Fréttablaðið - 05.03.2008, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
„...fyrst á visir.is“
...ég sá það á visir.is
Sími: 512 50005. mars 2008 — 64. tölublað — 8. árgangur
HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA GRÆJUR ATVINNA TILBOÐ VINNUVÉLAR O.FL.
HVER ER ÞAR?Dyrabjöllur og dyrasímar hafa tekið stakkaskiptum síðustu ár og margt nýtt er í boði.
HEIMILI 3
Í MÖRGU AÐ SNÚASTÓsk Hoi Ning syngur og spilar bæði á selló og píanó. Henni finnst líka gaman að baka.
BÖRN 4
Reynir Berg Þorvaldsson, sagnfræðingur og einn
af forsvarsmönnum verkefnisins Jól í skókassa,
fór um áramótin í ógleymanlega ferð til Úkra-
ínu.
Skókassaverkefnið hefur verið starfrækt frá árinu
2004. Það felur í sér að hér á landi er safnað leikföng-
um og fötum sem eru sett í skókassa og send til
fátækra barna. Til stóð að þdaga f ð Ú
blokkirnar ógurlegu og endalaust af spilavítum. Það
virðist enginn skortur á spilavítum í Úkraínu og
spilafíkn er mikið vandamál,“ útskýrir Reynir Berg.
Á öðrum degi var farið á munaðarleysingjaheimili
og í fangelsi. Í fangelsinu hitti hópurinn fyrir fimm-
tán fanga í fangelsiskapellunni og fengu þeir pakka
en sumir þeirra höfðu aldrei fengið gjöf
„Þeir voru ekki íð
Fangarnir grétu af gleði
SSR. Fáanlegt í 35”-38”, 15”-18” felgur.
IROK. Fáanlegt í 33”
Reynir Berg mun seint gleyma heimsókn sinni í fangelsið þar sem aðstæður voru afar bágbornar.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
VEÐRIÐ Í DAG
REYNIR BERG ÞORVALDSSON
Færði rúmenskum
börnum jól í skókassa
ferðir bílar heimili börn
Í MIÐJU BLAÐSINS
KÓPAVOGUR
Píanóleikarinn Jónas Ingi-
mundarson er Kópavogsbúi
Sérblað um Kópavog
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG
Ég vil hvergi annars staðar
vera en í sveitinni
Þórey Bjarnadóttir er
fyrsti kvenstjórnandi
Búnaðarsambands
Austur-Skaftafellssýslu.
TÍMAMÓT 18
EDDA OPNAR Edda Guðmundsdóttir opnaði myndlistarsýningu á Geysir Bistro við Aðalstræti í gær. Hún naut dyggrar aðstoðar
eiginmanns síns, Steingríms Hermannssonar fyrrverandi forsætisráðherra, og barna, Hlífar og Guðmundar, við uppsetninguna.
Steingrímur er liðtækur með hamarinn en hann rammar inn allar myndir konu sinnar. Sjá nánar síðu 30. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
EFNAHAGSMÁL „Það hlýtur að telj-
ast óviðunandi frá jafnræðis-
sjónarmiði og skaðlegt öllu skatta-
siðferði að þeir sem til þess hafa
vilja og aðstöðu geti sniðgengið
íslenska hagsmuni svo freklega
sem þeim sýnist,“ segir Indriði H.
Þorláksson, hagfræðingur og fyrr-
verandi ríkisskattstjóri, í grein
sem hann birtir á vefsíðu sinni.
Þar greinir hann frá athugun
sinni á eignarhaldi skráðra
íslenskra félaga og kemst að því
að næstum þriðjungur af erlendu
eignarhaldi sé í raun á hendi
Íslendinga. „Þetta fyrirkomulag
hefur veruleg áhrif til lækkunar á
skatttekjum hér á landi af starf-
semi þessara fyrirtækja og þeirra
fyrirtækja sem þau eiga og starf-
rækja, hvort sem er hér á landi
eða erlendis,“ segir Indriði. Veru-
legur hluti af hagnaði af starfsemi
þeirra hér renni úr landi.
Stór hluti eignarhalds í Kaup-
þingi, Glitni, Landsbanka, Straumi,
Exista og mörgum fleiri fyrir-
tækjum er með þessum hætti. Þar
eru stærstu hluthafar alla jafna
félög í eigu Íslendinga, sem skráð
eru í Lúxemborg eða Hollandi.
Könnun Indriða leiðir í ljós að í
þeim helmingi Kauphallarfélaga
þar sem erlent eignarhald er hlut-
fallslega mest eru yfir fimmtíu
prósent í erlendri eigu.
Af þeim helmingi eru tæp fjöru-
tíu prósent geymd í félögum sem
skráð eru í Lúxemborg, annað eins
í Hollandi og yfir tíu prósent á
svonefndum aflandssvæðum, eða
skattaparadísum.
Sé miðað við markaðsvirði allra
fyrirtækja í Kauphöllinni í upp-
hafi vikunnar er virði þeirrar
eignar sem geymd er í Hollandi,
Lúxemborg og í skattaparadísum
hátt í 500 milljarðar króna.
„Tilsvarandi hluti af tekjum og
hagnaði af starfsemi félaganna
fellur til aðila erlendis sem greiða
skatta þar eða sæta engri eða lítilli
skattlagningu ef hann er í vafa-
sömu skattaumhverfi,“ segir Ind-
riði. Fram kemur í greininni að í
Lúxemborg sæti erlendir aðilar
sem fá tekjur að utan svo til engri
skattlagningu, auk þess sem afar
takmarkaðar upplýsingar fáist
þaðan um félög og eigendur þeirra.
Sama eigi við um skattaparadís-
irnar.
Indriði bendir einnig á að sumar
fyrrverandi nýlendur Hollands séu
skattaparadísir. Þær njóti þeirrar
sérstöðu að auðvelt sé að færa
þangað óskattlagt fé frá Hollandi.
Samkvæmt yfirliti Seðlabank-
ans um erlenda fjármunaeign hér
á landi í hitteðfyrra voru fimm
milljarðar skráðir á Bresku Jóm-
frúaeyjum, 56 milljarðar á
Guernsey, ellefu milljarðar í Sviss,
178 milljarðar í Lúxemborg og 211
milljarðar í Hollandi.
- ikh / sjá Markaðinn
Hundruð milljarða geymd
í vafasömu skattaumhverfi
Fyrrverandi ríkisskattstjóri segir skaðlegt að íslenskir hagsmunir séu sniðgengnir með því að fé sé fært úr
landi. Hátt í fimm hundruð milljarðar króna séu geymdir í Lúxemborg, Hollandi og skattaparadísum.
28. febrúar til 9. mars
Opið 10–18 alla daga
Rangur dómur
„Lýðræðisleg umræða er dónaleg
í huga þeirra sem vilja heldur hafa
sitt vald í friði,“ skrifar Haukur Már
Helgason um nýfallinn meiðyrða-
dóm.
UMRÆÐAN 16
Á hraðri uppleið
Íslensk hljómsveit
vinnur með níföldum
Grammy-verðlauna-
hafa.
FÓLK 30
kópavogur Gleði í SalalaugBörn og fullorðnir skemmtu sér og slökuðu á í Salalaug á dögunum. BLS. 7
MIÐVIKUDAGUR 5. MARS 2008
Innrettingar
Dalvegi 10-14 • 200 Kópavogur
Sími 577 1170 • Fax 533 1127 • www.innx.is
XE
IN
N
IX
0
8
02
0
14
Láttu þig dreyma
EFNAHAGSMÁL Ragnar Árnason,
hagfræðiprófessor við Háskóla
Íslands, segir að
Seðlabanki Íslands
ætti, í það minnsta
tímabundið, að
hverfa frá verð-
bólgumarkmiði og
hefja lækkunarferli
stýrivaxta. Bankinn
færi þá að fordæmi
seðlabanka í
Bandaríkjunum og
Bretlandi sem
breytt hafa stefnu sinni og lækkað
vexti mikið og hratt þrátt fyrir
versnandi verðbólguhorfur.
Hann segir að ef seðlabankar
Bandaríkjanna og Bretlands telji
ríkar ástæður til að lækka vexti til
að tryggja gangverk fjármálakerf-
isins sé þeim mun ríkari ástæða til
þess hér á landi. - óká / sjá Markaðinn
Gagnrýnir stefnu Seðlabanka:
Hefja á lækkun
stýrivaxta strax
RAGNAR
ÁRNASON
ÉL NYRÐRA Í dag verður norðaust-
an strekkingur norðvestan til og
allra austast, annars hægari. Él fyrir
norðan og austan í dag og dálítil
rigning eða slydda um tíma syðra.
Frostlaust sunnan til, annars frost.
VEÐUR 4
-3 -3
-3
2
2
MIÐVIKUDAGUR
MENNING „Dalvík hentar vel til kvikmyndagerðar,“
segir Aron Birkir Óskarsson, nemandi í 10. bekk og
einn af stofnendum Kvikmyndafélags Dalvíkur-
byggðar, sem formlega var komið á laggirnar um
helgina.
Aron segir kennara sinn, Frey Antonsson, hafa
vakið upp mikinn áhuga á kvikmyndum, kvikmynda-
gerð og handritaskrifum meðal ungs fólks og félagið
sé til marks um áhrif hans. Segir hann tilgang
félagsins meðal annars eiga að miða að því að festa
viðburði í Dalvíkurbyggð á á myndband, gera minnst
eina stuttmynd á ári, taka viðtöl við fólk á svæðinu
um merkileg mál og endurvekja bíó á bænum og
sýna þar vel valdar myndir.
„Það væri gaman að dusta rykið af gömlum
sýningarvélum sem eru til í bænum,“ segir Aron.
Hann segir að félagsmenn vanhagi þó enn um ýmis
tæki sem nauðsynleg eru við alvöru kvikmyndagerð.
Að sögn Freys stendur til að hefja starfsemi
félagsins með sýningu á Landi og sonum eftir Ágúst
Guðmundsson. Það sé við hæfi enda hafi sé sögusvið
myndarinnar Svarfaðardalur. - kdk
Ungir Dalvíkingar stofna kvikmyndafélag og vilja sýningu á Landi og sonum:
Vilja endurvekja bíó á Dalvík
Arsenal fór
áfram
Arsenal vann
Evrópumeistara AC
Milan á San Siro í gær
og er komið í 8 liða
úrslit ásamt Man.
Utd.
ÍÞRÓTTIR 26