Fréttablaðið - 17.03.2008, Blaðsíða 58
30 17. mars 2008 MÁNUDAGUR
menning@frettabladid.is
Kl. 19
Fyrsti þátturinn af þremur í þátta-
röðinni Dýrð í hæstu hæðum er á
dagskrá Rásar 1 kl. 19 í kvöld. Í
þáttunum eru leiknar tónleikaupp-
tökur úr sögu Pólýfónkórsins og er
þátturinn í kvöld helgaður upptökum
frá árunum 1961-1972. Umsjónar-
maður er Árni Heimir Ingólfsson.
Þættirnir voru áður á dagskrá árið
1998.
Sinfóníuhljómsveit Norðurlands heldur
tónleika í Glerárkirkju á Akureyri næst-
komandi fimmtudag, skírdag, kl. 16.00.
Einleikari á fiðlu er engin önnur en
Elfa Rún Kristinsdóttir, en hún var valin
Bjartasta vonin er Íslensku tónlistarverð-
launin voru veitt árið 2006. Stjórnandi er
Guðmundur Óli Gunnarsson.
Á efnisskrá tónleikanna er Fiðlukonsert í
a-moll eftir Antonin Dvorák og Sinfónía
nr. 4 eftir Tchaikovsky.
Fiðlukonsert í a-moll op. 53 var annar
í röðinni af þremur konsertum sem
Antonin Dvorák samdi. Hann hafði
kynnst hinum mikla fiðlusnillingi Joseph
Joachim og skrifaði þennan konsert fyrir hann.
Tchaikovsky var mikill rómantíker og í verkum hans
sameinast evrópsk hárómantík 19. aldar og rúss-
nesk drungaviðkvæmni. Sinfónía nr. 4 í er í fjórum
þáttum og var frumflutt árið 1878.
Elfa Rún Kristinsdóttir fiðluleikari er
fædd á Akureyri árið 1985. Hún hóf
fiðlunám fjögurra ára gömul hjá móður
sinni Lilju Hjaltadóttur. Elfa útskrifaðist
úr Tónlistarháskólanum í Freiburg í
Þýskalandi í febrúar 2007 með hæstu
einkunn undir handleiðslu prófessors
Rainers Kussmaul. Hún hefur leikið ein-
leik með mörgum virtum hljómsveitum
víða um heim og hlaut, sem kunnugt er,
fyrstu verðlaun í Johann Sebastian Bach-
tónlistarkeppninni í Leipzig 2006.
Sinfóníuhljómsveit Norðurlands hélt
sína fyrstu tónleika haustið 1993 og er
því nú á sínu 15. starfsári. Kjarni hljóm-
sveitarinnar hefur frá upphafi verið kennarar við
Tónlistarskólann á Akureyri og hópur hljóðfæraleik-
ara sem býr og starfar á landsbyggðinni. Á þessum
tónleikum kemur einnig hópur hljóðfæraleikara af
Reykjavíkursvæðinu til liðs við hljómsveitina.
Elfa, Dvorák og Tchaikovsky
ELFA RÚN KRIST-
INSDÓTTIR Hæfi-
leikaríkur ungur
fiðluleikari.
Nú þegar páskarnir eru við það að
skella á heimsbyggðina skyldi
engan undra að Listvinafélag Hall-
grímskirkju stendur fyrir glæsi-
legri dagskrá í tilefni hátíðarinn-
ar. Um helgina var opnuð
mynd listarsýning í kirkjunni og á
skírdag og föstudaginn langa fara
þar fram áhugaverðir tónleikar.
Myndlistarsýningin ber titilinn
Sjö orð Krists á krossinum. Balt-
asar Samper myndlistarmaður
hefur unnið sjö ný myndlistar-
verk byggð á sjö orðum Krists á
krossinum úr Passíusálmum Hall-
gríms Péturssonar og myndar
kross úr myndunum sjö. Krossinn
verður fyrir aftan altari kirkjunn-
ar og setur því mikinn svip á
minningarkirkju sálmaskáldsins.
Í forkirkjunni eru til sýnis tvö
eldri verka Baltasars, sem tengj-
ast krossfestingunni.
Á skírdag flytja kórinn Schola
cantorum og kammerhópurinn
Caput ásamt einsöngvurum
Jóhannesarpassíu eistneska tón-
skáldsins Arvos Pärt. Jóhannes-
arpassía Pärts flytur píslarsöguna
með orðum Jóhannesarguðspjalls
á latínu og er jafnan talin til höf-
uðverka tónskáldsins. Hún er nú
flutt í fyrsta sinn á Íslandi.
Tómas Tómasson bassi syngur
hlutverk Jesú, Þorbjörn Rúnars-
son tenór er í hlutverki Pílatusar,
einsöngvarakvartett skipaður
Margréti Sigurðardóttur sópran,
Guðrúnu Eddu Gunnarsdóttur alt,
Braga Bergþórssyni tenór og
Benedikt Ingólfssyni bassa flytur
orð guðspjallamannsins og kamm-
erkórinn Schola cantorum túlkar
prestana, lýðinn og fleiri persón-
ur. Hljóðfæraleikarar eru Hildi-
gunnur Halldórsdóttir á fiðlu,
Hrafnkell Orri Egilsson á selló,
Eydís Fransdóttir á óbó og Kristín
Mjöll Jakobsdóttir á fagott. Björn
Steinar Sólbergsson leikur á org-
elið. Miða á þessa tónleika má
nálgast í Hallgrímskirkju og í
versluninni 12 Tónum á Skóla-
vörðustíg og kostar miðinn 3000
krónur.
Loks ber að geta þess að Passíu-
sálmar Hallgríms Péturssonar
verða fluttir í heild sinni á föstu-
daginn langa í Hallgrímskirkju á
milli kl. 13 og 19. Nokkur hefð
hefur skapast fyrir þessum flutn-
ingi, en í ár verður brugðið út af
þeirri venju að lesa alla sálmana
þar sem að félagar úr Mótettukór
Hallgrímskirkju ásamt viðstödd-
um munu syngja þekktustu sálma-
versin á réttum stöðum í lestrin-
um. Meðal passíusálmanna sem
allir syngja eru „Upp upp mín
sál“, „Víst ertu Jesú, kóngur klár“,
„Son Guðs ertu með sanni“ og
„Dýrð, vald, virðing“. Kirkjugest-
ir eru hvattir til að taka með sér
Passíusálma sína til að syngja úr
og fylgjast með. Um þrjátíu valdir
félagar úr Mótettukór Hallgríms-
kirkju lesa sálmana að þessu sinni
og er þetta í annað skipti sem kór-
félagar taka að sér lesturinn.
Aðgangur að viðburðinum er
ókeypis og öllum opinn.
- vþ
Páskahátíðin
gengur í garð
SJÖ ORÐ KRISTS Baltasar Samper við uppsetningu verks síns í Hallgrímskirkju.
FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
> Ekki missa af...
sýningu dönsku textíllistakon-
unnar Trine Ellitsgaard í Nor-
ræna húsinu. Hún vinnur með
margvísleg efni sem búa yfir
mismunandi eiginleikum og
fær innblástur af að prófa sig
áfram. Trine grúskar mikið í
bókum um vefnað frá ólíkum
menningarheimum og er heill-
uð af þeim möguleikum sem
vefnaðurinn býður upp á.
Stuttmynda- og myndverka-
hátíðin 700IS Hreindýra-
land verður haldin í þriðja
sinn austur á Egilstöðum
dagana 29. mars til 5. apríl.
Hátíðin dreifist að þessu sinni um
Hérað og verða sýningar á Egils-
stöðum, Skriðuklaustri, námskeið
verður á Eiðum og efnt verður til
sýninga í tengslum við hátíðina á
Hornafirði. Að vanda heldur hátíð-
in úti vefsíðu: www:700.is þar sem
ítarlegar upplýsingar eru um dag-
skrána.
Kristín Scheving er frumkvöðull
og helsti drifkraftur að baki þess-
ari hátíð: „Þessi hugmynd að halda
vídeólistahátíð var búin að krauma
inni í mér í nokkur ár. Ég fór í nám
til Frakklands og síðar til Bretlands
og vann bæði eftir mitt framhalds-
nám í listum við listir og einnig sem
stundakennari í listaháskóla í
Manchester. Ég var reyndar búin
að gleyma þessu en fyrrverandi
kollegi minn í Bretlandi minnti mig
á þetta þegar við fórum út með
hátíðina sl. haust.
Þegar að ég ákvað að flytja aftur
til Íslands og hingað austur á land
sá ég endalaus tækifæri. Hitti
marga sem voru spenntir fyrir nýj-
ungum og það skemmtilegasta var
að það reyndist ekki svo erfitt að fá
styrki í að halda hátíðina. Nú er
hún á þriðja aldursári, og hefur
dafnað vel. Skemmtilegast er hve
margir hafa komið að henni og hafa
áhuga á að sýna myndir á henni.
Hún er samt ennþá að þróast og
hefur lengst í vikuhátíð með auka-
hátíðum erlendis og í ár hefur
okkur verið boðið að koma aftur til
Manchester í Bretlandi og Arizona
í Bandaríkjunum og einnig hefur
okkur verið boðið að koma á nýja
hátíð í Svíþjóð og halda fyrirlestur
um okkar reynslu.“
Sjötíu myndverk verða sýnd á
hátíðinni og eru verðlaun í boði
fyrir besta verkið sem dómnefnd
valinkunnra listamanna velur: „Við
reynum að fá sem flesta af lista-
mönnunum hingað austur,“ segir
Kristín, „en náum ekki að bjóða
nema tveimur listamönnum því að
við erum með sérstök peningaverð-
laun fyrir „mynd hátíðarinnar“ og
„íslenska mynd hátíðarinnar“. Mér
fannst alltaf mikilvægt að geta
gefið eitthvað til baka til listamann-
anna sjálfra því að ég hef sjálfur
sent myndir á svona hátíðir úti um
allan heim og yfirleitt fær maður
aldrei neitt til baka sjálfur. Stund-
um fær listamaðurinn ekki einu
sinni verkin sín til baka − þannig að
fyrir mér var þetta mikilvægt atriði
að geta gefið smá til baka! Við hefð-
um aldrei getað haldið þessa hátíð
án hjálpar frá Fljótsdalshéraði og
hún er haldin í samstarfi við Menn-
ingarmiðstöð Fljótsdalshéraðs. Það
eru líka fleiri sem styrkja okkur og
ég hvet alla til að kíkja á heimasíð-
una okkar www.700.is til að kíkja á
það og fleiri upplýsingar.“
Formleg opnun verður í Menn-
ingarsetrinu á Egilstöðum, Slátur-
húsinu, þann 29. mars en þá daga
sem hátíðin stendur er mikið við að
vera. Á opnun verður flutt verkið
Hanaegg eftir þrjár íslenskar lista-
konur sem leggja saman: Ólöfu
Nordal, Þuríði Jónsdóttur og
Ásgerði Júníusdóttur.
Meðal verka sem sýnd verða er
knippi verka frá Rússlandi. Á
Eiðum verður námskeið í tækni og
vinnslu verka sem eru skráning á
gerningum og sækja hana nemend-
ur víða að úr heiminum. Cafe Valný
verður samkomustaður gesta og
þátttakenda þegar sýningar eru
ekki í gangi en þar verður uppi sýn-
ing sem Ólöf Björk Bragadóttir
myndlistarkona vinnur ásamt nem-
endum frá Menntaskólanum á
Egilsstöðum.
Það verður því fögnuður þegar
hátíðinni slúttar með hófi þann 5.
apríl á Eiðum. pbb@frettabladid.is
Húrra Hreindýraland
KVIKMYNDIR Úr mynd eftir Gert Rognli
sem sýnd verður á hátíðinni á Egilsstöð-
um. MYND/GERT ROGNLI