Fréttablaðið - 27.02.2008, Page 1
Lífsstíll
Úrin eru
stöðutákn
16
Uppgjörsárið á enda
Aðhald fram
undan
6
Sögurnar... tölurnar... fólkið...
Miðvikudagur 27. febrúar 2008 – 9. tölublað – 4. árgangur Veffang: visir.is – Sími: 512 5000
F R É T T I R V I K U N N A R
Ingimar Karl Helgason
skrifar
„Við fylgjumst með því hvernig norræn skatt-
yfirvöld fá þessar upplýsingar. Við höfum auðvitað
alltaf áhuga á að fá upplýsingar, en það yrði aldrei
þannig að við myndum kaupa þær eins og þeir
gerðu í Þýskalandi,“ segir Bryndís Kristjánsdóttir
skattrannsóknarstjóri.
Fram kemur í norrænum fjölmiðlum að skattyfir-
völd í Finnlandi, Svíþjóð og Noregi hafi þegar haft
samband við þýsk stjórnvöld og óskað eftir að fá
upplýsingar um leynireikninga í Liechtenstein. Það
hafa yfirvöld í Hollandi einnig gert. Þá eru Danir að
undirbúa sams konar beiðni.
Skúli Eggert Þórðarson ríkisskattstjóri segir ekki
ólíklegt að málið verði rætt við norræn skatt-
yfirvöld. Þýsk stjórnvöld segjast hafa upplýsingar
um 1.400 leynireikninga í Liechtenstein. 600 þeirra
séu í eigu Þjóðverja en fólk af öðru þjóðerni eigi
hina reikningana 800. Talið er að á fimmta þúsund
manns tengist reikningunum.
Dæmi mun vera um að Íslendingur hafi geymt
eignir í Liechtenstein með svipuðum hætti.
Grunur er um að auðmenn hafi fært þangað fé til
að fela fyrir skattyfirvöldum. Der Spiegel segir að
milljarðar evra hafi farið framhjá skattyfirvöldum
í Þýskalandi með þessum hætti. Tveir bankar í smá-
ríkinu séu nú til rannsóknar. Thorsten Albig, tals-
maður þýska fjármálaráðuneytisins, segir í sam-
tali við Financial Times, að þýsk yfirvöld séu til-
búin til að veita upplýsingar. Ekki verði óskað eftir
greiðslu fyrir þær.
„Við höfum ekkert ákveðið í málinu og okkur hafa
ekki verið boðnar upplýsingarnar,“ segir Bryndís
Kristjánsdóttir. „Þegar þar að kemur kunnum við
að óska eftir þeim á grundvelli tvísköttunarsamn-
inga við önnur Norðurlönd og Þýskaland.“
Björn Þorvaldsson, aðstoðarsaksóknari hjá efna-
hagsbrotadeild Ríkislögreglustjóra, segir að málið
sé af því taginu að deildin og skattrannsóknarstjóri
gætu átt um það samstarf. „Það er ekki komið svo
langt, en ég útiloka ekki að efnahagsbrotadeildin
muni taka þátt í því.“
Liechtenstein er á lista OECD yfir ósamvinnu-
þýðar skattaparadísir.
Íslensk skattyfirvöld
vilja leyniupplýsingar
Þýsk yfirvöld vilja deila upplýsingum um leynireikninga í Liechtenstein.
Skattrannsóknarstjóri íhugar að leita til þýskra eða norrænna yfirvalda.
Tíma - og verkskráning
Flotastýring og eftirlit
www.trackwell.com
Kosið verður um aflagningu Fé-
lags íslenskra stórkaupmanna
(FÍS) á aðalfundi félagsins 7.
mars og um samninga við Samtök
verslunar og þjónustu (SVÞ) um
stofnun nýrra heildarsamtaka.
„Ég get staðfest að fram kom
lagabreytingartillaga fyrir lok
tilskilins frests,“ segir Andrés
Magnússon, framkvæmdastjóri
FÍS. Til þess að tillagan nái fram
að ganga þarf stuðning tveggja
þriðju atkvæða.
Tillöguna leggja fram Pétur
Björnsson, stjórnarformaður Ís-
fells og fyrrverandi formaður
FÍS, og Margrét Kristmanns-
dóttir, framkvæmdastjóri PFAFF
og formaður Félags kvenna í at-
vinnurekstri, en hún er fyrrver-
andi varaformaður FÍS.
Viðræður um sameiningu fé-
laganna höfðu staðið um nokk-
urt skeið í haust, en voru lagð-
ar til hliðar þegar ekki náðist
einhugur í stjórn FÍS um stefn-
una. Tillaga Péturs og Margrétar
kemur því málinu aftur á dag-
skrá. „Við töldum málið komið
það langt að okkur þótti rétt að
leggja þetta fyrir félagsmenn,“
segir Margrét og telur mikinn
stuðning við stefnuna í félaginu.
„Margir sjá hér tækifæri til að
búa til langþráðan vettvang, þar
sem fyrirtæki í verslun í landinu
geta sameinast í einu hagsmuna-
gæslufélagi. Það hefur alltaf
staðið okkur nokkuð fyrir þrifum
og veikt okkur gagnvart ýmsum
aðilum, svo sem hinu opinbera, að
við höfum ekki borið gæfu til að
koma fram sem ein heild,“ segir
hún og telur skiptingu félaganna
í raun leifar frá fyrri tíð. „Núna
teljum við bara að að það sé svo
miklu meira sem sameinar okkur
en sundrar.“ - óká
Stórkaupmenn kjósa um framtíðina
„Við eigum ekki þessi bréf og
við viljum ekki eiga í keppinaut-
um,“ segir Jonas Torp, talsmaður
Danske bank.
Fram kom í Fréttablaðinu fyrir
helgi að nafn bankans kæmi fyrir
meðal stærstu hluthafa margra
íslenskra félaga, eins og FL
Group, Exista og SPRON. Glitnir
og Bakkavör munu einnig vera í
þessum hópi.
Jonas neitar að svara því hvort
hugmyndin sé að skortselja bréf-
in. „Mér finnst rétt að taka það
fram að Danske bank hefur ekki
í hyggju að skaða einn eða neinn.
Við bara kaupum og seljum eins
og viðskiptavinir okkar bjóða
hverju sinni.“ - ikh
Danske bank
á ekki bréfin
DANSKE BANK Neita því að eiga íslensku
bréfin sjálfir.
Skífubreytingar | Verslun Skíf-
unnar í Smáralind verður lokað nú
um mánaðamótin. Um leið verður
sala á tónlist í verslunum BT færð
undir nýtt merki Skífunnar Ex-
press. Þá er áformað að opna fyrir
sumarið „tónlistarkaffihús” tengt
Skífunni á Laugavegi.
Kaupa Vogabæ | Mjólka hefur
fest kaup á matvælafyrirtæk-
inu Vogabæ, sem er einna þekkt-
ast fyrir Vogaídýfurnar. Mjólkur-
stöð Mjólku hefur í kjölfarið verið
flutt í verksmiðjuhúsnæði Voga-
bæjar í Hafnarfirði.
Yfirtökur skoðaðar | Alfesca
skoðar um þessar mundir yfir-
töku á matvælafyrirtæki í Evr-
ópu, að sögn Xaviers Govare,
forstjóra félagsins. Hann vill þó
ekki segja til um hvenær frekari
fregna af henni sé að vænta. Þá
segir hann hugsanlegt að Alfesca
kaupi dreifingarfyrirtæki á Ítalíu
á árinu.
Sækja um leyfi | Viðskiptabönk-
um landsins fjölgar, gangi eftir
fyrirætlanir VBS fjárfestingar-
banka. Á aðalfundi bankans fyrir
helgi samþykktu hluthafar hans
að sótt verði um viðskiptabanka-
leyfi til Fjármálaeftirlits, VBS til
handa.
Lækkar um helming | Laun Lár-
usar Welding, forstjóra Glitnis,
lækka um helming, samkvæmt
ákvörðun sem hann tók sjálf-
ur. Hann lækkar úr 5,5 milljón-
um króna á mánuði í tæplega
2,8 milljónir. Lárus vill ganga á
undan með góðu fordæmi í því
erfiða umhverfi sem nú ríkir.
Kauphallarsveiflur
Fjármálakreppa í
netbólustærð
8-9