Fréttablaðið - 05.03.2008, Page 11
MARKAÐURINN 11MIÐVIKUDAGUR 5. MARS 2008
S K O Ð U N
Svali í skatta-
forsælunni
Það er fátt betra en að gera
sér ferð ýmist til Kýpur eða
Karíbahafsins á frostavetrum
eins og nú. Þetta er lífsnauðsyn-
legt. Ekki aðeins þar sem klof-
græjan var komin fast við frost-
mark heima heldur er veturinn
tilvalinn til að endurnýja búset-
una á eyjunum og heilsa upp á þá
sem þar búa. Það er ágætt endr-
um og eins enda gerir maður
jú upp þarna, skilar inn skatt-
framtali til barmfagurra skvísa
í skuggsælum skattaparadísum.
Eða frekar – skilar ekki inn skatt-
framtali. Þar stendur jú allt á
núlli.
Það kemur meira að segja
fyrir að maður hitti á kunningja,
Bjögga Thor á Kýpur, sem býr
í húsi ekki langt frá mínu og
ég skála stundum við í góðra
vina hópi. Eða Hannes Smára á
Bahama. Hann er reyndar ekki
staddur í kofanum núna og segja
mér kunnugir að hann hafi ekki
sést lengi. Gæti verið á Barba-
dos. Ég skildi eftir miða til hans
í gær. Sagði honum að banka upp
á númer 103.
En hvað um það.
Þetta eru paradísir. Pínakólað
svotil gratís, stelpurnar flottar,
sandurinn heitur og sjórinn sval-
andi. Svo eru hérna stjórnvöld
sem kunna að tríta menn með
peninga. Bjóða þeim vist, skjól
og skugga undan löngum armi
hins rammíslenska skattmanns,
mönnum með tekjur, sem kunna
að fara með peningana sína. Jafn-
vel pólitíið er huggulegt. Tekur
brosandi við smáþóknun sé
maður slompaður undir stýri
eða kitli pinnann á
röngum stað og röngum tíma.
Skiptir engu þótt ég reyni að
telja þeim trú um að Bambinn
bara komist ekki svona hratt.
Hér er gott að vera.
Hasta la vista, bétébé.
Spákaupmaðurinn á horninu
S P Á K A U P M A Ð U R I N N
Jón Ólafsson hefur verið áber-
andi í fjölmiðlum síðustu vikur.
Bæði vegna velgengni við að
koma á framfæri og selja ís-
lenskt vatn á erlendis undir
merkjum Icelandic Glacial og
svo nú síðast vegna framvindu
meiðyrðamálareksturs hans
í Bretlandi á hendur Hannesi
Hólmsteini Gissurarsyni próf-
essor.
Jón hefur síðustu þrjá áratugi
verið farsæll í að byggja upp
margvísleg fyrirtæki, en þekkt-
astur að öllum líkindum fyrir að
koma á og fara fyrir afþreying-
ar- og fjölmiðlaveldinu Norður-
ljósum, sem til varð sumarið
1999 með sameiningu Íslenska
útvarpsfélagsins, Skífunnar og
Sýnar.
Jón Ólafsson er 53 ára gamall,
fæddur í Keflavík 6. ágúst árið
1954. Ungur að árum lét hann
til sín taka við dansleikjahald
og framkvæmdastjórn hljóm-
sveita, með ungæðishætti og líf-
erni sem einkennt getur hljóm-
sveitariðnað. Hann sagði hins
vegar skilið við alla óreglu og
keypti skömmu eftir tvítugt litla
hljómplötuverslun í Hafnar-
firði. Nokkrum mánuðum síðar
lét hann svo til sín taka með
fleirum í hljómplötuútgáfu og
þegar fram liðu stundir varð af-
þreyingarfyrirtækið Skífan til.
Á níunda áratug síðustu aldar
jókst umfang fyrirtækisins með
samningum um kvikmyndarétt.
Þá var Jón meðal stofnenda Ís-
lenska útvarpsfélagsins sem
rak Bylgjuna.
Hér ágerðist svo samkeppni
bæði á sviði fjölmiðla og í af-
þreyingariðnaði og Jón var ekki
óumdeildur. Hann komst í ónáð
hjá forystuöflum í Sjálfstæðis-
flokknum þegar hann neitaði í
ársbyrjun 1990 að ráða tiltekinn
mann sjónvarpsstjóra á Stöð 2
að kröfu formanns flokksins, en
um þetta upplýsti Jón í viðtali
við tímaritið Ský árið 2002.
Norðurljós urðu til árið 1999
og var þar orðið til öflugasta fjöl-
miðla- og afþreyingar fyrirtæki
landsins. Síðla árs árið 2003 tók
svo Jón ákvörðun um að selja
hópi fjárfesta allar eignir sínar
hér á landi, sem voru umtals-
verðar auk Norðurljósahlutsins.
Hann átti stóran hlut í Aðalverk-
tökum og hafði áður verið í Orca-
hópnum svonefnda, sem festi
sér ráðandi hlut í Fjárfestingar-
banka atvinnulífsins (FBA) sem
síðar rann inn í Íslandsbanka.
Á þessum tíma voru Norður-
ljós plöguð af skuldum og Jón
sætti rannsókn skattayfirvalda.
Síðla árs 2004 var Jóni gert
að greiða rúmar 300 milljónir
króna í endur álagningu skatta.
Jón hafði á þessum tíma verið
búsettur í Lundúnum í fimm til
sex ár, en þar heldur hann enn
heimili.
Nú er Jón Ólafsson aftur áber-
andi í íslensku viðskiptalífi með
uppgangi Icelandic Water Hold-
ings, sem hann stofnaði með
Kristjáni syni sínum árið 2005.
En í maí 2006 samdi fyrirtækið
við Ölfushrepp um nýtingu á
lindarvatni þar til átöppunar og
sölu.
S A G A N Á B A K V I Ð . . . J Ó N Ó L A F S S O N A T H A F N A M A N N , S T J Ó R N A R F O R M A N N O G S T O F N A N D A I C E L A N D I C W A T E R H O L D I N G S
Athafnamaður snýr aftur