Fréttablaðið - 28.02.2008, Blaðsíða 35
Blómstrandi prímúlur, bleikar
orkídeur, ásamt begóníum,
pottakrísi og ástareldi í páska-
litunum eru það heitasta í
pottablómum til heimilisyndis.
„Nú eru páskar í nánd og þá verð-
ur allt með gulum blæ mjög vin-
sælt, hvort sem það eru páskalilj-
ur í pottum eða aðrar blómstrandi
plöntur í gulum lit,“ segir Ásdís
Ragnarsdóttir, garðyrkjufræðing-
ur í Blómavali, innt eftir því vin-
sælasta í pottablómum nú.
„Viðhorf til blómstrandi potta-
plantna hefur breyst frá því sem
áður var. Í nútímaþjóðfélagi hafa
fáir nennu til að dekra við blóm
svo þau dugi til heimilisprýði
árum saman. Þótt kreppi að, og
einnota hugsunarháttur hverfi, er
ég ekki viss um að Íslendingar
geri kröfu um langlífi pottaplantna
á ný, því blóm eru svo ódýr í dag,“
segir Ásdís þar sem hún velur sér
mold til umpottunar.
„Pottablóm eru mörg mjög við-
kvæm í umönnun og þau sem eru
dugleg að blómstra þurfa mikla
birtu og vatn. Nú fer sá tími í hönd
að umpotta, en blóm þurfa ump-
ottun á tveggja til þriggja ára
fresti. Stundum er nóg að setja
nýja mold ofan á og blómin í stærri
pott til að fá ferskleika í moldina.
Einnig er mikilvægt að gefa blóm-
um áburð frá og með næstu mán-
aðamótum og fram í september,“
segir Ásdís, en áburður virkar
eins og vítamín á blóm.
„Án áburðar kemur upp köfnun-
arefnisskortur í plöntuna og blöð
missa græna litinn. Á þessu flaska
margir en gott er að gefa áburð
hálfsmánaðarlega fyrsta kastið og
svo vikulega til haustsins.“
Eins og blómstrið eina
Bridge / eik, kirsuber Steve / kirsuber, beyki
Donna
kirsuber, beyki, mahóniSolo / kirsuber
www.eirberg.is 569 3100 Stórhöfða 25
Betra loft
betri líðan
Airfree lofthreinsitækið
Eyðir ryki og gæludýraflösu
Eyðir bakteríum, ólykt og myglu
Er hljóðlaust og viðhaldsfrítt
Hæð aðeins 27 cm
Bylting fyrir bakið
Styrkir magavöðvana
Frelsi í hreyfingum
Fæst í ýmsum litum
Swopper
vinnustóllinn
Járn & Gler ehf. - Skútuvogur 1h.
Barkarvogsmegin. - 104 Reykjavík
S: 58 58 900. www.jarngler.is
Færanleg og mjög
hljóðlát loftpressa.
Afkastar 50L/min og 8.bar/116 psi.
24 Lítra kútur. Vegur aðeins 27.kg.
B:40cm x D:40cm x H:60cm
Járn & Gler ehf. - Skútuvogur 1h.
Barkarvogsmegin - 104 Reykjavík
S: 58 58 900-www.jarngler.is
Rafknúnir hurðaropnarar
Áratuga reynsla og þjónusta.
Gerum tilboð í uppsetningu.
Hentar fyrirtækjum og húsfélögum.
Tengjanlegt við flestar gerðir af rofum og skynjurum.