Fréttablaðið - 15.04.2008, Blaðsíða 48
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
BAKÞANKAR
Karenar D.
Kjartansdóttur
Okkur Íslendingum þykir ægi-lega vænt um nágranna okkar í
Færeyjum, enda eru þeir okkar
eina tækifæri til að sýna stóra
bróður-stæla í garð annarra þjóða.
Þó eru margir Íslendingar sárir út í
þá þessa dagana. Ungur Íslending-
ur sem bjó þar í landi flæktist í
fíkniefnasmygl. Eftir rúmlega 170
daga í einangrun var hann dæmdur
í sjö ára fangelsi auk ævilangrar
brottvísunar frá Færeyjum, sem
hann lítur þó á sem heimaland sitt.
SUMUM finnst þessi dómur of
þungur, til dæmis Sigurði Líndal
lagaprófessor og Brynjari Níels-
syni hæstaréttarlögmanni, sem
sagði færeyskt réttarkerfi vera
gamaldags og þar í landi hefði fólk
oftrú á refsingum. Því er Egill
Helgason sjónvarpsmaður sam-
mála en hann ritaði á síðu sína stutt-
an pistil undir titlinum Refsiglöð
frændþjóð. Þar segir hann að í Fær-
eyjum ríki að sumu leyti gamal-
dags ofsatrú í viðhorfum. Hinn
talibanski dómur yfir Íslendingn-
um sé til marks um það, sem og hið
langa varðhald sem hann var látinn
sæta, að mestu leyti í einangrun. Þá
vísar hann einnig til þess að for-
dómar gagnvart samkynhneigðum
viðgangist þar í landi og bendir á
áhugaverða grein um þann fær-
eyska vanda sem birtist á síðu Sam-
takanna ’78.
ÞESSUM viðhorfum brugðust þó
margir reiðir við. Á stuttum blogg-
rúnti sá ég að algengustu rök þeirra
sem þótti dómurinn og meðferðin á
Íslendingnum hin prýðilegasta
voru þau að þessi maður hefði ætlað
að selja „börnunum okkar“ dóp,
jafnvel þótt hann hafi ekki verið
fundinn sekur fyrir slíkt og ég hafi
ekki hugmynd um hver hafi gefið
leyfi til að alhæfa um mitt barn.
Allra skemmtilegustu rökin fyrir
gæðum færeysku þjóðarinnar sá
ég þó í athugasemdakerfi Egils en
þau voru svohljóðandi: „Í grein hjá
samtökum 78 er ýjað að því að það
sé nánast löglegt að vera með hót-
anir og ofsóknir á samkynhneigða
það er rangt, ofsóknir og hótanir
eru bannaðar í Færeyjum jafnvel
þó að þú sért rauðhærður.“
JAFNVEL þó að þú sért rauðhærð-
ur! Nei, verður ekki að draga mörk-
in einhvers staðar? Rauðhausar eru
skelfilega varhugavert fólk, það
sýnir reynslan sem og bíómyndir á
borð við Rauðhærðu afturgönguna
og rauðbirkna hrekkjusvínið í
Pappírs-Pésa. Það að Færeyjar
skulu vera orðnar griðland rauð-
hærðra er tvímælalaust til marks
um hrekklausa þjóð sem flýtur sof-
andi að feigðarósi. Skyldi enginn
gera grín að Færeyingum fyrir
refsigleði, ofsakennda guðstrú og
hómófóbíu meðan rautt hár fær að
spretta þar óhindrað.
Rauða hættan
5.55 13.28 21.02
5.32 13.12 20.54
Í dag er þriðjudagurinn 15. apríl,
106. dagur ársins.
Keyrðu upp framlegðina
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Atvinnubílar
HEKLA Laugavegi 172-174 · sími 590 5000 · www.hekla.is · hekla@hekla.is
Umboðsmenn HEKLU um land allt: Akureyri · Akranesi · Ísafirði · Reyðarfirði · Reykjanesbæ · Selfossi
Transporter
TDI® eyðir aðeins 7.5 l/100km
TDI® eyðir aðeins 9.8 l/100km
Caddy
TDI® eyðir aðeins 6.1 l/100km
Vinnubílarnir okkar eiga það sameiginlegt að eyða litlu
enda fást þeir allir með hinni ótrúlega hagkvæmu VW TDI®
dísilvél. Þá er viðhaldskostnaður lægri en gengur og gerist,
til dæmis þarf ekki að smyrja bílinn fyrr en eftir 30.000 km.
akstur* og þjónustuskoðun á Transporter er aðeins á 60.000
km. fresti. Sýndu fjármálavit í verki og fáðu Volkswagen
strax í vinnu fyrir þig.
Láttu Volkswagen Transporter vinna fyrir þig
* fer eftir notkun bílsins.
Eigum nú tak
markað magn
af
hvítum Transp
orter 1.9 TDI
®
á verði frá
3.490.000 kr
.
Crafter