Fréttablaðið - 03.03.2008, Page 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 512 5000
MÁNUDAGUR
3. mars 2008 — 62. tölublað — 8. árgangur
VEÐRIÐ Í DAG
Engin fasteignasala í heimi selur fleiri fasteignir en RE/MAX
Dorothea E.
Jóhannsdóttir
Sölufulltrúi
898 3326
dorothea@remax.is
Bergsteinn
Gunnarsson
Löggiltur Fasteigna
fyrirtækja og skipasali
Ertu að spá í að selja?
Frítt söluverðmat
FRAMÚRSKARANDI SÖLUFULLTRÚAR FRAMÚRSKARANDI ÁRANGUR
28. febrúar
til 9. mars
Opið 10–18
alla daga
Smiðjuvegi 76 • Kópavogi
Baldursnesi 6 • Akureyri
Mikið úrval af
upphengdum salernum
Opið virka daga frá 8 -18
laugardaga frá10 -15
tengi.is
Alþjóðahús opn-
að á Akureyri
Framandi menning í
æð.
TÍMAMÓT 18
Í leikriti með
hundinum
Ragnheiður Elín Clau-
sen leikur í franska
leikritinu L´effet de
Serge ásamt hund-
inum sínum.
FÓLK 30
FASTEIGNIR
Gólfhiti og mikil
lofthæð
Sérblað um fasteignir
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG
3. MARS 2008
Fasteignasalan Ás í Hafnarfirði er með í sölu sérlega glæsilegar og vandaðar íbúðir á Norður-bakkanum í Hafnarfirði.
Allar íbúðirnar eru með gólfhita með sér hitastýr-ingu fyri hvert rými. Stórir ál/tré gluggar eru í íbúð-unum og rennihurðir út á lóð eða svalir. Allar sval-ir verða flísalagðar en verandir á fyrstu hæð verða úr fúavörðu lituðu timbri. Halogen lýsing er í loftum frá Lumex en sérstaklega hátt er til lofts í öllum íbúð-um en þær eru frá 94 fm 3ja herbergja og upp í 137 fm 4ra herbergja. Stæði í bílageymslu fylgir öllum íbúðunum.
Í eldhúsi verða sérlega vandaðar innréttingar frá Designe og tæki frá EGG. Vönduð stál tæki og ker-amik helluborð og Sjónvarpsdyrasími. Stutt er í góð útivistarsvæði í grennd við húsið auk þess sem suð-urbæjar sundlaugin er í göngufæri í miðbæ Hafnar-fjarðar þar sem er blómleg verslun og veitingastað-ir.
Húsið stendur á góðum og stað á Norðurbakkanum og njóta flestar íbúðirnar sjávarútsýnis
Húsið er uppsteypt á hefðbundinn hátt klætt báru-formaðri klæðningu og filthúðað með lituðu stein-lími. Mikil hljóðeinangrun er á milli hæða því ofan á hefðbundna plötu koma gólfhitalagnir steyptar í trefjasteypu.
Verðið er frá 26,7 milljónum.
Þrjár fullbúnar sýningaríbúðir eru í húsinu ofólk
Gólfhiti og mikil lofthæð
Hægt er að skoða sýningaríbúðir í dag milli kl 16 og 18.
Glæsilegt fjölbýli við Norðurbakka í Hafnarfirði.
fasteignir
Víkurhvarf 7, 110 ReykjavíkVerð frá 27.300.000 kr.
STÓRGLÆSILEGT VERSLUNAR- OG SKRIFSTOFUHÚSNÆÐI Á FRÁBÆRUM STAÐ !
699 6165 899 0800 8200 301 661 7788
892 2982
661 6056
Eir
660 6085 895 8518
Verðmetum frítt fyrir þig!
Hringdu núna 699 6165
FÓLK Ljósmyndarinn Jón Páll
Vilhelmsson starfaði fyrir
tískuhönnuðinn Giorgio Armani á
síðasta ári. Hann myndaði
fjölmargar tískulínur hönnuðarins
fyrir svokallaðar „lookbooks“ sem
dreift er til hugsanlegra kaupenda.
Jón Páll segist ekki hafa áttað
sig á því hversu stórt fyrirtækið
væri áður en hann tók við starfinu.
„Armani er með svo margar
mismunandi línur. Það er Giorgio
Armani, Armani Collezione,
Emporio Armani, Armani Casa,
sem er húsgagnalína, og svo má
lengi telja,“ segir hann.
- sun / sjá síðu 30
Vann hjá ítölskum tískukóngi:
Myndaði fyrir
Giorgio Armani
HÍBÝLI – BAÐ
Bra bra í baðið
Sérblað um baðherbergi
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG
híbýli - baðherbergiMÁNUDAGUR 3. MARS 2008
STÖKU ÉL Í dag verður fremur hæg
norðaustlæg eða austlæg átt. Bjart
með köflum vestanlands annars
skýjað og stöku él. Dálítil snjókoma
síðdegis allra syðst á landinu. Frost
0-8 stig mildast syðst.
VEÐUR 4
-6 -6
-5
-1-3
Þraskallar og broskallar
Bloggarinn er að bjóða inn til sín,
bjóða fólki að deila áhugamálum
og skoðunum – og tilfinningum,
skrifar Guðmundur Andri Thorsson.
Í DAG 16
STJÓRNMÁL Viðbúið er að ríkis-
sjóður verði af tugum milljarða
miðað við stöðuna eins og hún var
áður en lækkanir hófust.
Frá því hlutabréf tóku að lækka
vegna óróa á fjármálamörkuðum
síðastliðið haust hefur verðmæti
íslenskra hlutafélaga rýrnað um
meira en 1.300 milljarða.
Tekjur ríkisins af fyrirtækja-
skatti námu rúmlega 32 milljörðum
árið 2006 en samkvæmt bráða-
birgða tölum fjármála ráðu neytis ins
er gert ráð fyrir rúmlega 35 millj-
örðum fyrir árið 2007. Tekjur af
fjármagnstekjum námu 23,7 millj-
örðum árið 2006 en samkvæmt
bráðabirgðatölum er gert ráð fyrir
rúmlega 25 milljörðum árið 2007.
Gunnar Svavarsson, formaður
fjárlaganefndar Alþingis, segir
fjárlaganefnd og efnahags- og við-
skiptanefnd fylgjast vel með
ástandi á mörkuðum vegna mögu-
legra áhrifa á næstu fjárlög. „Það
liggur ljóst fyrir að ríkið tapar
tekjum sem það hefði annars
fengið, ef ekki hefði komið til
þessarar niðursveiflu,“ segir
Gunnar.
Í endurskoðaðri þjóðhagsspá
fjármálaráðuneytisins frá því í
janúar er sérstaklega tekið fram
að búast megi við því „að þróun á
síðasta ársfjórðungi hafi einhver
áhrif til lækkunar“ á tekjur ríkis-
ins vegna fyrirtækja- og fjár-
magnstekjuskatts.
Friðrik Már Baldursson, prófess-
or við viðskiptadeild Háskólans í
Reykjavík, segir ríkissjóð augljós-
lega verða af miklum tekjum vegna
lækkana á mörkuðum. Hann telur
ríkisstjórnina þurfa að einbeita sér
að því að halda stöðugleikanum
þrátt fyrir sveiflur á mörkuðum.
„Það liggur fyrir að hagnaður til að
mynda bankanna minnkar í niður-
sveiflunni. Við það minnka tekjur
ríkissjóðs. Það sem gildir í ríkis-
fjármálum er að halda jafnvægi og
láta ekki sveiflur markaðarins hafa
of víðtæk áhrif, miðað við þær
áætlanir sem unnið er eftir.“ - mh
Verðfall hlutabréfa
kostar ríkið milljarða
Ríkissjóður verður af miklum tekjum vegna lækkana á mörkuðum. Fyrirtæki í
kauphöllinni hafa rýrnað um rúmlega 1.300 milljarða frá því lækkanir hófust.
BANDARÍKIN, AP Meðlimir vélhjóla-
samtakanna Vítisengla, Hells
Angels, áformuðu að drepa Mick
Jagger, söngvara Rolling Stones,
árið 1969. Þetta kemur fram í
viðtali BBC við Mark Young,
fyrrverandi liðsmann bandarísku
alríkislögreglunnar FBI.
Young segir svo frá að Vítis-
englar hafi ætlað að ná til Jaggers
á heimili hans á Long Island. Þeir
vildu hann feigan eftir að Jagger
sór að að ráða þá aldrei til gæslu-
starfa á tónleikum eftir dauða
átján ára aðdáanda á tónleikum
Rolling Stones í Norður-Kaliforníu.
Bát Vítisengla hvolfdi þegar þeir
reyndu að ná til heimilis Jagger
sjóleiðina. Þeir komust í land en
hættu við morðtilraunina. - rat
Vítisenglar árið 1969:
Vildu ráða
Jagger af dögum
MICK JAGGER Lenti á svörtum lista
Vítisengla. NORDICPHOTOS/AFP
HVAÐ UNGUR NEMUR GAMALL TEMUR – EÐA ÖFUGT? Hún var ekki ýkja löng, skákin sem úkraínska undrabarnið Illya Nyzhnyk og
Bjarni Magnússon tefldu á blaðamannafundi fyrir Alþjóðlega skákhátíð sem hefst í Reykjavík í dag. Bjarni tefldi illa að eigin sögn,
enda vissi hann ekki að til stæði að ljúka skákinni, og beið ósigur fyrir vikið. Ungir skáksnillingar frá Indlandi fylgjast með. Sjá síðu 6
Íslendingar á flugi í
Meistaradeildinni
Íslendingaliðin GOG
og Gummersbach
unnu leiki sína í
Meistaradeildinni
í gær.
ÍÞRÓTTIR 24
RÚSSLAND, AP Vladimír Pútín Rússlandsfor-
seti og sá sem hann valdi í það hlutverk að
bjóða sig fram til að verða eftirmaður hans í
embætti, Dmítrí Medvedev, sögðu báðir í
gærkvöld að sigur Medvedevs, sem þótti ljós
strax og fyrstu tölur úr talningu atkvæða
voru birtar, tryggði að Rússland héldi áfram
á þeirri braut sem Pútín hefði markað.
Þeir Pútín og Medvedev ávörpuðu mann-
fjölda sem safnast hafði saman til að hylla þá
og hlýða á tónleika á Rauða torginu í gær-
kvöld. Er um þriðjungur atkvæða hafði verið
talinn var Medvedev með yfirgnæfandi
meirihluta. Tveir helstu keppinautar Medved-
evs, kommúnistinn Gennadí Sjúganov og
þjóðernissinninn Vladimír Zjírínovskí, voru
hins vegar fljótir að lýsa efasemdum um að
kosningarnar hefðu farið rétt fram.
„Það lítur út fyrir að þetta séu ekki
kosningar heldur krýning skipaðs forseta,“
hafði Interfax-fréttastofan eftir Zjírínovskí.
„Þetta vekur ekki bara mér heldur öllum
borgurum Rússlands viðbjóð,“ sagði hann.
Opinber úrslit verða tilkynnt í dag. Gert er
ráð fyrir að nýr forseti verði settur í embætti
7. maí næstkomandi. - aa
109 milljónir Rússa voru í gær kallaðar að kjörborðinu til að kjósa nýjan forseta:
Medvedev sigraði örugglega
DMÍTRÍ MEDVEDEV
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/STEFÁ
N