Fréttablaðið - 23.02.2008, Blaðsíða 36
[ ]
„Romantik“, stílhrein og rómantísk baðherbergislína úr postulíni, sem
saman stendur af sápudælu og tannburstaglasi. Verð 399 krónur. Fæst í
Rúmfatalagernum.
Hugmyndir að fallegu og vel heppn-
uðu baðherbergi.
Einn lykilþátturinn að fallegu og vel
heppnuðu baðherbergi er að velja innrétt-
ingar, áhöld, blöndunartæki og síðast en
ekki síst smáhluti af ýmsu tagi sem vinna
vel saman. Gildir þá einu hvort ætlunin
er að ná fram stílhreinni naumhyggju,
íburði eða asískum áhrifum. Oft þarf
til dæmis ekki meira en rétta
sápukarið, handklæðið, burstann eða
eitt logandi kerti til að vaskur-
inn og allt sem honum fylgir
taki á sig mynd hreinasta
helgiskrínis á snyrtingunni.
Fyrir þá sem hafa hug á því
eru hér nokkrir hlutir sem
gætu hentað til þess og
aldrei að vita nema hér sé að
finna þann sem setur
punktinn yfir i-ið. - rve
Lykilþáttur að fallegu baðherbergi er gott samspil innréttinga, áhalda, blöndun-
artækja og smáhluta.
Helgidómur heimilisins
Oxo sápuskammtari úr stáli og glæru
plasti neðst svo að það sjáist þegar
sápan er að klárast. Verð 2.250 krónur.
Fæst í Kokku.
VIPP sápuskammtari,
úr stáli og er hluti
af ruslafötulínu frá
VIPP, til í kremuðu,
hvítu, svörtu og stáli
og í árgangslitnum
hvert ár. Verð 8.500
krónur. Fæst í
Kokku.
Sápuskammtari úr
stáli á 1.035 krón-
ur. Fæst í BYKO.
Kerti úr versluninni
l´Occitane á Laugavegi.
Sápuskál, sem er hluti af baðfitt-
ingssetti sem inniheldur klósett-
rúlluhaldara, handklæðahring,
sápuskál, snaga og tannburstaglas.
Allt settið á 6.202 krónur. Fæst í
BYKO.
Leðursófa má einungis hreinsa með þartilgerðum
efnum sem skemma ekki leðrið. Forðast skal sápur og legi
sem leysa upp fitu svo sem uppþvottalögur og bensín.