Fréttablaðið - 13.02.2008, Blaðsíða 9

Fréttablaðið - 13.02.2008, Blaðsíða 9
H A U S MARKAÐURINN 9MIÐVIKUDAGUR 13. FEBRÚAR 2008 Ú T T E K T T R E N G J A S Ö G U 1 9 8 0 Jarðstöðin Skyggnir kemur til sög- unnar og fóru þá samtöl til útlanda um gervihnött. Þá var fyrst hægt að hringja beint til annarra landa. 1 9 9 4 Nýr sæstrengur, Cantat-3, tekinn í notkun. Hann liggur þvert yfir Atlantshafið, frá Evrópu til Ameríku, en grein frá honum tengist Íslandi. Um hann fer mikill gagnaflutningur, en hann heyrir brátt sögunni til. 2 0 0 4 Farice 1 tekinn í notkun. Hann jók til muna gagnaflutninga til og frá landinu. 2 0 0 9 Stefnt er að því að Danice verði tekinn í notkun. Með því eykst bæði fjarskiptaöryggi auk þess sem flutn- ingsgeta eykst til muna. Sumir segja að þessi nýi strengur sé forsenda fyrir því að hingað komi netþjónabú. F R A M T Í Ð I N Í náinni framtíð verður einnig tengdur við landið strengur Grænlendinga auk þess sem strengur Hibernia Atlantic verður hugsanlega lagður hingað frá Írlandi. BJARNI ÞOR- VARÐARSON Við förum eftir samkeppnis - landslaginu og hvernig gengur að fá netþjóna- búin til landsins og hvaða teng- ingar þau kalla á. starfsmenn þar verði á annað hundrað og búið geti orðið meðal þeirra tuttugu stærstu í heiminum. Hugmyndin er að það taki til starfa um næstu áramót. Einnig hafa aðilar frá netrisanum Yahoo komið hingað til lands til að kynna sér mögu- leikana. Þá hafa enn fleiri erlendir aðilar leit- að hófanna hér um starfsemi. Þórður Hilm- arsson, framkvæmdastjóri Fjárfestingastofu Íslands, staðfestir það, en vill ekki gefa upp hverjir hafi sýnt því áhuga. „Áhuginn á þessu er alveg gríðarlegur úti í heimi. Ég er ekki í nokkrum vafa um það að það eiga eftir að koma hingað fleiri net- þjónabú. Viðræður eru hafnar en það er ekk- ert naglfast. En við erum að ræða við fleiri en einn aðila. Það er hins vegar óvíst hvenær því lýkur, við höfum okkar áætlanir um það. Fyrsta netþjónabúið er að fara í rekst- ur eftir ár. Við erum nú nokkuð bjartsýnir á að næsta bú geti hafið starfsemi hér innan tveggja ára,“ segir Guðmundur Gunnarsson hjá Farice. Hann segir að Grænlandsumferðin verði flutt til Evrópu, samið hafi verið um það. En það sé ekki teljandi umferð, enda séu Græn- lendingar fáir. BÆTT STAÐA HÁSKÓLANNA Rannsókna- og háskólanetið (RHnet) hefur verið á Cantat. Guðmundur Gunnarsson segir flest benda til þess að RHnetið verði komið á Farice innan skamms. „Þá fá þeir verulega svera pípu til útlanda. Það hefur kannski stað- ið þeim eitthvað fyrir þrifum, að geta tekið þátt í rannsóknarstörfum og slíku. Það er sjálfsagt að nýta leiðirnar. Það er nóg pláss hjá okkur ennþá.“ Fram hefur komið í fjölmiðlum að kostnað- ur Rannsókna- og háskólanets Íslands af net- tengingum myndi sexfaldast yrðu samböndin færð yfir á Farice-strenginn. Í bréfi sem Maríus Ólafsson, netstjóri RHnets, sendi frá sér fyrir nokkrum mán- uðum kemur fram að heildarvelta RHnets sé 38 milljónir króna á ári. Yrðu tengingarnar færðar yfir á Farice myndi kostnaður við net- tengingar einar og sér nema hátt í 180 miljón- um króna. Jón Ingi Einarsson, framkvæmdastjóri RHnets, vill lítið tjá sig um þetta en segir að nú virðist vilji stjórnvalda til þess að greiða leið RHnetsins vera ríkari en áður. LANGTÍMAFJÁRFESTINGAR „Fjárfestingin er milli sex og sjö milljarð- ar króna og það eru eigendur Farice sem borga, en svo verður það líka lánsfé,“ segir Guðmundur um nýja strenginn. Bjarni Þorvarðarson, forstjóri Hibernia Atlantic, gerir ráð fyrir að sæstrengur frá Ír- landi og hingað til lands kosti um 50 milljón- ir Bandaríkjadala, þegar hann verður lagður. Það nemur um 3,4 milljörðum króna. Á sínum tíma kostaði Farice 1 þrjá og hálf- an til fjóra milljarða króna. „Hann hefur að- eins verið greiddur með almennri umferð. Við erum fá hér, svo notkunin hefur ekki verið mikil,“ segir Guðmundur Gunnarsson hjá Farice. „Fjárfestingin í Danice hefur þau áhrif í fyrsta lagi að við erum að fara að selja þess- um netþjónabúum umferð. Það hefur þau áhrif til lengri tíma að almenn umferð verð- ur ódýrari. Umferð fyrir okkur almenning kostar minna eða almennir notendur fá meira gagnamagn fyrir sama verð. Ég legg áherslu á að það er ekki hægt að líta á þetta sem verkefni sem eigi að borga sig upp á tveimur til þremur árum, þetta er langtímafjárfest- ing. Þetta er eins og hver annar þjóðvegur. Þetta er þjóðvegur fyrir þessa umferð til út- landa. Ef hann er ekki í lagi þá er þjóðfélagið bara á hliðinni,“ segir Guðmundur. MIKLIR HAGSMUNIR Áður en ákveðið var að ráðast í lagningu Danice-strengsins komst ráðgjafarfyrirtækið ParX að því að þjóðhagslegt tap af ótryggum netsamböndum Íslands við umheiminn gæti numið hátt í 30 milljörðum króna á örfá- um árum. Því yrði að ráðast í nýjan streng. Líklega væru ekki nema um átta ár eftir af líftíma Cantat-strengsins. Eftir það yrði fátt um varasam- bönd ef Farice bilaði. Skýrsluhöfundar sögðu að öryggi fjarskiptaum- ferðar á netinu til og frá landinu væri ekki nóg. Til að menn gætu treyst sam- böndum mætti sambands- rof ekki vara lengur en fimm mínútur á ári. Svo er ekki nú, og sögðu þeir mörg tækifæri glatast sem sækja mætti með örugg- ari tengingum. Þar mætti nefna fjármálaþjónustu, heilbrigðisþjónustu og líf- tækni, fjarskiptaþjónustu, framleiðslu og viðskipta- kerfi, umsýslu rafrænna viðskiptakerfa, rekstur gagnabanka og ýmislegt fleira. HVERJIR HAGNAST? Ljóst er að þjóðarbúið allt hagnast af því að fjar- skiptasambönd Íslands við umheiminn séu trygg. Þá hefur ítrekað verið bent á að rekstur ýmiss konar netþjónabúa yrði góð við- bót við aðra atvinnustarf- semi hérlendis. Fjöldi nýrra starfa gæti orðið til. Ýmis fjölþjóðleg fyr- irtæki hafa sýnt því áhuga á að koma hingað með sína starfsemi auk þess sem Markaðnum er kunnugt um nokkra innlenda aðila sem hyggjast róa á svip- uð mið. En hvers vegna skyldu netþjónabúin vilja koma hingað? Ekki síst í ljósi þess að sambönd hér hafa reynst ótrygg undanfarin ár. Jón Ingi Einarsson hjá RHneti hefur bent á að til þess að fullnægja ítrustu kröfum net- þjónabúa þurfi að liggja héðan tveir strengir til vesturs og aðrir tveir til austurs. Guðmundur Gunnarsson, hjá Farice, full- yrðir hins vegar að með Danice verði nægt fjarskiptaöryggi fyrir net- þjónabúin. Einnig hefur verið bent á að hér geti þessi fyrirtæki feng- ið aðgang að ódýrri raforku. Á heitari stöðum heimsins fari mikill hluti þeirrar orku sem netþjónabú nota til kælingar. Sá kostnaður yrði umtalsvert minni hér. Netþjónabú nota töluvert af raforku, þó lítið í samanburði við álver, en fram hefur komið að orkufyrirtækin vilji gjarn- an beina viðskiptum sínum í þessa átt; auglýsa „græna orku“ fyrir þessa starfsemi. Þá sé hátt menntastig hér á landi og erlend fyrirtæki gætu fundið hæft starfsfólk hér. Á móti hafa viðmælendur Markaðarins bent á að þótt tölvurnar sjálf- ar yrðu geymdar hér á landi gætu erlend fyrirtæki stýrt þeim að utan. Ekki sé því gefið að tugir eða hundruð háskólamenntaðs fólks starfi við öll netþjónabú. Í sumum til- vikum þyrfti ef til vill einungis starfsfólk til að tryggja að kveikt væri á tölvunum. fimm ár ýjum streng eftir fimm ár. Forstjóri íkið við svo búið. Ingimar Karl CE NÚVERANDI OG VÆNTANLEGIR FJARSKIPTA- STRENGIR Farice 1 er í sameiginlegri eigu íslenskra og færeyskra aðila. Færeyingar eiga fimmtung, en Íslendingar rest. Þrjú íslensk orkufyrirtæki, Orkuveita Reykjavíkur, Landsvirkjun og Hitaveita Suðurnesja, eiga nú sameiginlega stærstan hlut í félaginu, en gengið var frá því fyrir jól. Farice hefur ákveðið að leggja nýjan sæstreng, Danice, héðan og til Danmerkur. Hvert orkufyrir- tæki um sig samdi um þátttöku í verkefninu fyrir áramót, og mun hvert fyrir sig ætla að leggja 500 milljóna króna hlutafé til verksins. Aðrir eigend- ur eru Síminn, Vodafone og íslenska ríkið. Canat 3, sæstrengurinn sem einn þjónaði Íslandi í tíu ár, er nú í meirihlutaeigu indverska landssímans, en hann var áður að mestu í eigu kanadíska fyrirtækisins TeleGlobe. Einnig eiga fleiri fyrirtæki, þar á meðal Vodafone, hlut í strengnum. Þá stendur Tele Grönland nú í því að leggja streng frá Nýfundnalandi til Grænlands. Sá strengur verður svo lagður áfram hingað til lands, svo Grænlendingar komist einnig í sam- band Evrópumegin. Fyrirtæki Kenneth Peterson, Hibernia Atlantic, hefur einnig áformað að leggja hingað streng. Þær fyrirætlanir eru í undirbúningi en óvíst er hvenær sá strengur verður lagður. E I G E N D U R S T R E N G J A 80% Hitaveita Suðurnesja hf. Landsvirkjun Orkuveita Reykjavíkur Íslenska ríkið Skipti hf. Vodafone 20% Færeyski landsíminn Kall p/f (FO) H L U T H A F A R Í F A R I C E : Rottugangur í óbyggðum Norður-Skotlands hefur orðið til þess að netsamband Íslendinga við umheiminn hefur rofnað. Farice-sæstrengurinn liggur frá landinu um Færeyjar og kemur á land í Castletown í Norður- Skotlandi. Þaðan liggur ljósleiðari til Edinborgar. Flestar bilanirnar hafa orðið við framkvæmdir við járnbrautar- brú en einu sinni var sambandslaust um þá leið í þrjá sólarhringa vegna bilunar þar. Þá hefur sambandið líka rofnað vegna rottugangs. Hluti ljósleiðarans liggur um afskekkt hérað. Þar komust rottur að strengnum og nöguðu sig í gegnum ljósleið- arann. Síðan var leiðarinn brynvarinn til að hlífa honum við meindýrum. Guðmundur Gunnarsson, fram- kvæmdastjóri Farice, segir að frá því að strengurinn var tvö- faldaður frá land- tökustað í Skotlandi, hafi Ísland ekki orðið sambandslaust. N A G D Ý R A F Ó Ð U R ? ORSÖK SAMBANDSSLITA Dæmi eru um að rottur hafi orðið til þess að Ísland varð sambandslaust við umheim- inn, þegar þær nöguðu sig í gegnum ljósleiðarastreng í Skotlandi. Hann var brynvarinn vegna þessa.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.