Fréttablaðið - 12.03.2008, Blaðsíða 21
][
MasterCard
Mundu
ferðaávísunina!
BARCELONA
SKÍÐABOGAR
www.stilling.is // stilling@stilling.is
Skeifan 11, 108 Reykjavik | Bíldshöfði 12, 110 Reykjavík | Smiðjuvegur 68, 200 Kópavogur
Dalshraun 13, 220 Hafnarfjörður | Draupnisgata 1, 600 Akureyri
Eyrarvegur 29, 800 Selfoss. | Sími: 520-8000
Allar upplýsingar um er að finna á
vef Stillingar www.stilling.is
Námsflokkar Hafnarfjarðar
bjóða þeim upp á gagnlegt
námskeið sem vilja læra betur
á stafrænu ljósmyndavélina. Á
námskeiðinu læra þátttakend-
ur einnig um helstu grunnþætti
ljósmyndunar, en kennari er
Michael J. Kissane.
Michael er Bandaríkjamaður með
íslenskan ríkisborgararétt sem
hefur búið og starfað á Íslandi í
rúma tvo áratugi. Hann hefur ljós-
myndað náttúruna víða um heim,
m.a. í Afríku, Kanada og Evrópu. Í
fjörutíu og níu af fimmtíu fylkjum
Bandaríkjanna hefur hann einnig
ljósmyndað á ferðalögum sínum.
Michael hefur skrifað fjölmargar
greinar um náttúruvernd og ferða-
lög, bæði í íslensk tímarit og
erlend. Einnig hefur hann þýtt
bækur um fluguveiði á íslensku.
Sem náttúrufræðingur, leiðsögu-
maður og ljósmyndari ætlar hann
að miðla af þekkingu sinni til nem-
enda Námsflokka Hafnarfjarðar.
En 7. apríl næstkomandi hefst
námskeið í umsjón hans í ferða-
ljósmyndun.
„Nútímatækni gerir það að
verkum að hægt er að taka nær
ótakmarkaðan fjölda ljósmynda.
Á námskeiðinu verður farið í
helstu atriði ljósmyndunar sem
ættu að nýtast öllum þeim sem
vilja taka betri ljósmyndir,“ segir
Michael. Fjallað verður um helstu
grunnatriði ljósmyndunar eins og
lýsingu, uppbyggingu mynda, liti
og annað sem við kemur ljós-
myndatækni. Stutt ferð verður
farin þar sem þátttakendur fá að
spreyta sig á ferðaljósmyndun.
„Í ferðaljósmyndun felst nátt-
úruvernd,“ segir Michael. „Við
verndum minninguna um náttúr-
una með því að taka myndir. Áður
en fyrsti þjóðgarðurinn í Banda-
ríkjunum, Yellowstone, opnaði
1872, reyndist erfitt að sannfæra
fólk um þá náttúrudýrð sem þar er
að finna. Það var ekki fyrr en ljós-
myndari kom á staðinn og festi
dýrðina á filmu að heimurinn
gerði sér grein fyrir náttúrufeg-
urð staðarins. Sama má segja um
íslenska náttúru. Íslenska náttúr-
an er stórbrotin og í henni felast
mikil verðmæti. En náttúruvernd
má ekki tengja við öfga, við verð-
um að hafa í huga að maðurinn er
hluti af umhverfi sínu. Við erum
hluti af stóru vistkerfi og höldum
stundum að við séum við stjórn-
völinn. En ef við höldum áfram að
menga vistkerfið þá gæti farið svo
einn daginn að við hættum að geta
séð norðurljósin. Ósnortin náttúra
er eitt það dýrmætasta sem við
eigum.“
Þótt Michael hafi unnið við ljós-
myndun við læknadeild Háskóla
Íslands um tíma þá hafði hann allt-
af hug á að snúa sér aftur að því að
ljósmynda fegurðina úti í náttúr-
unni sem hann lærði um í háskól-
anum í Colorado. En náttúruvernd
er sannarlega samofin ferðaljós-
myndun í huga Michaels og á vef-
síðunni www.f-stoptours.com er
hægt að skoða hluta af þeim ljós-
myndun sem hann hefur tekið á
ferðalögum sínum. -vg
Náttúran varðveitt í mynd
Handklæði verður að vera með í för í sólarlandaferð. Stór og
þykk handklæði eru best á ströndina og ekki má heldur gleyma
sólarvörninni.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N
„Í ferðaljósmyndun felst
náttúruvernd, við verndum
minninguna um náttúruna
með því að taka myndir,“
segir Michael.
Michael J. Kissane hefur
ljósmyndað náttúruna víða um
heim.
Í myndasafni Michaels er meðal
annars að finna fjölmargar mynd-
ir úr íslenskri náttúru. Hér fyrir
neðan má sjá þrjár þeirra en fleiri
myndir er hægt að skoða á heima-
síðu hans www.f-stoptours.com.
Selir, sigling
og sólarlag
Víkingaskipið Íslendingur á siglingu.
Selir skoða heiminn nálægt Bessastöð-
um.
Snæfellsjökull er aðeins dagsferð frá
Reykjavík.
Sigur lífsins
Á PÁSKUM VERÐUR
ÁRLEG DAGSKRÁ Á
KIRKJUBÆJARKLAUSTRI
SEM NEFNIST SIGUR
LÍFSINS.
Fléttað verður saman
fræðslu um Skaftár-
eldana 1783, útivist á
söguslóðum og helgi-
hald páskahátíðarinnar
á Klaustri dagana 20.-
24. mars. Dagskráin er
á vegum Kirkjubæjar-
stofu í samvinnu við
sóknarprest og sókn-
arnefnd Prestsbakka-
sóknar. Nánari upplýsingar eru í síma: 487 4645 og á www.klaustur.is