Fréttablaðið - 14.04.2008, Blaðsíða 19
fasteignir
14. APRÍL 2008
Fasteignasalan Stakfell hefur til sölu fallega
þakíbúð í hjarta Reykjavíkur.
Um er að ræða fjögurra herbergja íbúð við Grund-
arstíg. Íbúðin er 143,6 fermetrar og skiptist í stofu,
forstofu, eldhús og baðherbergi, tvö svefnherbergi,
fataherbergi og sjónvarpshol.
Komið er inn í snyrtilega sameign. Forstofa er
með náttúrusteini á gólfi sem mætir ljósu parketti.
Stofan er björt með útgengi á svalir. Glæsilegt útsýni
er úr stofu og eldhúsi yfir Tjörnina. Eldhúsið er rúm-
gott með ljósri innréttingu og eyju og rauðar mósaík-
flísar eru milli efri og neðri skápa og á eyjunni. Borð-
plötur eru úr graníti og blöndunartækin vönduð. Sér-
smíðað borð er í borðstofu sem er opin við eldhús.
Baðherbergið er með náttúrusteini á gólfum og ljós-
um mósaíkflísum á veggjum. Granítborðplata er á
baðinnréttingu sem er úr ljóstónaðri eik. Bæði sturta
og baðkar eru á baðherberginu og salernið upphengt.
Þvottaaðstaða er inni á baðherberginu.
Á milli svefnherbergjanna tveggja er fataherbergi
sem gerir íbúðina opna og skemmtilega. Sjónvarps-
holið er stórt og og gæti nýst sem önnur stofa. Íbúðin
er björt og útsýnið á sér varla hliðstæðu. Einkastæði
fylgir íbúðinni.
Einnig fylgir íbúðinni ellefu fermetra geymsla
sem er innifalin í fermetrafjölda.
Þakíbúð í miðbænum
Glæsileg þakíbúð í hjarta bæjarins.
Bóas
Sölufulltrúi
699 6165
boas@remax.is
Þórarinn
Jónsson Hdl.
Löggiltur
fasteignasali Hringdu núna 699 6165
100% þjónusta fyrir þig
Berjarimi 51 – 112 Reykjavík
Opið hús í dag kl. 20.00 – 20.30
Smárarimi 27 – 112 Reykjavík
Kirkjuvellir 7 – 221 Hafnarfjörður
Svöluás 6 – 221 Hafnarfjörður
Opið hús í dag
kl. 19.30-20.00
Opið hús í dag
kl. 18.00 – 18.30
Opið hús í dag
kl. 17.30 – 18.00
Opið hús í dag
kl. 20.00 – 20.30
Lausstrax !
Brúarlán Netbankans er þægileg leið til að brúa bilið frá kaupum
á nýrri íbúð til sölu á þeirri gömlu. Farðu á www.nb.is og kynntu
þér málið eða fáðu nánari upplýsingar í síma 550 1800.