Fréttablaðið - 23.02.2008, Blaðsíða 10
10 23. febrúar 2008 LAUGARDAGUR
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
N1 VERSLANIR WWW.N1.IS
N1 býður úrval af legum og tengdum vörum
fyrir iðnað, bifreiðar og sjávarútveg. Hafðu
samband við fagmenn okkar í síma 440 1233.
LEGUR
Legur · Leguhús · Reimar · Tannhjól · Reimskífur
Pakkdósir · Sérverkfæri · Legufeiti
ostur.is
í nýjum og hentugri umbúðum
TAKTU ÞÁTT Í LUKKULEIK DALA FETA. VEGLEGIR VINNINGAR Í BOÐI.
MENNING Geir H. Haarde forsætis-
ráð herra opnar ljósmyndasýningu
Blaðaljósmyndarafélags Íslands í
Gerðarsafni í Kópavogi í dag.
Tæplega fjörutíu ljósmyndarar
eiga rúmlega 200 myndir á sýn-
ingunni, allar teknar í fyrra.
Bestu myndirnar í alls tíu flokk-
um verða verðlaunaðar, til dæmis
mynd ársins, fréttamynd ársins
og skoplegasta mynd ársins, auk
myndaraðar ársins.
Eins og áður kemur bókin Mynd-
ir ársins út samhliða sýningunni.
„Mér finnst ekki endilega
skipta höfuðmáli hver fær verð-
laun,“ segir Árni Torfason, for-
maður Blaðaljósmyndarafélags
Íslands.
„Þetta er tækifæri fyrir ljós-
myndara, aðallega þá fréttaljós-
myndara, til að sýna hvað þeir
hafa upp á að bjóða. Þetta ætti að
hvetja menn áfram, og þar af leið-
andi bæta myndir í blöðunum,“
segir Árni.
Fimm áttu sæti í dómnefnd sem
hafði það hlutverk að velja bestu
myndirnar í hverjum flokki.
Í ár voru sett takmörk á fjölda
mynda sem hver ljósmyndari
mátti senda, og segir Árni það
hafa skilað sér í því að ljósmynd-
arar hafi frekar valið myndir út
frá eigin forsendum í stað þess að
senda mikinn fjölda og láta dóm-
nefndina velja úr eins og áður.
Auk sýningar Blaðaljósmynd-
arafélagsins verður sýning Páls
Stefánssonar, XXV X2, á neðri
hæð Gerðarsafns.
Aðgangur að báðum sýningun-
um er ókeypis. - bj
Sýna myndir eftir tæplega 40 ljósmyndara:
Ljósmyndarar sýna
bestu myndir 2007
UPPSETNING Árni Torfason, formaður Blaðaljósmyndarafélags Íslands, hefur unnið
hörðum höndum undanfarið að því að setja upp sýninguna. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Í SUNDI Myndin er ein af þeim sem
finna má á sýningu Blaðaljósmyndarafé-
lags Íslands. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM