Fréttablaðið - 14.03.2008, Blaðsíða 28
[ ]Salthnetur henta vel sem snakk yfir sjónvarpinu á föstu-dagskvöldum. Betra er þó að kafa varlega í skálina því salthnet-ur innihalda margar hitaeiningar.
KJÚKLINGASALAT FYRIR FJÓRA TIL
SEX
150 gr frisé-salatblanda
100 gr spínat
1 gul paprika skorin í strimla
½ rauðlaukur, skorinn í þunn-
ar sneiðar
250 g kokkteiltómatar, skornir í
tvennt
¼ ferskur ananas, brytjaður niður
1 lárpera (avocado) skorin niður
100 g/1 dós valhnetur
3 msk. hrásykur
1 msk. olía
4 kjúklingabringur, skornar í
strimla
3-4 msk. hoisin-sósa
sesamfræ
Aðferð:
Bræðið sykur í olíu á pönnu. Setjið
hnetur út í og ristið við vægan hita.
Látið kólna í smástund á pönnu.
Steikið kjúklingabringur, hellið
hoisin-sósu yfir og stráið sesam-
fræjum loks yfir.
Setjið salat í stóra skál. Sker-
ið niður papriku, rauðlauk, tóm-
ata, ananas og lárperu og blandið
saman við salatið. Stráið ristuðum
valhnetunum yfir og setjið kjúkl-
ing ofan á. Bætið út í olíu, fetaosti,
balsamik ediki eða balsamiksírópi
eftir smekk. Stráið loks smá pipar
yfir salatið.
Ebba Guðný Guðmundsdóttir
höfundur bókarinnar Hvað á
ég að gefa barninu mínu að
borða? verður með námskeið
hjá Manni lifandi í næstu viku.
Hvað á ég að gefa litla barninu
mínu að borða? er heiti námskeiðs
um hvernig á að útbúa einfaldan
en næringarríkan mat fyrir börn
frá sex mánaða aldri og haldið
verður hjá Manni lifandi Borgar-
túni 24 miðvikudaginn 19. mars
frá klukkan 20.00 til 22.00.
Á námskeiðinu verður farið yfir
hvaða fæðutegundum er gott að
byrja á og hvenær og kennt að
meðhöndla og búa til rétti sem
innihalda meðal annars ávexti og
grænmeti, þurrkaða ávexti, heilt
korn eins og quinoa, hirsi, hafra
og spelt, baunir, kaldpressaðar
olíur, möndlumauk og sesammauk
og möndlur og fræ.
Námskeiðið nýtist einnig vel
þeim sem eru með eldri börn og
nýjar uppskriftir og fróðleiksmol-
ar fylgja með. Skráning fer fram á
á netfanginu ebbagudny@mac.
com.
- eö
Næringarríkur
matur fyrir börn
Ebba Guðný kennir
foreldrum að búa til
næringarríkan mat handa
börnunum sínum hjá Manni
lifandi í næstu viku.
FR
ET
TB
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
Uppskrift Elínar
Stæsta bloggsamfélagið á Íslandi
Tjáðu þig! Ný útlit í viku
hverri!
Búðu til eigið útlit
eða veldu tilbúið!
Viltu sýn’eikkað?
Ný útlit · Myndaalbúm · Símablogg