Fréttablaðið - 20.02.2008, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 20.02.2008, Blaðsíða 6
MARKAÐURINN 20. FEBRÚAR 2008 MIÐVIKUDAGUR6 F R É T T A S K Ý R I N G V ið höfum spilað vörn, tekið skrefið aftur á bak til að byggja betri grunn, treysta stoðirn- ar til að vinna út frá og fínstilla reksturinn sem gerir okkur kleift að nýta tækifærin sem hafa orðið til. Þeir sem kom- ast í gegnum erfiðleikana standa sterkir eftir,“ segir Jón Sigurðs- son, forstjóri FL Group. Jón kynnti í síðustu viku sitt fyrsta uppgjör. Vart öfundsverð- ur af hlutskiptinu því uppgjör- ið sýndi tap upp á 67 milljarða króna, eitt mesta tap hjá íslensku fyrirtæki til þessa. Tífalt meira en Dagsbrún skilaði af sér fyrir tveimur árum, sem þá skipaði fyrsta sætið. Markaðsaðilar eru almennt - þrátt fyrir ýmsa fyrirvara - sam- mála um að FL Group hafi geng- ið hreint til verks í uppgjörinu og benda á að 32 prósenta eign fé- lagsins í Glitni sé færð til bókar á markaðsvirði í stað hlutdeildarað- ferðar. Markaðsvirðið hafi keyrt afkomuna niður en hefði hinni að- ferðinni verið beitt mætti ætla að tapið hefði orðið á bilinu 20 til 30 milljörðum krónum minna. Hlutskipti Jóns er vart öfunds- vert en hann tók við forstjóra- stólnum eftir að mjög tók að þrengja um stærstu hluthafa fé- lagsins í kjölfar mikillar gengis- lækkunar á hlutabréfamarkaði. Sviptingar urðu í hluthafahópn- um í kjölfarið og greip félag- ið til þess að selja stórar stöður í erlendum félögum sem höfðu lækkað mikið í verði. Þar á meðal hafði mjög saxast á hlut félagsins í bandarísku flugrekstrarsamstæðunni AMR og í hinum þýska Commerzbank. Til tíðinda þótti þegar FL Group flaggaði tæpum sex prósenta hlut í AMR skömmu fyrir þar- síðustu áramót og varði félagið háum fjárhæðum og ærnum til- kostnaði til að fá kröfum sínum framgengt þar innandyra í fyrra. Árangurinn var lítill og ákvað fé- lagið að losa um eignir í skugga niðursveiflu á hlutabréfamörk- uðum samhliða háum olíuverði sem snerti mjög við afkomu flug- rekstrarfélagsins. Svipaða sögu var að segja af öðrum fjárfestingum FL Group sem gengu ekki eftir á síðasta ári. Mikil umsvif í fjárfestingum fé- lagsins skiluðu sér í háum rekstr- arkostnaði: 6,1 milljarðar króna. NIÐURSKURÐARHNÍFUR Á LOFTI Þeir Jón Sigurðsson, forstjóri FL Group, og Jón Ásgeir Jóhann- esson, stjórnarformaður þess, boðuðu báðir á fjölmennum upp- gjörsfundi fyrir viku að fram- undan væri mikill niðurskurð- ur á kostnaðinum. Stefnan er að skera kostnað niður um helming hið minnsta. Forstjórinn segir hraða upp- byggingu FL Group síðastliðin ár skýra háan rekstrarkostnað í fyrra. Félagið hafi flutt inn í nýjar höfuðstöðvar síðla hausts í fyrra auk þess sem skrifstofa var opnuð í Lundúnum í Bretlandi og annarri lokað í Kaupmanna- höfn í Danmörku. Þá hafi félag- ið borið eftirlaunaskuldbindingar frá Flugleiða-tímanum á bakinu auk kostnaðar vegna starfsloka, m.a. vegna lokunar skrifstofu félagsins í Kaupmannahöfn. Þar er líka starfslokasamning- ur Hannesar Smárasonar, fyrr- um forstjóra, uppá níutíu millj- ónir króna. Allt er þetta einskipt- ikostnaður sem ekki falli í bækur FL Group á næstu árum, að sögn Jóns. Jón bendir líka á að setja verði rekstrarkostnað félagsins í samhengi við mikil umsvif í kringum eignsafn sem nam 422 milljórðum í árslok 2007. SAMKEPPNISHÆF LAUN Launakostnaðurinn í fyrra nam 701 milljón króna sem deilist á 40 starfsmenn. Það geri 1,5 millj- ónir á mann að meðaltali á mán- uði, með launatengdum gjöldum. „Laun í þessum geira eru há og því tel ég að við greiðum sam- bærileg laun og hjá öðrum fyrir- tækjum í sama geira,“ segir Jón og bætir við að nauðsynlegt hafi verið, í sókn síðustu ára, að bjóða vel í góða starfskrafta, bæði ís- lenska sem erlenda. „Við erum með mjög gott fólk, “ segir hann. DREGIÐ ÚR STYRKVEITINGUM FL Group hefur í ofanálag styrkt veglega við ýmis verkefni og málefni. Svo sem við Unicef, BUGL (Barna- og unglingageð- deild Landsspítalans), Mænu- skaðastofnun Íslands, Tónvís og Sinfóníuhljómsveit Íslands, auk margra smærri málefna. Verk- efnin eru flest hver bundin til ákveðins tíma. Kostnaður við verkefnin hefur ekki komið fram í ársreikningum FL Group til þessa. Stefnan er að draga mjög úr smærri styrkjum og einblína á stærri málefnin. Stærsti liðurinn í rekstrar- kostnaði FL Group í fyrra voru útgjöld í tengslum við stór yfir- tökuverkefni, svo sem í banda- rísku flugrekstrarsamstæð- unni AMR og stórar stöðutökur í öðrum erlendum stórfyrirtækj- um, svo sem í Commerzbank, sem sumar hverjar skiluðu ekki því sem sóst var eftir. Eins og áður hefur komið fram hóf FL Group að losa um stöður sínar bæði í AMR og Commerzbank þegar niðursveifla af hlutabréfa- mörkuðum komu fram af full- um þunga. Félagið beitti fyrir sig ýmsum vörnum, svo sem með skortsölu á hlutabréf í öðrum bandarískum flugfélögum til að verjast lækkun á gengi AMR. „Þetta voru aðeins erlend hluta- bréf sem við skortseldum, meðal annars í bandarískum,“ segir Jón. Yfirtökutilraunir á breska hug- búnaðarfyrirtækinu Inspired Ga- ming Group, sem gekk ekki eftir, setti sömuleiðis strik í reikning- inn. Yfirtökutilraunirnar skýra að mestu kostnað við fjárfest- ingar upp á 1,3 milljarða króna. „„Við vorum komin langt í ferl- inu og þá fellur til hár sérfræði- kostnaður ásamt öðru,“ segir Jón en bendir á að kostnaðurinn varð- andi AMR og breytinga á rekstri félagsins vegi þungt auk svip- aðra verkefna sem aldrei urðu opinber. „Það er ljóst að þetta var mjög sveiflukennt ár og mjög stórir póstar sem féllu til sem við reiknum ekki með að komi aftur.“ EKKI ÞÖRF FYRIR EINKAÞOTUR Þreifingar FL Group í Banda- ríkjunum og Evrópu í fyrra kröfðust mikilla ferðalaga landa á milli. Jón vill ekki gera mikið úr umræðum um einkaþotur, sem notaðar hafa verið í við- skiptaerindum víða um heim í nafni félagsins. „Í sumum til- fellum notuðu menn einkaþotur og hluti af kostnaðinum fellur til vegna slíkra ferða,“ segir Jón en áréttar að ekki hafi verið nauð- syn fyrir slíkar ferðir síðustu mánuðina. Aðspurður um framtíðina segir Jón: „Ég held að þegar við höfum siglt í gegnum þetta tíma- bil erfiðleika þá verðum við vel í stakk búin til að hagnast á því þegar markaðir jafna sig. Við erum að undirbúa skútuna fyrir framhaldið. Það er markmið 30 25 20 15 10 5 0 18. feb. 2005 19. feb. 200814. feb. 2006 1. mars 2007 G E N G I F L G R O U P F R Á 2 0 0 5 T I L 2 0 0 8 NÝR FORSTJÓRI SKOÐAR UPPGJÖRIÐ Jón Ásgeir Jóhannesson, stjórnarformaður FL Group, og Jón Sigurðsson forstjóri skoða uppgjörið á kynningarfundi í síðustu viku. MARKAÐURINN/ANTON FL Group hreinsar út fortíðardrauga fyrir framtíðina Fjárfestingarfélagið FL Group skilaði mesta tapi Íslandssögunnar á síðasta ári. Í kjölfar umfangsmikilla sviptinga á stærstu hlut- höfum félagsins í ólgusjó á fjármálamörkuðum leitaði félagið í var. Jón Sigurðsson, forstjóri FL Group, segir í samtali við Jón Aðalstein Bergsveinsson að rekstrarkostnaður verði skorinn niður og stoðirnar treystar til að nýta tækifærin sem hafi skapast. NÝTT ELDHÚS MEÐ BREYTTUM ÁHERSLUM Bergstaðastræti 37 s. 552 5700 holt@holt.is www.holt.is

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.