Fréttablaðið - 08.04.2008, Blaðsíða 35
ÞRIÐJUDAGUR 8. apríl 2008 19
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 550 5000.
Alfa Elfarsdóttir segir nafnið sitt
jafnan hafa vakið athygli, allt frá
því hún var barn. „Þegar ég segi
nafnið mitt í síma þá hvá margir og
halda að þeir séu að heyra vitlaust.
Svo byrja þeir að giska: „Elsa?
Alma? Elfa?“ „Nei,“ svara ég og
reyni að tala skýrt. „Alfa.“
En veit hún hvernig það kom til
að hún var skírð Alfa? „Mamma
heyrði nafnið hjá konu frænda
míns og varð strax hrifin af því.
Mér hefur stundum þótt erfitt að
bera það en á móti kemur að mér
er aldrei gleymt. „Oft er sagt við
mig: „Heyrðu já, þú heitir Alfa. Ég
man alltaf nafnið þitt.“
Alfa segir Ölfurnar hafa verið
átta hér á Íslandi þar til nýlega að
sú níunda bættist við. „Ég var að
fá nöfnu. Hún er dóttir vinkonu
minnar sem er úr Hólminum eins
og ég.“
Eins og flestir vita er Alfa fyrsti
stafur gríska stafrófsins enda
getur Valli ljósmyndari ekki stillt
sig um að spyrja: „Áttu ekki syst-
ur sem heitir Beta? „Nei,“ svarar
Alfa hlæjandi. „En ég hef grínast
með það að ég ætti að fá mér eftir-
nafnið Beta. Það hljómar vel: Alfa
Beta Elfarsdóttir.“ Svo kemur í ljós
að hún hefur farið til grísku eyjar-
innar Kýpur. „Heimamenn héldu að
ég væri að grínast þegar ég sagði
nafnið mitt og út úr svipnum mátti
lesa: „Ha, nei, þú heitir ekki A!“
- gun
NAFNIÐ MITT: ALFA ELFARSDÓTTIR
Mér er aldrei gleymt
Alfa er að hugsa um að taka sér eftirnafnið
Beta. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
Kristín Marteinsdóttir,
Hafraholti 30, Ísafirði,
varð bráðkvödd laugardaginn 5. apríl. Jarðarförin
verður auglýst síðar.
Svanbjörn Tryggvason
Brynjar Svanbjörnsson Bára Berg Sævarsdóttir
Marteinn Svanbjörnsson Elín Hólm
Tryggvi Svanbjörnsson
Aron Svanbjörnsson
og barnabörn.
Móðir okkar,
Ástríður Hafliðadóttir,
er látin. Jarðarför verður auglýst síðar.
Jóna Ágústsdóttir
Hafdís Ágústsdóttir
Guðmundur Karl Ágústsson
Ástrún Björk Ágústsdóttir.
Elskulegur eiginmaður og vinur, faðir,
tengdafaðir og afi,
Gunnar Örn Gunnarsson,
myndlistarmaður, Kambi, Holtum,
lést 28. mars á gjörgæsludeild Landspítalans við
Hringbraut. Útför hans fer fram frá Neskirkju í
Reykjavík, föstudaginn 11. apríl kl. 13.00. Jarðsett
verður í Hagakirkjugarði. Blóm og kransar vinsamlega
afþakkaðir en þeim sem vildu minnast hans er bent á
að láta SÁÁ njóta þess.
Þórdís Ingólfsdóttir,
Sigríður Gunnarsdóttir Rúnar V. Þórmundsson
Vilhjálmur Jón Gunnarsson
Gunnar Guðsteinn Gunnarsson Hafdís Sigurjónsdóttir
Rósalind María Gunnarsdóttir
María Björk Gunnarsdóttir Rasmus Winstrup
Johansen
Snæbjörg Guðmunda Gunnarsdóttir
og barnabörn.
Ástkær faðir minn, tengdafaðir og afi,
Gunnar G. Guðmundsson
frá Rafnkelsstöðum, Garði, Kirkjuvegi 5,
Keflavík,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja þriðjudaginn 1.
apríl. Gunnar verður jarðsunginn frá Útskálakirkju
fimmtudaginn 10. apríl kl. 14.00. Þeir sem vilja
minnast hans er bent á að styrkja Heilbrigðisstofnun
Suðurnesja, þar er einstakur hópur starfsfólks.
Unnur Sigurðardóttir Hreiðar Gíslason
Thelma María og Aron Ingi.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Fjóla Eiríksdóttir,
Dvalarheimilinu Grund,
áður til heimilis að Lynghaga 6,
lést miðvikudaginn 2. apríl.
Útförin mun fara fram í kyrrþey að hennar ósk.
Helga Hallbjörnsdóttir Eyjólfur Magnússon Scheving
Dóra Hallbjörnsdóttir Hálfdán Jónsson
Sigríður Hallbjörnsdóttir Kristjón Kristjónsson
Erla Hallbjörnsdóttir Ásgeir Guðmundsson
Lilja Hallbjörnsdóttir Atli Ingvarsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
Jón Egilsson,
fyrrv. verslunarmaður,
Hraunvangi 3, áður til heimilis að
Ölduslóð 10, Hafnarfirði,
lést sunnudaginn 6. apríl á St. Jósefsspítala.
Útför auglýst síðar.
Egill Jónsson Kristjana Magnúsdóttir
Ásbjörn Jónsson Unnur S. Einarsdóttir
Viðar Jónsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
Einar Jónsson
fyrrv. gjaldkeri Sambands íslenskra sam-
vinnufélaga, Furugrund 30, Kópavogi,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju í dag, þriðjudag,
8. apríl kl. 15.00.
Jón Reynir Einarsson Margrét Ólafsdóttir
Jóhann Þór Einarsson Bára Magnúsdóttir
Sigurður Einarsson Sabine Einarsson
Sigríður Einarsdóttir Ágúst S. Ágústsson
Brandur Einarsson
Einar Einarsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Eiríkur Júlíus Sigurðsson,
vélstjóri, Smáratúni 12, Keflavík,
verður jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju, fimmtu-
daginn 10. apríl kl. 14.00.
Anna Vernharðsdóttir
Leifur Eiríksson Hildur Ingvarsdóttir
Guðbjörg Hrefna Blanar Richard Blanar
Örn Sævar Eiríksson Guðlaug Hulda Halldórsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir og afi,
Guðjón Sigurðsson,
Kleppsvegi 64, áður til heimilis að Stóragerði 12,
andaðist á Hjúkrunarheimilinu Skjóli 27. mars. Útförin
fer fram frá Fossvogskapellu fimmtudaginn 10. apríl
kl. 15.00.
Logi Guðjónsson
Björn Guðjónsson Guðbjörg Gunnarsdóttir
Gylfi Már, Oddný Þóra og Guðjón Örn.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi, langafi og bróðir,
Valdimar Ólafsson,
yfirflugumferðarstjóri,
Lundahólum 3,
varð bráðkvaddur miðvikudaginn 2. apríl. Jarðarförin
fer fram í Fella- og Hólakirkju föstudaginn 11. apríl
klukkan 13.00.
Helga Árnadóttir
Alexander Einar Valdimarsson
Ragnheiður Valdimarsdóttir Páll Arnór Pálsson
Þórunn Erlu-Valdimarsdóttir Eggert Þór Bernharðsson
Lilja Valdimarsdóttir
Trausti Valdimarsson Herdís Guðjónsdóttir
Vala Sigurlaug Valdimarsdóttir Kristófer Svavarsson
Ásdís Valdimarsdóttir Michael Stirling
Árni Björn Valdimarsson
Ólafur Kr. Valdimarsson Guðrún Ósk Hjaltadóttir
Vífill Valdimarsson
Sindri Valdimarsson Lára Guðrún Magnúsdóttir
Kristín Þ. Valdimarsdóttir Veigur Sveinsson
Gestur og Ingileif Steinunn Ólafsbörn
barnabörn og barnabarnabörn.
Einlægt þakklæti sendum við öllum fyrir
auðsýnda samúð, hlýhug og vinarþel við
fráfall
Tómasar Tómassonar,
fyrrverandi sparisjóðsstjóra,
Keflavík.
Starfsfólki á Heilbrigðistofnun Suðurnesja þökkum
við sérstaklega fyrir ástúðlega umönnun og ljúft
viðmót. Guð blessi ykkur öll.
Halldís Bergþórsdóttir og fjölskylda.