Fréttablaðið - 17.03.2008, Blaðsíða 25
MÁNUDAGUR 17. mars 2008 3
Akurnesingurinn Anna Hall-
dórsdóttir stofnaði samtök í
New York sem heita All We
Knit is Love. Tilgangur þeirra
er að prjóna handa börnum á
munaðarleysingjahælum sem
hafa þörf fyrir hlýjan fatnað.
Anna er búsett í Bandaríkjunum
þar sem hún vinnur meðal annars
að tónlist fyrir heimildamyndir,
stuttmyndir og auglýsingar. Hún
fékk sendar spurningar í tölvu-
pósti sem hún svaraði skilmerki-
lega.
Anna kveðst hafa stofnað sam-
tökin All We Knit is Love fyrir
tveimur árum og lýsir tilurð þeirra
svo. „Ég fór á námskeið hér í New
York þar sem hver og einn þátt-
takandi fékk það verkefni að finna
leið til að hafa jákvæð áhrif á ver-
öldina og virkja aðra með sér til
samstarfs. Ég valdi að stofna All
We Knit is Love þar sem ég hef
gríðarlega gaman af því að prjóna.
Vissi líka að mikill skortur væri á
hlýjum fatnaði fyrir munaðarlaus
börn víða í heiminum. Reyndar
var kveikjan að hugmyndinni vini
mínum, hinum tíbetska búdda-
munki Lama Tenzin, að þakka.
Hann kemur árlega til Bandaríkj-
anna að leita eftir styrkjum fyrir
munaðarleysingjahæli sem hann
stofnaði árið 2001 fyrir börn úr
Himalajafjöllunum. Meðan hann
var í heimsókn hjá okkur hjónum
var ég að prjóna húfu og tref-
il. Hann fylgdist með
íhugull og sagði. „Þetta
er eins og hug-
leiðsla.“ Ég lof-
aði að prjóna
á krakkana
hans ein-
hvern
tíma. Þess
vegna var
frábært að ég gat sett af
stað All We Knit is Love
og staðið við orð mín um
leið og ég uppfyllti verkefni
námskeiðsins.“
Anna segir fimmtán konur í
klúbbnum. Hann sé opinn og eng-
inn bundinn til að vera með að
eilífu. Sumar konurnar hafi prjón-
að eina flík, aðrar verið með í öll
skiptin. „Það hefur verið skemmti-
legt að sitja saman í hóp og sjá
allar þessar fallegu prjónaflíkur
verða til. Við höfum einnig kennt
nokkrum konum að prjóna sem
vildu ólmar fá að taka þátt. Aðal-
lega prjónum við húfur og trefla
en líka vettlinga, sokka og peysur.
Við höfum fengið mikið af garni
gefins sem er dýrmætt og svo
höfum við fengið margar prjóna-
flíkur frá
Íslandi og eitt
saumað teppi.
Við lukum við að
prjóna fyrir
Himalajabörnin
og nú erum við að
prjóna fyrir barna-
heimili í Nepal,“
segir Anna. Hún segir
verkefnið hafa hrund-
ið fleiri áþekkum af stað
og hvetur sjálfstæða hópa
til að taka að sér All We Knit is
Love-verkefni. Bendir á að hægt
sé að fá allar upplýsingar á vefsíð-
unni www.allweknitislove.com
gun@frettabladid.is
Eins og hugleiðsla
Himalajabörnin á heimili Lama Tenzin. Lítil dama dúðuð.
Hér er setið við prjónaskap í New York.
Skrautlegar
húfur sem
koma sér vel
í Himalaja-
fjöllunum.
Íslensk lopapeysa
á leið til Nepal.
„Það hefur verið
magnað að geta
gefið af sér með
þessum hætti,“
segir prjónakonan
Anna sem hefur
virkjað fjölda fólks
til samstarfs.
www.stilling.is // stilling@stilling.is
Skeifan 11, 108 Reykjavik | Bíldshöfði 12, 110 Reykjavík | Smiðjuvegur 68, 200 Kópavogur
Dalshraun 13, 220 Hafnarfjörður | Draupnisgata 1, 600 Akureyri
Eyrarvegur 29, 800 Selfoss. | Sími: 520-8000
SKÍÐABOGAR
Allar upplýsingar um er að finna á
vef Stillingar www.stilling.is