktar góðvini
strákanna í hljómsveitinni
Hoffman sem þjáist af hinum
lífshættulegum sjúkdómi
ósæðaflysjun. Auk Hoffman
koma fram á tónleikunum
hljómsveitirnar Benny Crespos
Gang, Hookerswing, Cliff Clavin
og Æla.
Að því er kemur fram í
fréttatilkynningu er pilturinn
sem á við veikindin að stríða
hægt og bítandi að ná að vinna
bug á sjúkdómnum með hjálp
góðra vina. Gaukurinn opnar
klukkan 20 og fer fyrsta hljóm-
sveit á svið klukkutíma síðar.
Miðaverð er 1.000 krónur auk
þess sem tekið verður á móti
frjálsum framlögum.
Til styrktar
veikum vini
BENNY CRESPOS GANG Hljómsveitin
Benny Crespos Gang spilar á styrktar-
tónleikunum í kvöld.
Bretar sem stunda ólöglegt
niðurhal á netinu geta átt það á
hættu að klippt verði á netteng-
ingu þeirra gangi nýjar hug-
myndir stjórnvalda eftir.
Sam-
kvæmt
hugmynd-
um verður
tenging-
unni lokað
ef
notendur
fremja
sama brot
þrisvar
sinnum.
Fyrst fær
fólk
viðvörun í
tölvupósti,
síðan verður það sett í bann og
loks verður nettengingin
fjarlægð.
Talið er að sex milljónir Breta
sæki tónlist og kvikmyndir á
ólöglegan hátt á netinu á hverju
ári. Telja útgáfufyrirtæki að þau
verði af gífurlegum fjármunum
af þessum sökum.
Stjórnvöld
loka á netið
NIÐURHAL Bresk
stjórnvöld íhuga að taka
ólöglegu niðurhali föstum
tökum.
Nýlega fóru auglýsingaborðar að
birtast á bloggum á Moggablogg-
inu. Í tæpt ár hefur þetta vinsæl-
asta bloggsvæði landsins (12.800
skráðar síður) verið án auglýsinga
og því hefur þessi óvænta truflun
í bloggtilverunni farið illa í marg-
an bloggarann. „Ef auglýsingar
verða ekki fljótlega fjarlægðar af
þessari bloggsíðu mun henni verða
lokað,“ skrifar Guðbjörg Hildur
Kolbeins og margir taka í sama
streng: „Þetta blogg er minn per-
sónulegi vettvangur og það er ekk-
ert nema andlegt ofbeldi að neyða
auglýsingum um viðskipti upp á
hann,“ skrifar Sigurður Þór Guð-
jónsson og er farinn í bloggstopp
til að mótmæla auglýsingaborðan-
um.
„Það stóð nú alltaf til að bloggið
stæði undir sér,“ segir Árni
Matthíasson, sem er til svara hjá
Moggablogginu, „enda kostar sitt
að halda þessu úti. Það voru aug-
lýsingar á bloggsíðunum hjá okkur
frá fyrsta degi, en þær duttu út og
fyrir ýmsar sakir var bloggið aug-
lýsingalaust í tæpt ár.“
Árni segir einhverja hafa hætt
að blogga út af auglýsingaborðun-
um. „Ég veit um einhverja fjóra til
fimm sem eru hættir, en það er
annars erfitt að sjá hvort fólk sé
hætt að blogga eða hvort það er
bara svona latt. Það kom mér mest
á óvart hvað margir voru búnir að
gleyma því að það voru alltaf aug-
lýsingaborðar þar til í fyrra.“
Árni segir alveg koma til greina
að leyfa þeim sem vilja að greiða
fyrir blogghýsingu á Moggablogg-
inu. Í staðinn myndu þeir sleppa
við auglýsingaborðann. „Í fram-
haldi af þessum viðbrögðum erum
við að skoða það, já. Við viljum
auðvitað koma til móts við þetta
fólk þótt ekki séu þetta margir.
Hver einn og einasti bloggari
skiptir okkur máli.“ - glh
Óánægja með auglýs-
ingar á Moggabloggi
ÁRNI MATTHÍASSON Það stóð alltaf til
að bloggið stæði undir sér.
Eurovision-nördar hafa lát-
ið í ljós óánægju sína með
að Haffi Haff komst ekki
áfram um síðustu helgi.
„Hversu heimskir eru Íslending-
ar??? Það hefði verið séns að þeir
ynnu Eurovision með Haffa Haff...
þeir vilja augljóslega ekki vinna
þessa keppni.“ Þetta skrifar
„Omen2008“ á spjallsíðu Euro-
vision-nörda. Þar eru nánast allir
sammála um að Ísland hafi gert
stór mistök með því að kjósa ekki
lag Svölu Björgvins sem Haffi
söng, The Wiggle Wiggle Song,
áfram í úrslitaþáttinn. „Þetta
hljóta að vera mistök. Haffi Haff
var bestur,“ skrifar „Plople“ og
„Enginn Haffi? Er ykkur alvara?
Þarna fór uppáhaldið mitt,“ skrif-
ar „Jonngait“.
„Já, er fólk að skrifa þetta?“
spyr Haffi, nokkuð uppveðraður.
„Ég var nú alveg búinn að búa mig
undir að detta út enda var ég viss
um að Ho ho ho færi áfram og ég
vissi líka að Ragnheiður Gröndal
er vinsæl. Svo það er langt frá því
að ég sé bitur og sár. Það hefði
auðvitað verið gaman að fara
áfram því ég hefði getað gert enn
geðveikara atriði næst.“
Haffi, sem hafði aldrei sungið
opinberlega fyrr, getur ekki verið
annað en ánægður með viðtökurn-
ar þótt hann hafi dottið út. „Þetta
er rosaleg kynning fyrir mig og ég
er stoltur af laginu og atriðinu.
Kannski var þetta bara allt of
mikið fyrir Ísland núna – alltof
mikið „búmm!“ En ég er mjög upp
með mér með viðtökurnar.“
Förðun er aðalstarf Haffa. Hann
sér til dæmis um meikið í Bandinu
hans Bubba. „Ég fékkst við list-
sköpun á yngri árum og væri mjög
til í að pæla betur í því. Til dæmis
að mála olíumyndir.“
Og Haffi er vitanlega til í meiri
músik. „You better believe it,“
segir hann. „Ef einhver vill gera
eitthvað sniðugt þá er bara að hafa
samband. En ég nenni engu smá-
dæmi. Það er annaðhvort heimsyf-
irráð eða dauði. Ég er bara þannig
gaur.“
Þótt Euro-nördar gráti Haffa
kemur maður í manns stað.
Almenn ánægja virðist ríkja með
Eurobandið, en hún er reyndar
ekki einróma, og öll önnur lög fá
líka jákvæða umsögn nördanna.
Það virðist þó enn von fyrir Ísland
þótt Haffi sé úr leik. En með hverj-
um skyldi Haffi halda?
„Ég fíla Friðrik Ómar vin minn
og finnst alveg kominn tími til að
hann fari í Eurovision. Hann er í
þessu alveg hundrað prósent, af
öllu hjarta. Alveg eins og ég var.
Ég sagði honum stundum hversu
rosalega stoltur ég væri af því að
taka þátt í sömu keppni og hann.
Og hann sagði bara: „Æi, þegiðu
maður!““
gunnarh@frettabladid.is
Euro-nördar gráta Haffa Haff
HEIMSYFIRRÁÐ EÐA DAUÐI Haffi Haff er
til í meira popp en nennir engu hálfkáki.