Fréttablaðið - 19.03.2008, Blaðsíða 6
MARKAÐURINN 19. MARS 2008 MIÐVIKUDAGUR6
F R É T T A S K Ý R I N G
A R Ð G R E I Ð S L U R
S Í Ð A S T L I Ð I N T V Ö Á R *
Fyrirtæki 2007 2006
Actavis - -
Alfesca - -
Atorka Group 2.111 3.400
Bakkavör 1.187 1.079
Eimskip (Avion) - -
Exista** - 10.838
FL Group - 15.000
Glitnir 5.506 9.400
Icelandair - -
Kaupþing 14.809 10.366
Landsbankinn*** - 4.408
Marel - 73,4
SPRON 1.643 -
Straumur**** 5.990 7.769
Teymi 340 -
Össur - -
Samtals: 31.586 62.333
* Upphæðir í milljónum króna. Inni í töl-
unum eru félög sem áður voru skráð í
Úrvalsvísitöluna.
** Arðgreiðsla í skoðun
*** Arðgreiðsla liggur ekki fyrir. Aðalfundur 23
apríl
**** 48,9 milljónir evra.
S
jö fyrirtæki af fjórtán sem mynda
íslensku Úrvalsvísitöluna greiða
arð vegna afkomunnar á síðasta ári.
Þetta er tveimur fyrirtækjum færra
en greiddu út arð í fyrra. Ef frá
er skilin arðgreiðsla Landsbankans – tillaga
verður lögð fram um slíkt á bankaráðsfundi
hans 7. apríl næstkomandi – nema heildar-
greiðslurnar rúmum 31 milljarði íslenskra
króna. Til samanburðar námu arðgreiðslurn-
ar rúmum 62 milljörðum króna í fyrra. Þetta
er helmingi minna en félögin greiddu vegna
afkomunnar í hitteðfyrra.
KAUPÞING GREIÐIR MEST
Kaupþing greiðir hluthöfum sínum lang-
hæstu greiðsluna í ár, 14,8 milljarða króna.
Á eftir kemur Glitnir, sem greiðir 5,5 millj-
arða króna. Athygli vekur að arðgreiðslur
Kaupþings eru hærri en í fyrra. Þetta er ólík
þróun og hjá öðrum fyrirtækjum að Bakka-
vör undanskilinni, sem greiðir rúmum hundr-
að milljónum krónum meira en í fyrra. Eins
og áður segir verða tillögur um arðgreiðslur
til hluthafa Landsbankans ekki lagðar fram
fyrr en á bankaráðsfundinum 7. apríl næst-
komandi. Kaupþing hefur iðulega greitt háan
arð í krónum talið. Hins vegar þarf mikið
til að ná upp í arðgreiðsluna í október í hitt-
eðfyrra þegar Kaupþing greiddi hluthöfum
einstaka greiðslu, tuttugu milljarða króna í
formi hlutafjár í Existu.
SUMIR GREIÐA EKKERT
Þrjú félög sem mynda Úrvalsvísitöluna – og
greiddu hluthöfum sínum háar upphæðir í arð
í fyrra – greiða ekkert í ár. Það eru Marel,
Exista og FL Group. Samkvæmt forsvars-
mönnum Marel er ástæðan fyrir því að ekki
verður greiddur út arður vegna afkomunnar
í fyrra kaup félagsins á matvælavinnsluvéla-
hluta hollensku iðnsamsteypunnar Stork.
Hin félögin tvö, FL Group og Exista, greiddu
hins vegar hæstu arðgreiðslur skráðra félaga
í Úrvalsvísitölunni vegna afkomunnar í hitt-
eðfyrra. FL Group greiddi fimmtán milljarða
króna en Exista tæpa ellefu milljarða króna
í fyrra.
FL Group tapaði 67 milljörðum íslenskra
króna á síðasta ári og vinnur nú að stífum
niður skurði á rekstrarkostnaði, sem skýrir
arðgreiðsluleysið nú.
Exista hagnaðist hins vegar um sextíu
milljarða króna á sama tíma. Lýður Guð-
mundsson, stjórnarformaður Existu, sagði á
aðalfundi félagsins á dögunum að aðstæður
á fjármálamörkuðum hefðu ráðið um ákvörð-
unina að greiða ekkert nú um stundir. Breyt-
ist aðstæður til hins betra getur svo farið
að ákvörðunin verði endurskoðuð og arður
greiddur út síðar á árinu.
DVERGARNIR FÁ LÍTIÐ EN RISARNIR MEST
Sé litið til stærstu arðgreiðslnanna – sem
greiðist úr sjóðum bankanna – fá stærstu
hluthafarnir tæpa 4,4 milljarða króna fyrir
snúð sinn.
Exista tekur stóra sneið vegna eignar hlutar
síns í Kaupþingi og Bakkavör. Félagið fær
rúma 3,4 milljarða króna vegna 23 prósenta
eignar sinnar í Kaupþingi og 470 milljónir
króna vegna stærðar sinnar í Bakkavör – fé-
lagið er langstærsti hluthafinn með 63 pró-
senta eignarhlut.
FL Group, sem er stærsti hluthafinn í
Glitni, tekur á sama tíma 977 milljónir króna
fyrir eignarhlutinn í bankanum.
Eins og áður hefur komið fram liggur
ekki fyrir hvað þeir feðgar, Björgólfur Guð-
mundsson og Björgólfur Thor, fá fyrir eignar-
hlut sinn í Landsbankanum í nafni Samson
eignarhaldsfélags en þeir sitja á tæpum 41
prósents hlut. Hagnaður bankans í fyrra nam
fjörutíu milljörðum króna. Sé miðað við að
arðgreiðsla verði hlutfallslega jafn há nú og
í fyrra gætu arðgreiðslur feðganna numið 1,8
milljörðum króna. Hins vegar fá þeir tæpa
tvo milljarða króna vegna eignar sinnar í
Straumi-Burðarási.
Arðgreiðslurnar dragast saman um helming
Þau íslensku fyrirtæki sem mynda Úrvalsvísitöluna taka upp veskið á næstu dögum og greiða hluthöfum sínum rúma þrjátíu
milljarða króna vegna afkomunnar á síðasta ári. Pyngja sumra er tóm eftir tap í fyrra en önnur fyrirtæki eru að skoða næstu
skref. Ljóst er að ytri aðstæður settu skarð í afkomu fjölmargra fyrirtækja hér á landi enda arðgreiðslurnar um helmingi minni
en fyrir ári, líkt og Jón Aðalsteinn Bergsveinsson komst að raun um.
STJÓRNARFORMAÐUR KAUPÞINGS OG FORSTJÓRINN Kaupþing greiðir hæstu arðgreiðsluna í ár vegna
afkomunnar á síðasta ári. MARKAÐURINN/GVA
Arðgreiðslur þriggja erlendra
félaga sem hafa íslensk fyrir-
tæki í hluthafahópnum er tæp-
lega tvöfalt hærri en sem nemur
arðgreiðslum allra íslensku fé-
laganna sem mynda Úrvalsvísi-
töluna í Kauphöll Íslands.
Arðgreiðslur til hluthafa
bresku lágvörukeðjunnar Iceland
er sú hæsta sem nokkuð félag
hefur fengið utan landsteinanna.
Niðurstöður liggja ekki fyrir um
afkomuna í fyrra en samkvæmt
heimildum Markaðar ins eru
líkur á að um 300 milljónir punda
falli hluthöfum hennar í skaut.
Það jafngildir rúmum 46 millj-
örðum króna miðað við gengi
evru í gær. Heildar arðgreiðslur
Iceland-keðjunnar síðastliðin
þrjú ár nema 670 milljónum
punda, eða rúmum 100 milljörð-
um króna.
Gangi allt eftir munu Baugur,
Fons (sem hvorugt er skráð á
markað), Kaupþing og Lands-
bankinn fá tæpa 37 milljarða
króna en Malcolm Walker, for-
stjóri Iceland, og aðrir stjórn-
endur hennar rest.
Þetta verður jafnframt annað
árið í röð sem arðgreiðsla frá
versluninni slær Íslandsmet í
krónum talið. Til samanburðar
er næststærsta arðgreiðsla sög-
unnar greiðsla til Existu vegna
hlutar í finnska fjármálafyrir-
tækinu Sampo Group. Greiðslan,
sem nam 13,7 milljörðum króna,
féll félaginu í skaut á síðasta ári.
Exista sat þá á rúmum fimm tán
prósenta hlut í Sampo, sem skráð
er í kauphöllina í Helsinki í Finn-
landi. Félagið hefur bætt við sig
síðan þá og fer nú með tæpan
fimmtungshlut í félaginu.
Væntar arðgreiðslur Ex-
istu vegna hlutarins í Sampo
nú nema 138,6 milljónum evra
fyrir síðasta ár. Það jafngildir
rúmum 16,8 milljörðum króna
miðað við gengi evru gagnvart
krónu í gær.
Til viðbótar þessu tekur Exista
um 600 milljónir króna vegna
stöðu sinnar í norska fjármála-
og tryggingafyrirtækinu Store-
brand. Kaupþing og Exista fara
saman með um 29 prósenta hlut
í fyrirtækinu og fær Kaupþing,
sem á fimmtung í félaginu, 1,3
milljarða króna.
MACOLM WALKER, FORSTJÓRI
ICELAND Breska lágvörukeðjan Iceland
hefur greitt út jafnvirði rúmra 100 milljarða
króna til hluthafa síðastliðin þrjú ár. Um
80 milljarðar hafa fallið íslenskum fjárfest-
um í skaut.
Metarður að utan