Fréttablaðið - 12.03.2008, Blaðsíða 6
6 12. mars 2008 MIÐVIKUDAGUR
STJÓRNSÝSLA Það er í skoðun hjá
sjávarútvegs- og landbúnaðar-
ráðuneytinu hvort Ólafur Frið-
riksson, skrifstofustjóri í ráðu-
neytinu, fær að gegna embætti
stjórnarformanns Giftar hf. með-
fram skrifstofustjórastarfinu.
Þetta staðfesti Sigurgeir Þorgeirs-
son ráðuneytisstjóri í samtali við
Fréttablaðið í gær.
„Ólafur fór að öllum settum
reglum er hann tilkynnti ráðu-
neytinu um það að hann myndi
sitja í stjórn hjá Samvinnutrygg-
ingum á sínum tíma og það var
ekki gerð athugasemd við það.
Síðan hefur staðan breyst. Það er
eitt að sitja í stjórn og annað að
vera stjórnarformaður þessa
eignamikla félags,“ segir Sigur-
geir.
Gift er hlutafélag í eigu Sam-
vinnutrygginga. Það var stofnað
síðastliðið sumar þegar ákveðið
var að slíta Samvinnutryggingum.
Helstu eignir félagsins eru 5,4
prósenta hlutur í fjárfestinga-
félaginu Exista og 3,4 prósenta
hlutur í Kaupþingi.
Eins og greint var frá í Frétta-
blaðinu í gær er óljóst enn hvenær
búið verður að úthluta til félags-
manna úr sjóðum Eignarhalds-
félags Samvinnutrygginga. Krist-
inn Hallgrímsson, formaður
skiptanefndar Eignarhaldsfélags
Samvinnutrygginga, sagði þá sem
ættu hlut í Samvinnutryggingum
fá fjögurra vikna frest til þess að
gera athugasemdir við úthlutun-
ina þegar til hennar kemur. Aðeins
að þeim tíma loknum verði mögu-
legt að borga út.
- mh
Prófaðu Heimaöryggi í 2 mánuði
án endurgjalds – án skuldbindinga.
Hringdu núna í 570 2400
og fáðu Heimaöryggi í áskrift!
www.oryggi.is
T
B
W
A
\R
E
Y
K
JA
V
ÍK
\
S
ÍA
\
9
08
03
51
Í skoðun hvort skrifstofustjóri í ráðuneyti fær að vera stjórnarformaður Giftar:
Þarf heimild frá ráðuneytinu
SJÁVARÚTVEGS- OG LANDBÚNAÐAR-
RÁÐUNEYTIÐ Verður skoðað hvort skrif-
stofustjóri getur verið stjórnarformaður
Giftar. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Áður en starfsmaður hyggst, sam-
hliða starfi sínu, taka við launuðu
starfi í þjónustu annars aðila,
ganga í stjórn atvinnufyrirtækis
eða stofna til atvinnurekstrar ber
honum að skýra því stjórnvaldi, er
veitti starfið, frá því. Innan tveggja
vikna skal starfsmanni skýrt frá
því ef áðurnefnd starfsemi telst
ósamrýmanleg starfi hans og
honum bannað að hafa hana með
höndum. Bera má slíkt bann undir
hlutaðeigandi ráðherra.
LAGAÁKVÆÐIÐ SEM
MÁLIÐ BYGGIR Á
DÓMSMÁL Aðalmeðferð í máli
Samtaka myndrétthafa, Smáís,
gegn Istorrent ehf. fór fram í
Héraðsdómi Reykjaness í gær.
Skýrslur voru teknar af málsaðil-
um og vitnum og lögmenn fluttu
sín mál. Úrskurður í málinu verð-
ur kveðinn upp eftir tvær til fjór-
ar vikur.
Málið snýst um meint höfund-
arréttarbrot Svavars Lúthersson-
ar, framkvæmdastjóra Istorrent,
með því að halda úti vefsíðunni
torrent.is. Síðuna notuðu mörg
þúsund Íslendingar til að skiptast
á gögnum, flestum þeirra höfund-
arréttarvörðum, með torrent-
tækninni. Lögbann var sett á síð-
una í október vegna málsins og
henni lokað.
Torrent-tæknin virkar í stuttu
máli þannig að notandi sækir
gögn beint frá þeim sem deilir
þeim, en vefsíðan heldur utan um
það hver er að deila hvaða efni.
Engin gögn fóru því í gegnum
vefþjón Istorrent, en vefsíðan var
samt sem áður nauðsynleg til að
notendur gætu nálgast efnið.
Fyrir dómi líkti lögmaður Smá-
íss starfsemi torrent.is við vöru-
hús þar sem ólöglegt athæfi færi
fram. Svavar væri þá leigjandi
eða eigandi slíks húss. Lögmaður
Svavars svaraði því til að þá væri
hægt að kæra forsvarsmenn
Kolaportsins ef eitthvert ólöglegt
athæfi færi þar fram. - sþs
Aðalmeðferð lokið í máli Samtaka myndrétthafa á Íslandi gegn Istorrent ehf.:
Úrskurðar að vænta í Torrent-málinu
Í HÉRAÐSDÓMI Nemendur úr
Fjölbrautaskólanum í Garðabæ fjöl-
menntu í dómsal þegar aðalmeð-
ferð fór fram í gær. Málið var valið
sem umfjöllunarefni í námskeiði.
Átt þú geisladisk með Sálinni
hans Jóns míns?
Já 41,2%
Nei 58,8%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Notar þú endurskinsmerki?
Segðu þína skoðun á visir.is
LÖGREGLUMÁL Fíkniefnalögreglu-
menn á Suðurnesjum hafa þungar
áhyggjur af niðurskurði fjárveit-
inga til lögreglustjóraembættisins
á Suðurnesjum. Aðgerðirnar gangi
gegn stefnu um auknar aðgerðir í
fíkniefnamálum, og leiði þvert á
móti til skerðingar.
Í yfirlýsingu sem lögreglumenn-
irnir sendu dómsmálaráðuneyt-
inu, Landssambandi lögreglu-
manna, fjölmiðlum og fleirum í
gær segir að komi til þessa niður-
skurðar verði alger óvissa um
öryggi flugfarþega í Leifsstöð og
íbúa á Suðurnesjum. Þar sé lög-
gæsla nú þegar í algeru lágmarki
og megi ekki við frekari skerð-
ingu.
„Okkur var kynntur flatur niður-
skurður sem hefur hugsanlega þær
afleiðingar að við missum starfs-
fólk, fáum ekki sumarafleysinga-
fólk og förum í yfirvinnubann,“
segir Guðmundur Baldursson,
deildarfulltrúi fíkniefna deildar
lögreglunnar á Suðurnesjum.
„Þetta á að gerast á sama tíma og
það er stanslaus aukning í fíkni-
efnamálum sem tengjast flugstöð-
inni.“
Hann segir starfsmenn hafa
talað um að leita sér að öðrum
störfum. Út frá þeim forsendum
sem þeim hafi verið gefnar í kynn-
ingu sjái margir ekki fram á að
geta lifað af starfinu. „Við von-
umst til þess að menn endurskoði
þessa hugmyndafræði, en dóms-
málaráðherra virðist vera harður
á því að þetta sé einhliða ákvörðun
sem þurfi að fara í gegn.“
Fram kemur í tilkynningu frá
dómsmálaráðuneytinu að ekki sé
um niðurskurð að ræða á fjár-
heimildum embættisins frá fyrri
árum. Rekstraráætlun embættis
lögreglustjórans á Suðurnesjum
fyrir þetta ár hafi hins vegar farið
200 milljónir króna fram úr fjár-
lagaheimildum. Kallað hafi verið
eftir ítarlegum upplýsingum og
útskýringum vegna þess. Þangað
til þær upplýsingar liggi fyrir
verði starfsemi embættisins
óbreytt.
Ekki náðist í Jóhann R. Bene-
diktsson, lögreglustjóra á Suður-
nesjum, við vinnslu fréttarinnar.
salvar@frettabladid.is
Sjá fram á niðurskurð
á miklum álagstíma
Fíkniefnalögreglumenn á Suðurnesjum hafa áhyggjur af yfirvofandi niðurskurði.
Löggæsla á svæðinu sé nú þegar í algeru lágmarki og megi ekki við skerðingu.
Ekki niðurskurður heldur fór embættið fram úr fjárheimildum segir ráðuneyti.
LEIFSSTÖÐ Í yfirlýsingu fíkniefnalög-
reglumanna á Suðurnesjum segir að
stóraukning hafi orðið í verkefnum
tengdum innflutningi fíkniefna um
Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Þrátt fyrir það
sé áætlað að skera niður fjárveitingar.
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/A
R
N
ÞÓ
R
KJÖRKASSINN