Fréttablaðið - 01.03.2008, Blaðsíða 78
1. mars 2008 LAUGARDAGUR
GÓÐ VIKA / SLÆM VIKA
HELGARKROSSGÁTAN
99
k
r.
sm
si
ð
Dæmi hvernig SMS gæti litið út ef svarið er Jón:
Þá sendir þú SMS-ið: JA LAUSN JON
Þú gætir unnið
The Simpsons Game
á PS2!
Þú sendir SMS skeytið
JA LAUSN LAUSNARORÐ
á númerið 1900!
Leystu
krossgát
una!
Lausn krossgátunnar er birt að viku liðinni á vefnum, www.this.is/krossgatur
... Ómar R. Valdimarsson
Ómar er ekki aðal rasisti blogg-
heima, heyriði það! Ekki! Aðal!
Rasisti!
Blogg-
heima! Að
vinna mál
gegn blönk-
um kvik-
mynda-
gerðarmanni
hlýtur að
vera unaðs-
leg tilfinn-
ing og ekki
síðri er að
reka oní
hann galgopaleg ummæli af lítt
lesinni bloggsíðu og fá funheitan
300.000 kall fyrir ómakið. Nú
hefur héraðsdómur sett æðislegt
fordæmi og það er um að gera að
allir séu nú kurteisir í tali og
skrifum eins og guðhræddir kór-
drengir. Heyrirðu það, Össur!?
... Kristján L. Möller
Bæjarstjórinn í Kópavogi býður
ekki hverjum sem er í kaffi og
vínarbrauð, hvað þá með aðsendri
grein í Mogg-
anum. Sam-
gönguráð-
herra varð
þessa heiðurs
aðnjótandi í
vikunni og
þaut eins og
byssubrennd-
ur í Kópavog-
inn eftir að
hann sá boðs-
kortið. Félagarnir göntuðust og
ræddu samgöngumál í Kópavogi
yfir vínarbrauðsmaulinu.
... Friðrik Ómar
Það sem átti að vera frábær vika
– ef ekki besta vika allra tíma –
varð einhvern veginn
hálf volg, þegar Frið-
rik Ómar lagði á
flótta með ummæli
sín um tunnuna tómu.
Það var eitthvað sem
honum mislíkaði og
varð til þess að hann
varpaði fram máls-
hættinum í hita augnabliksins,
eins og dularfull véfrétt. Meðlimir
og umboðsmaður Merzedes Club
eru helst á því að tunnan tóma sé
þeirra og fór nokkuð púður í vik-
unni í að ræða þetta mál. Nú er
hins vegar bara að spýta í lófana,
rúlla tómu tunnunni út af dægur-
málasviðinu og takast á við það
sem öllu máli skiptir – sigurinn í
Belgrad!
... Þorberg Aðalsteinsson
Þorbergur Aðalsteinsson fór mik-
inn í sjónvarpsþættinum Utan
vallar á Sýn þar sem hann sagði
að tveir af hugsanlegum kandíd-
ötum HSÍ í landsliðsþjálfara-
starfið, þeir Aron Kristjánsson og
Dagur Sigurðsson, þyrðu ekki að
taka við „strákunum okkar“. Þor-
bergur var síðan sagður hafa
mætt ölvaður í útsendinguna og
HSÍ sendi í kjölfarið frá sér yfir-
lýsingu þar sem orð hans voru
hörmuð enda hefði hann brotið
trúnað. Síðar kom í ljós að Dagur
vildi alveg taka við landsliði, bara
ekki því íslenska heldur því austur-
ríska sem heldur EM árið 2010.