Fréttablaðið - 27.03.2008, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 512 5000
FIMMTUDAGUR
27. mars 2008 — 83. tölublað — 8. árgangur
VEÐRIÐ Í DAG
VINNUVÉLAR
Vinsamlegir risar
SÉRBLAÐ UM VINNNUVÉLAR
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG
VelduektaMyllu
Heimilisbrauð
- brauðið sem allir
á heimilinu velja
Skráning á
landsbanki.is
LÖGREGLUMÁL Tveir erlendir karlmenn voru gripnir í
Leifsstöð fyrr í vikunni þar sem þeir voru á leið úr
landi með milljónir íslenskra króna í fórum sínum.
Þeir eru grunaðir um að hafa svikið fjármunina út
úr hraðbönkum hér á landi.
Samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins komu
mennirnir, sem eru frá Rúmeníu og Þýskalandi,
hingað til lands um páskana. Þeir voru með fjölmörg
greiðslukort í fórum sínum. Talið er að þeir hafi
verið búnir að stela upplýsingum af segulröndum
korta og færa þær yfir á önnur kort sem þeir notuðu
við svikin. Þeir fóru vítt og breitt um höfuðborgina
og sviku milljónir út úr hraðbönkum. Grunur leikur
að þeir hafi jafnvel náð á annan tug milljóna króna
með þessari aðferð.
Mennirnir voru á leið úr landi með fenginn þegar
lögreglan og tollgæslan á Suðurnesjum stöðvuðu þá.
Mennirnir, sem báðir eru á fertugsaldri, voru
úrskurðaðir í gæsluvarðhald í gær fram til mánu-
dags. Málið verður rannsakað hjá lögreglunni á
höfuðborgarsvæðinu þar sem brotavettvangur er
þar. - jss
Lögregla og tollgæsla gripu tvo menn glóðvolga með þýfi á leið úr landi:
Sviku milljónir úr hraðbönkum
VIÐSKIPTI Stjórn SPRON var heim-
ilt að birta opinberlega upplýsing-
ar um sölu þriggja stjórnarmanna
SPRON á stofnfjárbréfum skömmu
áður en félagið var skráð á mark-
að, að mati Fjármálaeftirlitsins
(FME). Þetta kemur fram í svari
Jónasar Fr. Jónssonar og Hákonar
Más Péturssonar, fyrir hönd FME,
við spurningum sem Samtök fjár-
festa sendu eftirlitinu eftir að fjall-
að var um sölu stjórnarmannanna
á stofnfjárbréfum á síðum Frétta-
blaðsins.
Þetta fer þvert gegn áliti stjórn-
ar SPRON sem fram kom í frétta-
tilkynningu frá stjórnarmönnum 7.
febrúar síðastliðinn. Í henni sagði
meðal annars: „Vilji stjórnar
SPRON stóð alltaf til þess að upp-
lýsingar um viðskipti innherja
yrðu opinberar en slíkt var ekki
heimilt samkvæmt niðurstöðu
Fjármálaeftirlitsins [...] Stjórn
SPRON var beinlínis óheimilt að
breyta öðruvísi en hún gerði.“
Í bréfi Fjármálaeftirlitsins til
stjórnar Samtaka fjárfesta frá því
í gær kemur fram hið gagnstæða.
„Fjármálaeftirlitið bannar hins
vegar ekki aðilum að birta upplýs-
ingar um slík viðskipti [með stofn-
fjárbréf] ef þeir kjósa að gera slíkt
að eigin frumkvæði og er stjórn-
endum því heimilt að birta slíkar
upplýsingar.“
Vilhjálmur Bjarnason, fram-
kvæmdastjóri Samtaka fjárfesta,
segir álit FME benda til þess að um
alvarlegt mál sé að ræða. „Það er
bent á það í bréfi FME að almennar
reglur samningaréttar og almenn
hegningarlög verndi meðal annars
fjárfesta gagnvart fjársvikum.
FME kemst einfaldlega að því að
allt sem stjórn SPRON hefur sagt
um sölu stjórnarmanna skömmu
eftir að hún ákvað að skrá SPRON
á markað, er ómarktækt og rangt.
Þetta er allt saman mjög sláandi og
ljóst að þessi sala stjórnarmanna
SPRON inn á óskráðan markað
snertir hundruð fjárfesta, og þeir
fylgjast grannt með framvindu
þessa máls.“
Jóna Ann Pétursdóttir, almanna-
tengslafulltrúi SPRON, sagði engan
hjá SPRON hafa séð bréfið og því
gæti fyrirtækið ekki tjáð sig um
það að svo stöddu.
Ekki er tekin afstaða til þess í
bréfinu, eða upplýst að öðru leyti,
hvenær SPRON óskaði eftir skrán-
ingu á markað. Ákvörðun var tekin
um skráningu á stjórnarfundi 17.
júlí en stjórnarmennirnir Gunnar
Þór Gíslason, Ásgeir Baldurs og
Hildur Petersen seldu stofnfjár-
bréf fyrir rúmlega 196 milljónir að
nafnvirði, tveggja til þriggja millj-
arða að raunvirði, skömmu eftir
fundinn. - mh / sjá síðu 6
Fjármálaeftirlitið ósammála
stjórnarmönnum SPRON
Stjórn SPRON var heimilt að upplýsa um sölu stjórnarmanna á stofnfjárbréfum skömmu áður en félagið
var skráð á markað samkvæmt Fjármálaeftirlitinu. Þetta fer þvert gegn áliti sem stjórnin sendi frá sér.
HALLBERA GUÐNÝ GÍSLADÓTTIR
Fótboltastelpa
í rauðu
tíska heilsa heimili
Í MIÐJU BLAÐSINS
Söng ástaróð til Dorritar
Mugison er yfir sig hrifinn af
forsetafrúnni, eins og
í ljós kom á Ísafirði á
dögunum.
FÓLK 50
Kjúklingalundir í mörg-
um myndum
Ljósmyndarinn Spessi
heldur sýningu og
sendir frá sér bók þar
sem kjúklingalundir,
„fajitas“, eru í
aðalhlutverki.
FÓLK 42
Með starfsemi
um allt land
Sjávarútvegsfyrir-
tækið Brim hf.
er tíu ára.
TÍMAMÓT 30
FÓLK Arnór Dan Arnarson, söngv-
ari sigursveitar síðustu Músík til-
rauna, Agent
Fresco, þreytir
frumraun sína
í óperuheimin-
um hinn 6. apríl
þegar Óperu-
stúdíó Íslensku
óperunnar
frumsýnir óper-
una Cosi fan
tutte eftir Moz-
art. Arnór hefur
undanfarið ár
verið að læra klassískan söng við
FÍH og segir hann nýtast sér vel
í rokkheimum en Arnór er lýr-
ískur barítón. Hann taldi fremur
ólíklegt að félagar hans úr hljóm-
sveitinni myndu koma og berja
hann augum á sviðinu.
- fgg / sjá síðu 50
Arnór Dan:
Sigurvegari
Músíktilrauna
syngur Mozart
HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA GRÆJUR ATVINNA TILBOÐ VINNUVÉLAR O.FL.
Hallbera Guðný Gísladóttir er ósjaldan í rauðu enda æfir hún fótbolta með Val. Það kemur þó ekki í veg fyrir að hún klæðist þeim lit við önnur tækifæri.
sem ég fer í henni í bæinn lendi ég í einhverju óvæntu. Nú síðast endaði ég á því að fá far með götusópara sem gerist nú ekki á hverjum degi,“ segir hún kímin. „Eftir það er ég eiginlega hætt að þora íhenni í bæinn “ b ti hú
Álagakápan rauða
ATHYGLISVERÐ TÍSKA
Indverski hönnuðurinn Manish Arora er alltaf svolítið öðruvísi og vakti hönnun hans fyrir næsta vetur
athygli á tískuvikunni í París
nú í febrúar.
TÍSKA 2
RJÚKANDI VÖFFLUR
Vöfflujárn þykja hið mesta
þarfaþing í eldhúsið og hægt
að fá þau í ýmsum gerðum.
HEIMILI 4
Í hvert skipti
sem Hallbera
fer í kápunni
í bæinn gerist
eitthvað óvænt.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
AL
LI
vinnuvélarFIMMTUDAGUR 27. MARS 2008
Tryggingafélög
mæla með að eigendur
vinnuvéla tryggi tæki sín.
BLS. 10
Úrkoma sunnanlands Veðrið
í dag er mjög keimlíkt því sem var
í gær, milt við ströndina sunnant-
il, en frost norðanlands. Í dag er
úrkomubakki við suðausturströnd-
ina sem fikrar sig vestur og veldur
rigningu við suðurströndina.
VEÐUR 4
-4-3
-2
1 3
ARNÓR DAN
ARNARSSON
BEST AÐ KAUPA SÉR KAGGA Í KREPPUNNI Á annað hundrað notaðir bílar seldist í gær á útsölu hjá Ingvari Helgasyni og var opið
langt fram á kvöld. Að sögn Dags Jónassonar sölustjóra myndaðist biðröð við dyr bílasölunnar í gærmorgun og skapaðist góð
stemning. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Ísland vann
Slóvakíu
Þriðji sigurleik-
ur Íslands í
röð.
ÍÞRÓTTIR 46