Fréttablaðið - 29.02.2008, Blaðsíða 80
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
BAKÞANKAR
Þórgunnar
Oddsdóttur
Í dag er föstudagurinn
29. febrúar, 60. dagur ársins.
8.37 13.40 18.44
8.27 13.25 18.24
Í nýlegri sjónvarpsauglýsingu frá 66 gráðum norður situr ungur
strákur við útvarpið að morgni dags
og hlustar spenntur á þulinn lesa
upp nöfn þeirra skóla þar sem
kennsla fellur niður vegna veðurs.
Það er ekki oft sem ég verð meyr
yfir auglýsingum en þessi kallar
fram svo notalegar tilfinningar að
ég gæti horft á hana aftur og aftur.
Mér finnst litli strákurinn vera ég
sjálf við eldhúsborðið heima fyrir
allt of mörgum árum síðan og heyri
í anda röddina í útvarpinu þylja upp
nöfn skólanna á svæðinu uns hún
nefnir loksins Þelamerkurskóla í
Hörgárdal – skólann minn.
Í minningunni jafnast þetta andar-
tak næstum því á við það þegar
klukkan slær sex á aðfangadags-
kvöld og þulurinn segir gleðileg jól.
(Merkilegt hvað útvarpsþulir geta
veitt manni mikla gleði.) Ekki það
að mér hafi leiðst í skólanum. En
skemmtilegur skóladagur jafnast
seint á við sæluna sem fylgir því að
staulast á fætur í kolniðamyrkri,
heyra stórhríðina bylja á gluggun-
um og fá síðan leyfi, í útvarpi allra
landsmanna, til þess að skríða aftur
undir hlýja sæng.
Einhverra hluta vegna er sú mýta
lífseig að Íslendingar séu hraust-
menni sem láta veðrið ekki á sig fá.
Við grípum jafnan til hennar sjálf
þegar útlendingar spyrja hvort það
sé ekki óskaplega kalt á Íslandi.
Fyrst reynum við að sjálfsögðu að
sannfæra viðkomandi (og í leiðinni
okkur sjálf) um að veðrið hér sé
bara alveg bærilegt og minnumst
ekki einu orði á þá staðreynd að fáar
þjóðir kvarta jafn mikið undan veðr-
inu og við. Ef viðmælandinn er tor-
trygginn drepum við efasemdirnar
með því að dásama dug íslenskra
víkinga sem arka af stað út í daginn
hvort sem það er sólskin eða bylur.
Kannski stafa þessar ranghugmynd-
ir af reynsluleysi. Sannleikurinn er
nefnilega sá að fæst höfum við hug-
mynd um hvernig veðurfar er hér á
landi. Í þau fáu skipti sem við hætt-
um okkur út undir bert loft er það
aðeins til þess að setjast upp í heit-
an bíl, helst einn af þessum ótelj-
andi jeppum sem engin þjóð á jafn
mikið af.
MIG grunar að víkingunum for-
feðrum okkar, þessum sem við erum
svo gjörn á að bera okkur saman
við, þætti dugur okkar heldur lítill
þar sem við sitjum föst í snjóskafli
á Miklubrautinni á nýja Landkrús-
ernum okkar og bölvum því að þurfa
að fara út og skafa. Hinn íslenski
víkingur er nefnilega ekki dugmeiri
en svo að innst inni óskar hann þess
einskis heitar en að röddin í útvarp-
inu gefi honum leyfi til þess að fara
heim og breiða upp fyrir haus.
Innipúkar
í afneitun
WWW.UU.IS
ÚRVAL-ÚTSÝN ~ LÁGMÚLA 4 ~ 108 REYKJAVÍK ~ SÍMI 585 4000 ~ FAX 585 4065 ~ INFO@UU.IS
JURYS INN - PARNELL STREET
Gott hótel sem er við O’Connel St. og Henry St., sem er
ein aðal verslunargata borgarinnar. Hið lífl ega Temple
Bar hverfi er í göngufæri við hótelið.
Verðdæmi: 53.800,-
á mann í tvíbýli með morgunverði, 27. - 30. mars
Verðdæmi: 49.900,-
á mann í tvíbýli með morgunverði, 27. - 30. mars
Hótelið sameinar nútíma og klassík á skemmtilegan hátt.
Það er vel staðsett við Merrion Square í hjarta borgar-
innar, örskammt frá Trinity College, Grafton St. og
Stephens Green garðinum.
O’CALLAGHAN ALEXANDER
Ferðaskrifstofa
Leyfishafi
Ferðamálastofu
Innifalið: Flug, flugvallarskattar, íslensk fararstjórn og gisting með morgunverði. Verð miðast við að
bókað sé á netinu. Ef bókað er á skrifstofu eða símleiðis er bókunargjald 2.500 kr. fyrir hvern farþega.
Írar eru vingjarnlegir og þekktir fyrir að
taka vel á móti gestum og hafa íslenskir
ferðamenn verið sérstaklega velkomnir
í Dublin. Í miðborginni er lífl egt um að
litast, þjóðlagatónlist ómar frá börum
og fjölbreytt verk eru á fjölum leikhúsa.
Úrval sérverslana og vöruhúsa er í
borginni en rétt utan við hana er ný
verslunarmiðstöð. Í matar-
menningu er Dublin komin
í hóp heimsborga og
enginn má missa af því
að heimsækja ekta írskan
pöbb og kneyfa ölið með
heimamönnum.
Njóttu frídaganna í lítilli stórborg
Dublin
20.-24. mars (páskar)
27.-30. mars
24.-27. apríl (24. apríl er frídagur)
1.-5. maí (1. maí er frídagur)