Fréttablaðið - 14.03.2008, Blaðsíða 64
28 14. mars 2008 FÖSTUDAGUR
timamot@frettabladid.is
MERKISATBURÐIR
1911 Kristján Jónsson verður
ráðherra Íslands. Hann sat
í embætti í rúmt ár.
1933 Verkamannafélagið á
Akureyri hindrar uppskipun
á tunnuefni úr norska skip-
unu Nova vegna launa-
deilu í atvinnubótavinnu.
1950 Steingrímur Steinþórsson
verður forsætisráðherra.
Ríkisstjórn hans sat til sept-
ember 1953.
1964 Jack Ruby er sakfelldur fyrir
að myrða Lee Harvey Os-
wald, meintan morðingja
Kennedys, forseta Banda-
ríkjanna.
1989 Mynd Magnúsar Guð-
mundssonar, Lífsbjörg í
Norðurhöfum, er frumsýnd
í Sjónvarpinu.
2003 Femínistafélag Íslands
stofnað.
ALBERT EINSTEIN FÆDDIST
ÞENNAN DAG ÁRIÐ 1879
„Manneskja sem aldrei
gerir mistök reynir aldrei
neitt nýtt.“
Albert Einstein var einn af
frægustu vísindamönnum 20.
aldarinnar. Þekktastur er hann
fyrir afstæðiskenninguna.
Hann fékk Nóbelsverðlaunin
í eðlisfræði árið 1921 fyrir út-
skýringu sína á ljóshrifum.
Ástkær eiginmaður minn, stjúpfaðir,
tengdafaðir og afi,
Ásgrímur Einarsson
Klöpp, 225 Álftanesi,
lést á heimili sínu hinn 9. mars. Útförin fer fram frá
Garðaholtskirkju hinn 19. mars kl. 15.00.
Susan Minna Black
Helga Linnet Stefán Hreinn Stefánsson
Jóhann Linnet Júlíanna Guðmundsdóttir
Viktoría Rós
Sandra Dís
Hólmfríður Sunna
Sigrún Angela
Ástkær dóttir okkar og systir,
Sara Lind Eggertsdóttir,
Mosarima 37, Reykjavík,
lést á Barnaspítala Hringsins hinn 11. mars. Útför fer
fram frá Grafarvogskirkju miðvikudaginn 19. mars
kl. 13.00.
Sigurmunda Skarphéðinsdóttir Eggert Ísólfsson
Ísólfur Eggertsson
Edda Rós Eggertsdóttir.
Elsku eignmaður minn, faðir, tengdafaðir,
bróðir, afi og langafi,
Björn Elías Ingimarsson,
skipstjóri og útgerðarmaður,
Bakkavegi 13, Hnífsdal,
verður jarðsunginn frá Ísafjarðarkirkju, laugardaginn
15. mars kl. 11.00.
Theódóra Kristjánsdóttir
Halldóra Elíasdóttir Guðmundur Thoroddsen
Sigríður Inga Elíasdóttir Svavar Geir Ævarsson
Finnbjörn Elíasson Gyða Björg Jónsdóttir
Guðmunda K. Elíasdóttir Friðrik Ó. Friðriksson
Margrét Ingimarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Þráinn Sigtryggsson
skipstjóri og útgerðarmaður
Grundarbraut 26, Ólafsvík,
sem andaðist föstudaginn 7. mars, verður jarðsunginn
frá Ólafsvíkurkirkju laugardaginn 15. mars kl. 14.00.
Sætaferðir verða frá Umferðarmiðstöðinni (BSÍ) kl.
10.30.
Guðbjörg Elín Sveinsdóttir
Egill Þráinsson Hrefna Guðbjörnsdóttir
Pálína Þráinsdóttir Ingvar Sigurðsson
Bryndís Þráinsdóttir Valur Magnússon
Sigurbjörg Þráinsdóttir Þröstur Kristófersson
Björk Þráinsdóttir Lárus Einarsson
Berglind Þráinsdóttir Heimir Maríuson
Sigtryggur Þráinsson Margrét Helgadóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur sonur okkar, bróðir og
barnabarn,
Jakob Örn Sigurðarson,
Dynsölum 10, Kópavogi,
lést á Landspítalanum í Fossvogi 9. mars sl. Útförin
fer fram frá Digraneskirkju miðvikudaginn 19. mars
kl. 13.00.
Herdís Þorláksdóttir Sigurður M. Jónsson
Rafnar Örn Sigurðarson
Sigríður Guðmundsdóttir Þorlákur Jóhannsson
Eyrún Hafsteinsdóttir Jón Sigurðsson
og aðrir aðstandendur.
Elskulegur maður minn, faðir, tengdafaðir og afi,
Peter Jones
Vaðlatúni 6, Akureyri,
sem lést þriðjudaginn 11. mars, verður jarðsunginn frá
Akureyrarkirkju þriðjudaginn 18. mars. Blóm og krans-
ar afþakkaðir en þeim sem vilja heiðra minningu hans
er bent á Hjartavernd.
Ingibjörg M. Gunnarsdóttir
Þóra Þorleifsdóttir Helgi Níelsson
Kári Þorleifsson
Helgi Jones Nanna Dröfn Björnsdóttir
og afabörnin.
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóð-
ir, systir og amma,
Hulda Jónsdóttir
sjúkraliði, Lágholti 19, Mosfellsbæ,
andaðist á heimili sínu sunnudaginn 9. mars. Útförin
verður auglýst síðar.
Þráinn Þorsteinsson
Fjalar Þráinsson
Svanlaug Ída Þráinsdóttir Árni Valur Sólonsson
Berglind Jóna Þráinsdóttir Jón Emil Magnússon
Dagmar Jónsdóttir
og barnabörn.
Innilegar þakkir færum við öllum þeim
sem sýndu okkur samúð og hlýhug vegna
andláts og útfarar elskulegrar eiginkonu
minnar, móður okkar, dóttur, systur og
mágkonu,
Rebekku Ingvarsdóttur
starfsmannastjóra, Smárarima 69,
Reykjavík.
Einar Ágúst Kristinsson
Ingvar Örn Einarsson
Anna Kristrún Einarsdóttir
Ingvar Þorsteinsson Steinunn G. Geirsdóttir
Bergljót Ingvarsdóttir Bjarni Eyvindsson
Ásta Ingvarsdóttir Brynjólfur Eyvindsson
Þorsteinn Ingvarsson Ragna Gústafsdóttir
Geir Örn Ingvarsson Hallveig Ragnarsdóttir
Þyrla Landhelgisgæsl-
unnar bjargaði allri
áhöfn Barðans GK 475,
samtals níu mönnum,
þegar skipið strand-
aði við Dritvík á Snæ-
fellsnesi.
Aðstæður voru afar
erfiðar. Tilkynning um
strandið barst í gegn-
um Loftskeytastöðina í
Reykjavík og voru björg-
unarsveitir kallaðar út
á áttunda tímanum
að morgni. Þær voru
komnar á strandstað hálftíma síðar. Ógerningur
var að ná skipverjum í land með línu vegna að-
stæðna á strandstað svo þyrlan sannaði gildi sitt
svo um munaði.
Barðinn GK var stál-
skip, 131 tonn að stærð,
í eigu útgerðarfélags-
ins Rafns hf. frá Sand-
gerði. Fram kom í sjó-
prófum að enginn hefði
verið í brú skipsins og
siglingatækin biluð
þegar Barðann rak á
land. Skipstjórinn hafði
brugðið sér niður í mat-
sal og taldi skipið vera
á öðrum stað en raun
var á og enga hættu á
ferðum. Aðrir skipverj-
ar sendu frá sér yfirlýsingu eftir strandið þar sem
þeir lýstu fullum stuðningi við skipstjórann og
sögðu að þeir treystu sér til að sigla undir hans
stjórn um ókomna framtíð.
ÞETTA GERÐIST: 14. MARS 1987
Frækilegt björgunarafrek í Dritvík
BARÐINN GK 475 Á STRANDSTAÐ Í DRITVÍK
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Í ár eru liðin tuttugu ár síðan Fella- og
Hólakirkja var vígð. Vígsludagurinn
er á pálmasunnudag og í tilefni þess
verður ýmislegt gert í kirkjunni á árinu.
Á pálmasunnudag næstkomandi verð-
ur síðan hátíðarmessa í kirkjunni sem
hefst kl. 14 þar sem biskup Íslands, hr.
Karl Sigurbjörnsson, prédikar og þjón-
ar fyrir altari ásamt prestum og djákna
kirkjunnar.
„Tónlistarflutningur verður mjög
veglegur þennan dag. Kór kirkjunnar
syngur í messunni og hefur sérstaklega
verið vandað til lagavals. Organisti og
söngstjóri kirkjunnar, Guðný Einars-
dóttir, hefur staðið í ströngu með kór-
félögum við undirbúning. Og þá mun
fyrrverandi organisti kirkjunnar, Lenka
Mátéová, einnig spila,“ segir Ragn-
hildur Ásgeirsdóttir, djákni í Fella- og
Hólakirkju.
Eftir messu verður kirkjugestum
boðið upp á veglegar veitingar í safn-
aðarheimilinu. Kirkjan þjónar tveimur
sóknum og eru sóknarbörn að sögn
Ragnhildar um tíu þúsund.
„Fólk hérna í Efra-Breiðholti hefur
alltaf verið jákvætt í garð kirkjunnar.
Þess vegna vonumst við til að sem flestir
sjái sér fært að fagna með okkur,“ segir
Ragnhildur, sem í tilefni dagsins skart-
ar nýrri stólu. „Kvenfélagið Fjallkon-
urnar hafa alltaf sýnt kirkjunni mikla
ræktarsemi og gefið kirkjunni ómet-
anlegar gjafir. Á sunnudag ætla þær að
færa okkur nýja djáknastólu sem þær
hafa safnað fyrir. Stólan er eftir lista-
konuna Sigríði Jóhannsdóttur, en hún
hefur hannað allan messuskrúðann
okkar,“ segir Ragnhildur.
Hún segir öflugt starf vera í kirkj-
unni og nefnir þar eldri borgara- og
barnastarf. „Fyrir tveimur og hálfu
ári þegar ég hóf störf voru fjórir eldri
borgarar sem hittust á þriðjudögum.
Nú eru þeir fjörutíu og sú aukning er
mjög ánægjuleg,“ segir Ragnhildur og
heldur áfram: „Hér erum við með fjöl-
menna listasmiðju barna þar sem bæði
er sungið og dansað.“
Fram undan er síðan fermingarundir-
búningur. „Við erum nýkomin úr ferm-
ingarferðalagi frá Skálholti og Sólheim-
um. Síðan hefjast fermingar á skírdag
og þær verða í höndum sóknarprest-
anna sr. Svavars Stefánssonar og sr.
Guðmundar Karls Ágústssonar,“ segir
Ragnhildur að lokum. rh@frettabladid.is
FELLA- OG HÓLAKIRKJA: FAGNA TUTTUGU ÁRA VÍGSLUAFMÆLI Á PÁLMASUNNUDAG
Vonum að sem flestir mæti
TÍMAMÓT Í BREIÐHOLTI Ragnhildur Ásgeirsdóttir djákni ásamt börnum í listasmiðju Fella- og
Hólakirkju. Í tilefni dagsins ætlar Ragnhildur að skrýðast nýrri stólu. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR