Fréttablaðið - 27.03.2008, Blaðsíða 8
27. mars 2008 FIMMTUDAGUR
SAMGÖNGUR Fyrir skömmu lagði
samgönguráðherra fram áætlun
um Suðurstrandarveg, rúmlega
58 kílómetra veg á milli Þorláks-
hafnar og Grindavíkur sem ætlað
er að tengja saman Suðurnes og
Suðurland. Veginum var lofað
þegar Suðurkjördæmi varð til
við kjördæmabreytinguna fyrir
fimm árum en framkvæmdum
hefur oft verið frestað.
Til stendur að fyrri áfangi, frá
Þorlákshöfn, verði boðinn út um
mánaðamótin en þrátt fyrir að
íbúar kjördæmisins fagni því
hefur vegurinn strax valdið deil-
um í Þorlákshöfn. Deila menn um
hversu nálægt byggðinni vegur-
inn verður og tala jafnvel um
skipulagsslys.
„Mér finnst vegurinn allt of
nálægt og reikna með að ef allt
sem stendur til að byggja verður
byggt verði búið að kljúfa þorpið
innan tíu til fimmtán ára,“ segir
Einar Sigurðsson, útgerðarmað-
ur og fyrrverandi oddviti. Einar
segir mikla uppbyggingu hafa átt
sér stað í Þorlákshöfn undanfarin
ár og allt líti út fyrir að hún haldi
áfram með
sama krafti.
„Ég hélt að
það væri
liðin tíð að
menn vildu
fá alla
umferð í
gegnum
þorpið og
mér finnst
það engin
rök að hægt
sé að færa
veginn eitt-
hvert annað eftir nokkur ár,“
segir Einar.
Jón Haraldsson, félagsmaður í
hestamannafélaginu Háfeta í
Þorlákshöfn, tekur í sama streng.
Hann segir hestamenn hafa ætlað
að útbúa skeiðvöll við hesthúsa-
hverfi bæjarins. „Þá gátum við
ekki verið með nógu langa skeið-
braut á vellinum því byggðin er
áætluð of nálægt.“ Jóni finnst
þetta skjóta skökku við þar sem
sveitarfélagið eigi nóg land en
Suðurstrandarvegurinn krói
byggðarlagið af.
Hann segir hestamenn hafa
rætt þetta við bæjarstjórn Ölfuss
en lítið hafi komið út úr viðræð-
unum. „Við ætluðum að gera völl-
inn góðan fyrir unglingalands-
mótið í sumar en þá hefðum við
viljað gera löglegan völl. Það er
umhugsunarvert að vegurinn
skuli vera fyrir áður en búið er
að leggja hann,“ segir Jón.
„Það eru skiptar skoðanir um
alla hluti og meðal annars um
hvað nálægt vegurinn á að vera,“
segir Ólafur Áki Ragnarsson,
bæjarstjóri í Ölfusi. Segir hann
veginn fylgja byggðinni í Þor-
lákshöfn. „Hugsunin er að Þor-
lákshöfn verði í alfaraleið og að
vegurinn nýtist sem best þéttbýl-
inu.“ Um 200 metrar eiga að vera
frá vegi að byggð þar sem vegur-
inn liggur meðfram byggðinni.
Þar á að vera grænt svæði svo
vegurinn nái aldrei að byggð.
Svæði til nýbygginga er vestan
við núverandi byggð og teygi sig
að Suðurstrandarvegi. Þá segir
hann veginn geta færst ofar í
landið síðar meir ef byggðin þró-
ist þannig. olav@frettabladid.is
Suðurstrandarvegur
sagður kljúfa bæinn
Skiptar skoðanir eru um legu nýs Suðurstrandarvegs við Þorlákshöfn. Er gagn-
rýnt hversu nálægt byggðinni vegurinn liggur og þá að hann þrengi að framtíð-
arbyggingarlandi. Bæjarstjóri segir veginn geta færst ofar í landið síðar meir.
SUÐURSTRANDARVEGUR VIÐ ÞORLÁKSHÖFN Deilt er um hversu nálægt byggðinni í Þorlákshöfn nýr Suðurstrandarvegur á að vera
og óttast sumir að vegurinn þrengi að framtíðarbyggingarlandi. MYND/LANDMÓTUN
ÓLAFUR ÁKI
RAGNARSSON
TÍBET, AP Í Lhasa, höfuðborg Tíbets,
er lögregluþjónn á nánast hverju
götuhorni og hermenn standa vörð
um opinberar byggingar, að því er
erlendir fréttamenn í borginni
segja.
Kínversk stjórnvöld buðu í gær
26 erlendum fréttamönnum í ferð
til Tíbets í þeim tilgangi að sýna
fram á að daglegt líf þar væri
komið aftur í eðlilegar skorður
eftir öldu mótmæla sem hófst 14.
mars og var barin niður af hörku.
Á einni þriggja eftirlitsstöðva
lögreglunnar, sem eru á 65 kíló-
metra langri leið frá alþjóðaflug-
vellinum í Tíbet inn í höfuðborg-
ina, sagði einn fimm lögregluþjóna
að stöðin hefði verið sett upp 14.
mars, sama dag og mótmælin hóf-
ust, en hann hélt því fram að lög-
reglan væri þarna einungis að
athuga „hvort fólk notaði ekki
öryggisbelti, færi ekki að umferð-
arreglum eða væri með falsaðar
númeraplötur“.
Víða mátti sjá vopnaða hermenn
standa vörð um byggingar, sem
virtust vera opinberar skrifstofu-
byggingar. Víða í borginni mátti
sjá brunnin hús.
Uppreisn Tíbeta nú í mánuðin-
um gegn yfirráðum Kína var sú
mesta sem orðið hefur í nærri tvo
áratugi. Kínversk stjórnvöld hafa
brugðist ókvæða við, enda hefur
uppreisnin orðið til þess að aðdrag-
andi Ólympíuleikanna í Kína hefur
ekki orðið jafn snurðulaus og
stefnt var að. - gb
Kínversk stjórnvöld fylgja erlendum fréttamönnum í skoðunarferð til Tíbets:
Lögregluþjónn á hverju horni
MÓTMÆLI Á INDLANDI Flóttamenn frá
Tíbet mótmæla í Srinagar á Indlandi.
NORDICPHOTOS/AFP
ÞORLÁKSHAFNARVEGUR ➜
FYRIRHUGUÐ LEGA
SUÐURSTRANDARVEGAR ➜
BYGGINGARLAND
➜