Fréttablaðið - 26.03.2008, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 26.03.2008, Blaðsíða 16
Tímasetningar skipta ávallt miklu máli í fjárfestingum. Einn fjárfestir sem fór mikinn á árinu 2006 má eiga það að hann hefur tímasett sölu á hlutabréfum vel. Margir muna eftir umsvif- um Sigurðar Bollasonar, meðal annars í FL Group og Dags- brún, sem var móðurfélag Vod- afone og 365 miðla. Í apríl 2006 tilkynnti hann um sölu á hlut sínum í Icon ehf. sem átti þá tæp 8 prósent í FL Group. Geng- ið á FL á þessum tíma var um 25 (en nálægt sjö í gær). Runn- ur átti tæp 13 prósent í Dags- brún. Materia Invest, sem er í eigu félaga hans, Þor- steins M. Jónssonar, Magnúsar Ármann og Kevin Standford, keypti hlut Sigurð- ar. Nú slapp- ar hann af í Skerjafirðin- um en Mat- eria Invest berst með skulda- baggann í Lands- bankanum. 15 30 2,25%eru mínúturnar sem liðu frá því að viðskipti með Skipti hófust á miðvikudag þar til þau voru stöðvuð vegna yfirtökutilboðs Existu. er verð á einu grammi af gulli í dollurum. eru stýrivextir Seðlabanka Bandaríkjanna. SÍMA NÚM ER MARKAÐARINS: 512 5000, fax: 512 5301, rit stjorn@markadurinn.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Aug lýs ingadeild: auglys ing ar@markadurinn.is Veffang: visir.is B A N K A H Ó L F I Ð Brosir breitt Við stöndum upp úr Markaðurinn, viðskiptablaðFréttablaðsins, er með 55% meiri lestur en Viðskiptablað Morgunblaðsins miðað við 20–45 ára en 46% meiri lestur miðað við 25–49 ára. skv. könnun Capacent 1. nóv. 2007–31.jan. 2008 20–45 ára 29,1% 18,7% M ar ka ðu rin n V ið sk ip ti – M or gu nb la ði ð 25–49 ára 33,0% 22,6% M ar ka ðu rin n V ið sk ip ti – M or gu nb la ði ð Viðskiptafréttir... ...alla daga Ljóst er að margur makinn var pirraður um páskahelgina. Ástæðan er sú að lykilstarfs- menn í Landsbankanum og Glitni voru kallaðir heim úr fríum erlendis. Mikið lá á að klára ákveðin mál innan bank- anna og fóru margar sögusagnir á flug varðandi hlut FL Group í Glitni. Þó að einhver bið verði á að hreyfing komist á þann eignarhlut voru lögfræðingar innan Glitnis að störfum um páskahelgina. Sömu sögu var að segja um lögfræðinga hjá Landsbankanum sem gerðu hlé á skíðaferðum með fjölskyld- unni áður en brekkurnar voru sigraðar á nýjan leik. Vinnan hefur alltaf forgang Davíð Oddsson seðlabankastjóri var öryggið uppmálað þegar hann svaraði fyrir stýrivaxta- hækkun bankans í gær í hádegis- fréttum Stöðvar 2. Hann sagði vaxtahækkunina í gær einhverja þá mestu sem Seðlabankinn hefði farið í í einu lagi síðan núverandi skipan peningamála var tekin upp árið 2001. Menn hefðu því þurft að hafa drjúgar ástæður fyrir henni. Athugulir sjónvarpsáhorfendur tóku eftir að Davíð var nýklipptur og hafði stytt sitt hrokkna hár nokkuð mikið. Höfðu einhverjir á orði að kallinn liti vel út þrátt fyrir spennuna sem hefur ríkt á mörkuðum upp á síðkastið. Nýklipptur bankastjóri

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.