Fréttablaðið - 06.04.2008, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 06.04.2008, Blaðsíða 24
6 sport Í fyrsta sinn í mörg ár er Njarð-víkingurinn Egill Jónasson ekki lengur hæsti leikmaður Iceland Express-deildarinnar. Hinn 216 sm hái og 17 ára gamli Hvergerðingur Ragnar Nathana- elsson fékk nefnilega að stíga sín fyrstu spor með Hamri í deildinni í vetur. Ragnar kom inn á í sínum fyrsta leik þegar Hamar sótti Þórsara heim á Akureyri. Fyrsta karfan kom í óvæntum sigri Hamars á verðandi deildarmeisturum Kefla- víkur og í lokaleiknum gegn ÍR var Ragnar með 6 stig og 7 frá köst. Lárus Jónsson, fyrirliði Ham- ars, hefur fylgst með Ragnari undanfarin ár og hann sá mikinn mun á honum á þessu tímabili. „Hann hefur alla möguleika og það er undir honum sjálfum komið að verða góður. Áhuginn er að aukast hjá honum og hann stóð sig bara ágætlega í þeim leikjum sem hann tók þátt í hjá okkur í vetur. Hann var aðeins með okkur í fyrra en í vetur er hann búinn að vera á fullu. Það er þvílík breyting á honum, hann náði að troða í fyrsta sinn í vetur og núna treður hann á hverri einustu æfingu,“ segir Lárus sem segir hugarfar Ragn- ars geta hjálpað honum. „Hann hefur ágætis hugarfar og hann er frekar milli-nagli. Það á samt eftir að reyna almennilega á hann því hann er ungur og ekki búinn að spila mikið,“ segir Lárus en þrátt fyrir að vera þegar orðinn stór og mikill þá þarf strákurinn að styrkja sig. „Hann þarf að styrkja sig líkam- lega og þá sérstaklega miðju lík- amans því hann er svolítið valtur. Það gæti orðið auðvelt að ýta honum ef hann styrkir sig ekki. Það kemur því hann er svo ungur ennþá,“ segir Lárus. Ragnar hefur gengið í gegnum ýmislegt þrátt fyrir ungan aldur og um tíma var eins og hann ætl- aði ekki að enda í körfuboltanum en Ágúst Björgvinsson, þjálfari Hamars, hefur hjálpað stráknum mikið í vetur og kveikt áhuga hjá honum á að reyna að ná langt í körfuboltanum. Ragnar hefur aldrei verið val- inn í unglingalandslið sem mörg- um finnst skrítið því ef það er eitt- hvað sem íslenskan körfubolta vantar þá eru það fleiri stórir menn. Hans tími mun þó örugg- lega koma haldi hann áfram á sömu braut. RISINN ÚR HVERAGERÐI 1. Trúðu alltaf á sjálfan þig og vertu sjálfum þér trúr. Þú munt alltaf vekja athygli vegna hæð- arinnar og kemst ekki hjá því að vera í sviðsljósinu. Vertu hógvær og mundu alltaf hvar þú byrjaðir. Þú kaust ekki að vera stór. Það er bara bónus! Þú ert ekki öðruvísi en aðrir þótt þú sért hærri en fólk mun alltaf halda það. Hæðin getur hins vegar boðið þér upp á ýmsa möguleika en það er undir þér sjálfum komið hvernig þú vinnur úr þeim. 2. Mundu að menntun er máttur. Aldrei gleyma að körfubolti er leik- ur en menntun undirbýr þig fyrir lífið. Það á við hvort sem þú ert 220 sm á hæð eða 120 sm. Þú verður að finna rétt jafnvægi þar á milli. 3. Settu þér markmið og mundu að vera alltaf óhræddur við að reyna eitthvað nýtt. Það er betra að reyna eitthvað og mistakast en að reyna ekki og vita aldrei hvort þú getur það! Fólk mun hafa ákveðnar væntingar til þín vegna hæðarinnar en mundu að „fólk“ stjórnar ekki lífi þínu. Treystu þeim sem hafa hjálpað þér hingað! 4. Þeir sem VILJA verða betri finna alltaf „aukatíma“ til að æfa sig. Mundu að þú „spilar eins og þú æfir“. Æfðu rétt og þá spilar þú rétt! Endurtekning, endurtekning... enginn verður meistari án þess að eyða miklum tíma í að æfa það sem hann er búinn að læra. Þetta á ekki síst við um hávaxna leikmenn. 5. Mundu svo að lokum að svona stór líkami er vél sem þarf gott eldsneyti. Borðaðu rétt og hugsaðu vel um líkamann og þá eru þér allir vegir færir! GANGI ÞÉR VEL! Þinn vinur, Pétur. 5 RÁÐLEGGINGAR PÉTURS GUÐMUNDSSONAR TIL RAGNARS Tíu næstu menn til að komast á listann yfi r 20 bestu knatt- spyrnumenn Íslands frá 1946-2008: BJARNI SIGURÐSSON Varði mark Skaga- manna þegar liðið varð tvöfaldur meistari tvö ár í röð frá 1983 og 1984. Varð tvisvar sinnum bikar- meistari þrjú ár í röð, fyrst 1982-84 með ÍA og svo 1990-92 með Val. GUÐMUNDUR STEINSSON Annar af aðeins tveimur leikmönn- um sem hafa skorað 100 mörk í efstu deild. Varð fjórum sinnum Íslandsmeistari ogskoraði sex sinn- um yfir tíu mörk á átta ára tímabili frá 1984 til 1991. GUÐMUNDUR ÞORBJÖRNSSON Er þriðji marka- hæsti leikmaður Vals frá upphafi þrátt fyrir að leika sem miðjumaður. Varð fjórum sinn- um Íslandsmeistari og kláraði ferilinn sem atvinnumaður í Sviss. KARL ÞÓRÐARSON Einn skemmtilegasti vængmaður Íslands frá upphafi. Varð fimm sinnum Íslandsmeistari með Skagamönnum og það liðu 20 ár milli þess fyrsta 1974 og þess síðasta 1994. MATTHÍAS HALLGRÍMSSON Einn mesti markahrókur Íslands frá upphafi og sá eini sem hefur skorað yfir 90 mörk í efstu deild og yfir tíu mörk með A-landsliðinu. ÓLAFUR ÞÓRÐARSON Líklega baráttuglaðasti leikmaður sem Ísland hefur eignast. Vann sjö Íslandsmeist- aratitla og fimm bikarmeistaratitla með Skagamönn- um og spilaði 72 landsleiki. RAGNAR MARGEIRSSON Einn hæfileikaríkasti framherji sem Ísland hefur eignast. Skoraði 83 mörk í efstu deild fyrir Keflavík, Fram og KR en tókst aldrei að verða Íslandsmeistari. SIGURÐUR DAGSSON Er þekktastur fyrir að halda hreinu á móti Eusebio og liði Benfica fyrir framan 18 þúsund manns á Evr- ópuleik á Laugardalsvellinum. SÆVAR JÓNSSON Einn traustasti varnarmaður Íslands frá upp- hafi. Spilaði 201 leik á ferlinum, alla fyrir Val, og varð fjórum sinn- um Íslandsmeistari með Val. ÞÓRÐUR ÞÓRÐARSON Lykilmaður í fyrsta gullaldarliði Skagamanna, skoraði 103 mörk í 139 leikjum með Skagamönnum, varð fjórum sinnum markakóngur deildarinnar og sex sinnum Íslandsmeistari. TUGURINN Ragnar Ágúst Nathanaelsson Aldur... 17 ára.Hæð... 216 sm.Þyngd... 125 kg.Skónúmer... 51/15 US.Lítur upp til... Pétur Guð-mundsson er sá eini sem ég þarf að líta upp til.Önnur áhugamál.. Hef mikinn áhuga á tónlist, bæði að spila og hlusta. Hinn 17 ára Ragnar Nathanaelsson spilaði sína fyrstu leiki í úrvalsdeild í vetur og varð um leið hæsti leikmaður Iceland Express-deildarinnar. Hann nálgast óðum Pétur Guðmundsson og er enn að stækka. Pétur fylgist vel með þróuninni hjá strákn- um sem hefur ekki enn fengið tækifæri með yngri landsliðum Íslands. Eftir Óskar Ófeig Jónsson Pétur Guðmundsson er sá körfu- boltamaður sem hefur náð lengst en hann spilaði meðal annars með Los Angeles Lakers, San Antonio Spurs og Portland Trailblazers. Pétur er sjálfur 218 sm á hæð og þeir Ragnar hafa hist, gerðu það um síðustu áramót og Pétur hefur sýnt mikinn áhuga á að hjálpa Ragnari í framhaldinu. Hann hefur sem dæmi boðið stráknum til sín þegar Ragnar fer í körfu- boltabúðir í Duke í Bandaríkjun- um í sumar. Pétur ráðleggur Ragnari hér neðar á síðunni. „Ég trúi því að hann geti náð langt. Það er erfitt að fylgjast með úr svona mikilli fjarlægð en ég veit að Gústi er að gera góða hluti fyrir Ragnar og ég treysti honum,“ sagði Pétur um strákinn. Lárus segir það hafa verið fróð- legt að fylgjast með þeim Pétri og Ragnari. „Það er gaman að segja frá því að Pétur kom á nokkrar æfingar milli jóla og nýárs. Hann sagði honum meðal annars að fara aldrei út úr íþróttahúsinu án þess að troða. Það kveikti tvímælalaust í honum því hann hefur náttúru- lega ekki margar fyrirmyndir hér á Íslandi nema kannski Egil,“ segir Lárus. Lárus vonast til þess að Ragnar haldi áfram á þeirri braut sem hann komst á í vetur. „Það skiptir máli að halda honum að körfubolta því það er eins með hann og alla aðra að það er hægt að búa til áhuga. Ég er mjög bjartsýnn en það er undir honum komið hvað hann ætlar að ná langt. Hann getur farið nákvæmlega eins langt og hann vill.“ Pétur kom á nokkrar æfingar milli jóla og nýárs. Hann sagði honum meðal ann- ars að fara aldrei út úr íþróttahús- inu án þess að troða. Það kveikti tvímæla- laust í honum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.