Fréttablaðið - 17.03.2008, Blaðsíða 15
MÁNUDAGUR 17. mars 2008 15
HEKLA Laugavegi 172–174 · sími 590 5000 · www.hekla.is · hekla@hekla.is
Umboðsmenn HEKLU um land allt: Akureyri · Akranesi · Ísafirði · Reyðarfirði · Reykjanesbæ · Selfossi
FÆST
MEÐ TDI®
DÍSILVÉL
Passat kostar aðeins frá
2.770.000 kr.
Eða 34.900 kr. á mánuði miðað við gengistryggðan bílasamning til
84 mánaða og 20% útborgun. Árleg hlutfallstala kostnaðar er 7,95%.
Sýndur bíll á mynd Passat Comfortline Plus.
Með hinni mögnuðu TDI® dísilvél eyðir Passat aðeins 5,6 lítrum á hundraðið.
DÚXAÐI Á
EURO NCAP
PRÓFINU
HLAUT
GULLNA
STÝRIÐ
SVEIGJAN-
LEGIR
SÖLUMENN
KOLEFNIS-
JAFNAÐUR
Í EITT ÁR
EYÐIR
AÐEINS FRÁ
5,6 l/100 KM
Fáir bílar sameina jafn vel kraft, þægindi og magnaða akstursupplifun og Passat. Og enginn þeirra fæst á
sambærilegu verði. Volkswagen Passat færir þér búnaðinn, plássið og útlitið sem þig hefur alltaf dreymt um.
Allt sem þú þarft að gera er að leggja blaðið frá þér, koma til okkar og prófa þennan frábæra lúxus.
1.9 TDI® dísilvél
fjarlægðarskynjarar
að framan og aftan
aðkomuljós
hiti í sætum
16" álfelgur,
leðurklætt stýri
leðurklædd handbremsa
leðurklædd gírstöng
vegleg VW regnhlíf
TDI® vél og meiri lúxus f
yrir 350.000 kr.
Das Auto.
ÚTBLÁSTUR
AÐEINS FRÁ
148 G/KM
EVRÓPUMÁL Vel er hugsanlegt að
hægt sé að semja um sérreglur
sem geri kleift að tryggja sérhags-
muni Íslands hvað varðar fisk-
veiðistjórnun ef Ísland semur um
aðild að Evrópusambandinu. Land-
ið verður þó almennt séð að ganga
að öllum þeim reglum sem fyrir
eru í gildi í sambandinu, þar með
talið sameiginlegu sjávarútvegs-
stefnunni.
Þetta segir Jens Hartig Daniel-
sen, prófessor í Evrópu- og þjóða-
rétti við Árósaháskóla, í samtali við
Fréttablaðið, og vísar til sérreglna
um takmörkun á rétti annarra ESB-
borgara til kaupa á sumarhúsum í
Danmörku sem dæmi um slík sérá-
kvæði. Ákvæðin um norðurslóðal-
andbúnað, sem samið var um er
Svíar og Finnar gengu í sambandið,
eru að hans sögn annað dæmi um
sérsniðnar reglur sem gagnast
gætu sem fordæmi.
Danielsen hélt erindi um gild-
andi lög og reglur Evrópusam-
bandsins á sviði landbúnaðar og
sjávarútvegs með tilliti til hugsan-
legrar aðildar Íslands á hádegis-
fundi í boði Lagastofnunar
Háskóla Íslands á miðvikudag.
Danielsen segir að við gildis-
töku nýju uppfærslunnar á stofn-
sáttmála ESB, sem kennd er við
Lissabon og kemur í stað stjórnar-
skrársáttmálans strandaða, muni
engar innihaldslegar breytingar
verða á þeim grundvallarreglum
sem um sameiginlega stefnu ESB
á sviði landbúnaðar og sjávarút-
vegs gilda. Í nýja sáttmálanum
verði að vísu ákvæðin um sameig-
inlegu sjávarútvegsstefnuna í
fyrsta sinn í sérkafla. Innihalds-
lega breyti þetta þó engu, að því er
hann best fái séð. - aa
Möguleikar Íslands í hugsanlegum aðildarsamingum við Evrópusambandið:
Íslensk sérákvæði eru samningsatriði
HEILSA Andlegur stuðningur gegn-
ir veigamiklu hlutverki við að lina
þjáningar fólks sem þjáist af alvar-
legum sjúkdómum. Þetta segir
Lorraine Wright, fyrrverandi próf-
essor í hjúkrun við Alberta-háskóla
í Kanada, sem hélt fyrirlestur í
Háskóla Íslands á fimmtudag um
þjáningar sjúklinga og leiðir til
„andlegra lækninga“.
Meðal helstu þátta sem reynslan
hefur að hennar sögn sýnt að gefi
góða raun eru meðferðarviðtöl, að
sjúklingnum sé sýnd samúð og
kærleikur, að hann njóti félagslegs
stuðnings og að hann rækti með
sér von. Loks segir hún að bænir
hjálpi, og þeim sé hægt að beita án
þess að vera sérstaklega trúaður á
æðri máttarvöld. Hver og einn geti
fundið sína leið til að stunda bænir
eða ígildi þeirra.
Wright segir margt hægt að
læra af því hvernig andlegir þætt-
ir eru notaðir til styrkingar sjúk-
linga í asísk-búddískri lækninga-
hefð, en hún hefur tekið þátt í
rannsóknum á henni, sérstaklega í
Taílandi. Í erindinu í gær rakti hún
lærdómsríkar dæmisögur úr þeim
rannsóknum. - aa
Kanadískur fyrirlesari um leiðir til að lina þjáningar alvarlega veikra sjúklinga:
Máttur andlegra lækninga
LORRAINE WRIGHT Flutti erindi í HÍ á fimmtudag. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
JENS HARTIG
DANIELSEN
Talaði á fundi
Lagastofnunar
HÍ.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
FINNLAND Finnski listamaðurinn
Ulla Karttunen hefur verið ákærð
fyrir vörslu barnakláms. Lögregl-
an lagði hald á nokkur af listaverk-
um Karttunen eftir að gestur á list-
sýningu hennar í galleríi í miðborg
Helsinki kærði hana fyrir vörslu
barnakláms.
Myndir Karttunen voru af
drengjum og stúlkum í verki sem
nefnist Neitsythuorakirkko og
mætti útleggja sem Kirkja óspilltu
hóranna. Karttunen segir sjálf að
verk sín séu gagnrýni á barna-
klám. Hún heldur því fram að
efnið sé almennt aðgengilegt á
netinu, það sé ekkert leynilegt
klámefni. - ghs
Finnskur listamaður:
Ákærður fyrir
barnaklám í list
TAÍLAND, AP Sænsk kona var myrt
í Taílandi í fyrradag. Hún var á
gangi á baðströnd á Phuket-eyju
þegar ráðist var á hana og hún
stungin í hálsinn.
Ekki er vitað hver eða hverjir
voru að verki.
Að sögn lögreglu hafði konan,
sem hét Hanna Charlotta Back-
lund og var á þrítugsaldri, tjaldað
á lóð hótels á norðurhluta eyjarinn-
ar. Á laugardaginn hafi hún beðið
ferðafélaga sinn að koma með sér
í gönguferð á ströndinni, en hann
ákveðið að halda sig á hótelinu.
Þegar konan hafði ekki skilað
sér aftur á hótelið um kvöldið fór
ferðafélaginn að leita hennar og
fann lík hennar í sandinum.
Phuket-eyja er einn vinsæl-
asti ferðamannastaður Taílands
og þangað koma þúsundir Svía á
hverju ári. - sþs
Ekki vitað hver var að verki:
Svíi myrtur á
taílenskri strönd
SAMGÖNGUR Reynslulitlir flugnem-
ar fljúga farþegaþotum fyrir
danska flugfélagið Sterling án þess
að farþegarnir viti af því. Ellefu
flugnemar hafa undanfarið flogið
farþegaþotunum hjá Sterling í
Noregi, að því er fram kemur í
Aftonbladet.
Sterling er í samstarfi við
danska flugmannaskólann Center
Air Pilot Academy. Í skólann
komast nemendur án nokkurrar
reynslu. Í nóvember 2006 voru
menntunarkröfurnar minnkaðar.
Eftir 70 tíma í flughermi, 40 tíma á
einshreyfilsvélum og próf geta
nemarnir flogið með farþega.
„Það er lélegt að nota flugvélar
með farþegum sem greiða fullt
verð í kennsluflug,“ segir Sigurd
Lökholm, framkvæmdastjóri
Norska flugmannafélagsins. - ghs
Flugfélagið Sterling:
Flugnemar
fljúga þotum