Fréttablaðið - 14.04.2008, Blaðsíða 36
Lágholt – 187,3 fm einbýli
Til sölu 187,3 fm einbýlishús á einni hæð með
stórum bílskúr við Lágholt 11 í Mosfellsbæ. Í hús-
inu eru fjögur svefnherbergi, stofa, borðstofa, gott
eldhús m/borðkrók, þvottahús m/bakinngangi og
baðherbergi m/kari. Húsið stendur á 862 fm lóð á
skjólgóðum stað í eldri hluta Mosfellsbæjar. Eignin
er snyrtileg og vel viðhaldið, enda aðeins 2 eigend-
ur frá upphafi.
Verð kr. 41,9 m.
Reykjamelur –
151 fm einbýlishús
Vorum að fá í sölu mjög fallegt 125,6 fm einbýlis-
hús ásamt 25,0 fm innbyggðum bílskúr í litlum
botnlanga við Reykjamel í Mosfellsbæ. Húsið er
mjög hlýlegt með stóru eldhúsi, rúmgóðri stofu,
tveimur svefnherbergjum, baðherbergi m/kari og
stóru þvottahúsi. Mjög stór timburverönd er um-
hverfis húsið með heitum potti, tveimur kofum og
skjólgirðingu. Bílaplan og gönguleið eru hellulögð.
Húsið er eitt það krúttlegasta sem sést hefur í
bænum. Verð 41,7 m.
Spóahöfði – 160,6 fm
endaraðhús
*NÝTT Á SKRÁ* Vorum að fá mjög glæsilegt
160,6 endaraðhús á einni hæð með innbyggðum
bílskúr. Húsið er mjög vel skipulagt og glæsilega
hannað. Þrjú svefnh., gott eldhús m/borðkrók,
sjónv.hol, stór stofa/borðst., baðh. með stórri
sturtu. Hlynur og náttúrusteinn á gólfum og sér-
smíðaðar innrétti. úr hlyn, lýsing frá Lúmex. Stórt
hellulagt bílaplan og afgirt timburverönd í suðvest-
urgarði. Flott sundlaug, World Class, skóli og golf-
völlur í innan við 100 m fjarlægð. Verð kr. 46,8 m.
Engihjalli – 2ja herb. Kóp
*NÝTT Á SKRÁ* Til sölu 62,2 fm, 2ja herbergja
íbúð á efstu hæð í 6. hæða lyftuhúsi við Engihjalla
25 í Kópavogi. Íbúðin skiptist í hol, rúmgóða stofu,
eldhús, gott svefnherbergi og baðherbergi m/bað-
kari. Sameiginlegt þvottahús er á sömu hæð.
Íbúðin er vel skipulögð, opin og björt. Mjög mikið
útsýni er til suðvesturs.
Verð kr. 16,7 m.
Sveinsstaðir - einbýli
Vorum að fá í sölu mjög sérstaka eign við Sveins-
staði í Mosfellsbæ. Þetta er 104 fm einbýlishús
ásamt 31 fm bílskúr á 2.000 fm eignarlóð við skóg-
ivaxið svæði rétt við Reykjalundarveg. Í húsinu eru
þrjú svefnherbergi, stofa, eldhús, þvottahús og
baðherbergi. Töluverð trjárækt er á lóðinni, en þar
er einnig gróðurhús og heitur pottur.
Verð kr. 39,5 m.
Langitangi – 171 fm einbýli
*NÝTT Á SKRÁ* Vorum að fá í sölu mjög fallegt
einbýlishús á einni hæð með sambyggðum bílskúr
og stórri og gróinni lóð við Langatanga í Mosfells-
bæ. Flott eldhús, hvítt háglans, með steingráum
flísum og granítborðplötu, baðherbergi nýlega
endurnýjað með stórum glersturtuklefa, fjögur
svefnherbergi, sjónvarpshol, þvottahús gestasal-
erni, stór stofa og borðstofa með arni og timbur-
verönd og skjólgóður garður.
Verð 54,8 m.
Straumsalir
4ra herb - Kóp.
*NÝTT Á SKRÁ* Vorum að fá í sölu mjög fallega
120,3 fm endaíbúð á jarðhæð í sex íbúða fjölbýli á
fallegum útsýnisstað við Straumsali 3 í Kópavogi. Í
íbúðinni er stór stofa, fallegt eldhús, þrjú góð
svefnherbergi, baðherbergi m/kari og sturtuklefa
og sér þvottahús + geymsla í kjallara. Sérsmíðaðar
kirsuberjainnréttingar og parket og flísar á gólfum.
Verð 34,8 m.
F
ru
m
Hlégerði – Einbýli í Kóp.
Vorum að fá í sölu einstakt íbúðarhús á fallegum
útsýnisstað við Hlégerði 37A í Kópavogi. Húsið er
teiknað af Jóni Haraldssyni, arkitekt árið 1988 og
byggt árið 1989. Húsið er tengt eldra húsi á lóðinni
með sólskála. Tvö svefnherbergi, stofa, borðstofa,
eldhús og sólstofa á aðalhæð og stórt vinnurými
og geymslur í kjallara. Á lóðinni er einnig tvöfaldur
bílskúr.
Verð kr. 54,9 m.
VH ehf · Heiðarbraut 3 · 250 Garður · Sími 864-2400
Vel valið fyrir húsið þitt
NÝ GARÐHÚS
Völundarhús.is hafa til sölu glæsileg ný garðhús sem eru enn sterkbyggðari
en áður. Nýju húsin eru bjálkahús frá 34mm að þykkt og koma með tvöfaldri
vatnslæsingu. Fyrsta sending kemur í apríl 2008 og erum við þegar farin að
taka niður pantanir.
GESTAHÚS B 15-17m²
GARÐHÚS 6-9,7m²
SVEFNKOFI 9,7m² GESTAHÚS D 25 m²
Ei
nb
ýl
is
hú
s
Su
m
ar
hú
s
Pa
rh
ús
Ra
ðh
ús
G
ar
ðh
ýs
i
08
-0
04
0
H
en
na
r h
át
ig
n
45 mm bjálki
34 mm bjálki
70 mm bjálki
45 mm bjálki