Fréttablaðið - 14.04.2008, Side 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 512 5000
MÁNUDAGUR
14. apríl 2008 — 101. tölublað — 8. árgangur
HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA GRÆJUR ATVINNA TILBOÐ VINNUVÉLAR O.FL.
Sængur, koddar og margt fleira mjúkt fæst á góðu verði í Ikea þar sem þessa dagana standa
yfir mjúkir
dagar. Fátt er jafn notalegt og að sofa
við ný og
hrein rúmföt.
Tekkolía fæst í mörgum matvöru-verslunum en hana er nauðsynlegt að bera reglulega á allt úr tekki sem fyrirfinnst á heimilinu. Hús-gögnin verða svo miklu fallegri og svo er eitthvað
hátíðlegt
við lyktina.
Garðkönnur og annað til útiverka er nokkuð sem má fara að fjárfesta í til að koma sér í garðverkagírinn því allt bendir til þess að vorið sé að koma. Ekki er verra að hafa könnurnar svolítið sumarlegar.
Leið þeirra lá óvænt saman í þröngu og afviknu
stræti í Búdapest, en það var ást við fyrstu sýn;
hennar megin.
„Ég var alls ekki að leita, en þar sem hann stóð
svona vel með farinn og tigminni áð
„Sölumaðurinn sagði mér sögu grammófónsins,
en hann var framleiddur 1934 og þjónaði eigend-
um sínum á stríðsárunum. Honum fylgdi ein
hljómplata; þykk og talsvert minni í ið
LP-plöturnar en
Ungverskt augnayndi
Sigrún Jóhannsdóttir stærðfræðikennari með son sinn, Daníel Svein Jörundsson, í fanginu en á borðstofuborðinu stendur stáss-
legur grammófónn sem Sigrún fann á rölti sínu um antíkmarkaði Búdapest.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
ÁRMÚLA 42 - SÍMI 553 4236BÍLSKÚRS OG IÐNAÐARHURÐIR• Hurðir til á lager • Smíðað eftir máli• Eldvarnarhurðir • Öryggishurðir
Höf›abakka 9 Sími: 511-1575 www.hreyfigreining.is
S J Ú K R A fi J Á L F U N O G L Í K A M S R Æ K T
N‡r sjúkrafljálfari
Steffan Christensen sjúkrafljálfari B.Sc.kemur aftur til starfa.
VEÐRIÐ Í DAG
Engin fasteignasala í heimi selur fleiri fasteignir en RE/MAX
Dorothea E.
Jóhannsdóttir
Sölufulltrúi
898 3326
dorothea@remax.is
Bergsteinn
Gunnarsson
Löggiltur Fasteigna
fyrirtækja og skipasali
Ertu að spá í að selja?
Frítt söluverðmat
FRAMÚRSKARANDI SÖLUFULLTRÚAR FRAMÚRSKARANDI ÁRANGUR
UMM er glænýr
heilsubiti úr
spennandi hráefniSmiðjuvegi 76 • Kópavogi
Baldursnesi 6 • Akureyri
Mikið úrval af
upphengdum salernum
Opið virka daga frá 8 -18
laugardaga frá10 -15
tengi.is
SIGRÚN JÓHANNSDÓTTIR
Ósvikin og eilítið rispuð
stríðsárasveifla
heimili
Í MIÐJU BLAÐSINS
HÍBÝLI - STOFA
Loftljós, stólar, borð
og litríkar stofur
Sérblað um híbýli og stofur
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG.
Ávallt sólar-
megin í lífinu
Heimir Eyvindsson
hljómborðsleikari er
fertugur.
TÍMAMÓT 18
híbýli - stofaMÁNUDAGUR 14. APRÍL 2008 Íslensk hönnunhlýtur Red Dot-verðlaunin
BLS. 6
Ólátabelgir snúa
bökum saman
Gallagher-
bræður ætla
að herja á Breta
og Bandaríkja-
menn.
FÓLK 22
Safnar fyrir
svítum
Sigríði Heiðberg í
Kattholti langar í
glæsilegri búr.
FÓLK 30
ATVINNUMÁL Fleiri skráningar fólks
frá aðildarríkjum EES hafa borist
Vinnumálastofnun nú en á sama
tíma í fyrra. „Þetta sýnir okkur að
enn er mikil eftirspurn eftir vinnu-
afli á hinum almenna vinnumark-
aði,“ segir Baldur I. Aðalsteinsson,
verkefnisstjóri hjá Vinnumála-
stofnun.
Baldur segir jafnframt að þessa
fyrstu þrjá mánuði ársins hafi 130
ný tímabundin atvinnuleyfi verið
gefin út og sé það nákvæmlega
sami fjöldi og í fyrra. Hins vegar
hafi helmingur tímabundnu leyf-
anna sem gefin voru í fyrra verið
tengdur stóriðjuframkvæmdum en
í ár hafi þau aðeins verið tvö.
„Helstu skýringuna myndi ég
telja vera lítið atvinnuleysi en við
búumst við að það aukist,“ segir
hann.
Baldur telur jafnframt að skýr-
inguna á fjölguninni megi rekja til
aukins vinnustaðaeftirlits Vinnu-
málastofnunar, sem kunni að leiða
til þess að skráningar skili sér betur
en á sama tíma í fyrra. „Undanfarið
höfum við til að mynda verið að
heimsækja veitinga- og skemmti-
staði á höfuðborgarsvæðinu í sam-
starfi við lögregluna til þess að
athuga með skráningar og atvinnu-
leyfi starfsmanna,“ segir hann.
Vilhjálmur Egilsson, fram-
kvæmdastjóri Samtaka atvinnulífs-
ins, segist ekki kunna beinar skýr-
ingar á þessari þróun. „Okkar
tilfinning hefur verið að störfum
hér á landi sé að fækka og eftir-
spurn eftir vinnuafli að dragast
saman miðað við það sem verið
hefur,“ segir hann og telur þessa
þróun því nokkuð á skjön við það
sem hafi verið að gerast í atvinnu-
lífinu að undanförnu. Störfum hafi
þó fjölgað á síðasta ári um fjögur til
fimm prósent og þar með hafi fleiri
störf verið í boði á þessu ári en í
fyrra. „Það getur vel verið að þess-
ar tölur endurspegli þá fjölgun en
þær held ég að segi ekki til um
hvernig framhaldið verður út þetta
ár,“ segir Vilhjálmur. - kdk
Enn eftirspurn
eftir erlendu
vinnuafli
Fleira fólk hefur komið hingað til lands til starfa en
í fyrra. Sérfræðingur Vinnumálastofnunar segir að
mikil eftirspurn sé enn eftir vinnuafli. Fjöldinn er á
skjön við þróun í atvinnulífinu.
BÚÐIN TÆMD Biðröð var við verslun Bónuss í Faxafeni í gær og fólki hleypt inn í
hollum. Veittur var þrjátíu prósenta afsláttur vegna þess að versluninni verður lokað
tímabundið. Guðmundur Marteinsson, framkvæmdastjóri Bónuss, segir framkvæmdir
vegna stækkunar verslunarinnar um 300 fermetra að hefjast. Ákveðið hafi verið að
veita afslátt og njóta þannig aðstoðar viðskiptavina við að tæma búðina.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
VÍÐAST BJARTVIÐRI Í dag verða
norðaustan 10-15 m/s við suðaust-
urströndina, annars hæg breytileg
átt. Snjókoma austan til í fyrstu
en léttir til síðdegis. Annars staðar
verður víðast bjartviðri.
VEÐUR 4
-1
2
-1
0
2
NOREGUR Norsk rannsókn sýnir
að þeir sem eiga börn lifa
lengur. Niðurstöður rannsóknar-
innar eru byggðar á gögnum frá
1,5 milljónum kvenna og karla á
árunum 1980-2003. Niðurstöð-
urnar sýna að þeir sem eiga
börn lifa lengur, hvort heldur
það eru konur eða karlar.
Á fréttavef Politiken kemur
fram að helmingur barnlausra
kvenna eigi frekar á hættu að
deyja þegar þær eru á aldrinum
45-68 ára en konur sem eiga tvö
börn. Þriðjungur barnlausra
karla eiga hins vegar frekar á
hættu að deyja á þessum aldri
en feður. - ghs
Norsk rannsókn á lífshögum 1,5 milljóna manna:
Foreldrahlutverkið lengir lífið
LÖGREGLUMÁL Lögregla mun ekki
geta handtekið meintan morðingja
frá Póllandi þrátt fyrir að hann
hyggist gefa sig fram við hana í
dag, nema henni berist handtöku-
beiðni frá pólskum yfirvöldum.
Slík beiðni hafði ekki borist í gær-
kvöldi.
Maðurinn er grunaður um aðild
að hrottalegu morði í Póllandi.
Hann fór til Íslands þegar hand-
tökuskipun á hann var gefin út í
Póllandi og hefur starfað hér
óáreittur síðan.
Í skriflegu svari við fyrirspurn
Fréttablaðsins segir Björn Bjarna-
son dómsmálaráðherra að verið sé
að semja frumvarp um breytingar
á framsalsreglum, í samræmi við
samning um aðild Íslands að evr-
ópskri handtökutilskipun.
„Með aðildinni á að tryggja að
handtökuskipunum gefnum út í
öðrum löndum verði unnt að fram-
fylgja hér á landi með eins ein-
földum hætti og kostur er,“ skrif-
ar Björn. Aðild Íslands að
tilskipuninni þarf að fullgilda í
ríkjum Evrópusambandsins og
með lagasetningu hér.
Lögregla hefur upplýsingar um
að maðurinn hafi einnig brotið af
sér hérlendis. sjá síðu 2
Dómsmálaráðherra segir von á breyttum reglum um erlendar handtökuskipanir:
Meintur morðingi ætlar til lögreglu
Arsenal út úr
myndinni
Manchester
United endaði
titilvonir Arsenal
í risaslagnum í
gær.
ÍÞRÓTTIR 26