Fréttablaðið - 20.02.2008, Blaðsíða 23
MIÐVIKUDAGUR 20. febrúar 2008 5
Pace-gúmmíkvoðan virkar sem
fínasti þakdúkur en galdurinn
á bak við efnið er teygjanleik-
inn. Þakdúkurinn er fín lausn
fyrir þök sem eru farin að láta
á sjá en efnið virkar nokkurn
veginn eins og málning.
Undanfarið hefur væta einkennt
landið og þá einkum höfuðborgar-
svæðið, snjó hefur kyngt niður en
hlánað jafnóðum og rok með til-
heyrandi rigningu er í spákortun-
um fleiri daga í viku en við kærum
okkur um. Hvað húsnæði varðar
þá bitnar slík veðrátta fyrst og
fremst á þakinu.
„Hér rignir lárétt og lóðrétt og
úr öllum áttum og því er nauðsyn-
legt að þakið sé vel varið,“ segir
Bergsteinn Ómar Óskarsson sem
flytur inn efni sem kallast Pace.
„Pace er auðveld lausn fyrir við-
hald þaka og stöðvar allan leka. Í
nánast öllum tilfellum höfum við
skilað þakinu vatnsheldu í fyrstu
tilraun,“ bætir Bergsteinn við og
segir að þetta sé afbragðslausn
fyrir þök sem eru farin að láta á
sjá.
Pace er meðhöndlað líkt og
málning; litaðri gúmmíkvoðu er
sprautað úr dælu á þakið eftir að
búið er að þvo flötinn, bera sýru á
ryðguðu fletina og fara yfir allar
festingar þaksins. Efnið lekur svo
í hverja glufu, lokar þannig öllum
götum og stöðvar allan leka. „Þetta
er ekki flókið ferli en það virkar,
við notum nokkuð kröftugar
dælur, það dugir engin málninga-
dæla, þetta er það mikið þykkara
en málning.“ En í raun virkar
þetta eins og málning. Eftir að
efnið er komið á og hefur þornað
lítur þakið út eins og það sé nýmál-
að.
„Í raun getur hver sem er sett
þetta á, já, en við seljum þjónust-
una með þá tryggingu að þetta sé
gert hundrað prósent rétt. Regla
númer eitt, tvö og þrjú er í raun að
bera þetta á þurran flöt, reyndar
er eina leiðin til þess að þetta mis-
takist að þetta fari á vott svæði,“
svarar Bergsteinn þegar hann er
spurður út í hvort þetta sé aðeins á
færi sérfræðinga. „Galdurinn við
þetta efni er teygjanleikinn. Þó
það myndist sprunga eða hola í
efninu undir þá sér aldrei á
gúmmíkvoðunni, hún er það teygj-
anleg að hún helst áfram heil og
verndar þakið. Það þarf ansi mikið
að ganga á svo það sjái eitthvað á
henni.“
En ekki eru allir þeir sem huga
þurfa að viðhaldi þaksins með járn
á þakinu. „Við höfum notað þetta
mest á járnþök en þetta virkar vel
á allar gerðir, hvort sem þau eru
steypt eða úr áli eða hverju sem
er. Ef það er farið að sjá til dæmis
á pappaþaki, olían farin úr pappan-
um og sprungur farnar að mynd-
ast, þá er þetta sennilega ein besta
og auðveldasta leiðin til viðgerða
og viðhalds.“
Hægt er að nálgast stutt
kennslumyndband í Pace-umboð-
inu hjá Bergsteini Ómari sem
sýnir hversu auðvelt ferlið er og
hver og einn getur gert það upp
við sig hvort þetta sé lausnin sem
hann þarf fyrir þakið. - kik
Með holur í þakinu
Bergsteinn með undraefnið í baksýn. MYND/KRISTJÁN KRISTJÁNSSON
KERTO LÍMTRÉ
SKRIFSTOFA: HOLTSBÚÐ 93 • SÍMI 566 6606
VERKSMIÐJA: NORÐURGARÐUR 8 • MOSFELL@MOSFELL.IS
Notaðu KERTO LÍMTRÉ í burðarvirkið
KERTO LÍMTRÉ í milligólfið
KERTO LÍMTRÉ það sem fagmenn velja
Sagað eftir þínum málum
KERTO LÍMTRÉ fyrir þá sem vilja
gæði og hagkvæmni.
YFIR 25 ÁRA REYNSLA
Á ÍSLANDI
MEÐ KERTO LÍMTRÉ