Fréttablaðið - 16.04.2008, Blaðsíða 6
MARKAÐURINN 16. APRÍL 2008 MIÐVIKUDAGUR6
F R É T T A S K Ý R I N G
I
celandic Group stendur
frammi fyrir því að taka
skrefið inn í nýja fram-
tíð – en þó ekki með öllu
ókunna – á næsta aðalfundi
þess á föstudag. Tillögur sem
lagðar verða fram á fundinum
marka stór spor í sögu félags-
ins og hlutabréfamarkaðar hér á
margan hátt.
Fyrir fundinum liggur tillaga
þess efnis að stjórn Icelandic
Group fái heimild til að afskrá
félagið. Skrefið markar ákveðin
tímamót fyrir Icelandic Group,
sem um áratugaskeið hefur sinnt
grunnatvinnuvegi þjóðarinnar,
útflutningi og sölu á ferskum og
frystum fiski til erlendra mark-
aða. En það eru fleiri tímamót
á dagskrá hjá Icelandic Group.
Áratugur er síðan það sleit eigna-
bönd við hraðfrystihúsin og lagði
að bryggju sem skráð félag í
Kauphöllina. Afraksturinn í land-
vistinni hefur hins vegar verið
lítill síðustu ár og eftir litlu að
slægjast nema ef vera skyldi
fjármagni til vaxtar. Allt bend-
ir til að Icelandic Group muni
setja á haf út á ný sem óskráð
félag með tiltölulega nýráðinn
forstjóra við stýrið og splunku-
nýja stjórn sem sest sjálfkjörin
við hlið hans eftir aðalfundinn.
ÚTRÁS Í ÁRATUGI
Icelandic Group er í grunninn
eitt af elstu fyrirtækjum lands-
ins, stofnað fyrir heilum 66 árum
– árið 1942 – undir nafni Sölumið-
stöðvar hraðfrystihúsanna (SH).
Fyrstu áratugina seldi það af-
urðir íslenskra hraðfrystihúsa á
erlendum mörkuðum og leitaði
uppi nýja markaði fyrir fersk-
an frystan fisk, sem á þeim tíma
þótti nýlunda. Þá sá félagið hrað-
frystihúsunum fyrir nauðsynjum
erlendis auk þess að gera tilraun-
ir með nýjar framleiðsluaðferðir
í hraðfrystihúsunum.
Hraðfrystistöðvarnar íslensku
áttu félagið í upphafi og ráku
það í sameiningu. Árið 1996 var
hins vegar stigið stórt skref inn
í framtíðina. Þá var Sölumiðstöð-
inni breytt í hlutafélag og stefn-
an sett á skráningu félagsins á
hlutabréfamarkað. Það gekk eftir
tveimur árum síðar.
SH hélt úti viðamikilli starf-
semi erlendis frá fyrstu árum.
Útrásin hófst með stofnun sölu-
skrifstofu í New York í Banda-
ríkjunum þremur árum eftir
upphaf SH. Starfsemi Icelandic
Group vestanhafs hefur stækkað
talsvert síðan þá, ekki síst eftir
sameiningu þess við Samband
of Iceland fyrir þremur árum og
Sjóvík.
Áratug eftir landnámið í Vest-
urheimi færði SH sig yfir til
meginlands Evrópu, nánar tiltek-
ið til Bretlands. Þar keypti félag-
ið keðju fisksteiningarbúða áður
en það færði sig yfir í fram-
leiðslu á smásölupakkningum og
matvælum sem skilar alla jafna
meiri framlegð en sölustarfsem-
in. Icelandic framleiðir nú fryst-
ar og kældar matvörur beggja
vegna Ermarsundsins sem og í
mörgum Asíulöndum en sá mark-
aður var meira og minna undir
Sjóvík, sem sameinaðist Sölumið-
stöð hraðfrystihúsanna undir al-
þjóðlegum merkjum Icelandic
Group fyrir þremur árum.
Afurðirnar eru framleiddar
fyrir ákveðin fyrirtæki, veitinga-
markað og verslanir og fást í
nokkrum af stærstu verslunum
heims, svo sem í Tesco, stærstu
verslanakeðju Bretlandseyja,
Carrefour, stærstu verslana-
keðju Frakklands, og fleiri risa-
búðum. Allar eiga verslanirnar
það sammerkt að hafa starfsemi
víða í Evrópu og á mörkuðum í
Asíu, svo sem í Kína og á öðrum
nýmörkuðum.
ÞUNGUR REKSTUR
Vöxtur Icelandic Group var mik-
ill með tilkomu nýrra fjárfesta
eftir aldamótin. Fóru þeir mikinn
í skuldsettum yfirtökum og stefn-
an sett hátt – líklega of hátt, líkt
og einn heimildamanna Mark-
aðarins komst að orði. Slíkt er
vandmeðfarið en hefur – þvert
á væntingar – orðið íþyngjandi.
Erfiðara hefur reynst að sam-
þætta rekstur ólíkra rekstrar-
eininga en áætlað var undir fyrir-
tækjaneti Icelandic Group og
ekki bætt úr skák að síðastlið-
in þrjú ár hafa verið ör skipti á
forstjórum. Slíkt hefur haft tals-
verðan kostnað í för með sér auk
þess sem nýir stjórnendur hafa
misst sjónar á því sem áður var
lagt upp með.
Greinendur viðskiptabankanna
hafa lengi bent á að félagið hafi
misst tökin á stærðinni og þurfi
að einbeita sér. Verstur var gang-
urinn í Bandaríkjunum og Frakk-
landi. Mikil og hörð endurskipu-
lagning á rekstrinum hefur hins
vegar átt sér stað innan veggja
fyrirtækisins beggja vegna Atl-
antsála síðustu misserin. Það
hefur hins vegar reynst erfitt
ferli en komið vel á veg. Vænta
má að gefið verði í endurskipu-
lagningu í kjölfar afskráningar.
Reksturinn hefur nú verið
þungur og langt undir vænting-
um um skeið, ekki síst í Banda-
ríkjunum. Unnið hefur verið að
frekari hagræðingu innan sam-
stæðunnar, svo sem með sölu
eigna – og tilraunum til þess –
og fjárhagslegri endurskipulagn-
ingu. Það hefur hins vegar tek-
ist illa og margt ekki gengið eftir
líkt og menn lögðu upp með.
Fyrir liggur á aðalfundinum
á föstudag þrautalending, sam-
þykki lántöku á víkjandi skulda-
bréfi til fjögurra ára upp á jafn-
virði fimm milljarða króna en
falla á móti frá hlutafjáraukn-
ingu félagsins. Vextir lánsins
nema heilum 23 prósentum á ári
og veitir það kröfuhafa rétt til að
breyta því í hlutabréf á genginu
1,0 krónu á hlut.
Ávöxtunarkrafan, sem jafnast
á við yfirdráttarlán bankanna og
hugnast fáum, þykir til marks
um það hvert stærstu hluthafar
Icelandic Group leiða félagið,
ef marka má ummæli manna í
kjölfar snarprar gengislækkunar
þess síðustu vikur. Ekki liggur
fyrir hverjir kaupa skuldabréfið
en ætla má að það verði stærstu
hluthafar. Þeir sem það gera
munu standa í kjölfarið uppi með
áttatíu prósent hlutafjár á meðan
hlutir smærri hluthafa þynnast
verulega.
TÍÐ FORSTJÓRASKIPTI
Erfiður rekstur Icelandic Group
endurspeglast ekki síst í tíðum
forstjóraskiptum í kjölfar breyt-
inga á félaginu árið 2005. Aðrar
breytingar innan dótturfélaga
samstæðunnar hafa að sama
skapi verið algengar samanborið
við önnur félög á markaði. Fleiri
hræringar eru í vændum, en al-
gjör stjórnarskipti verða á aðal-
fundinum á morgun þegar sitj-
andi stjórn stendur upp eins og
hún leggur sig. Ný tekur við eftir
fundinn með rússneska kosningu
upp á vasann og hafa einungis
tveir núverandi stjórnarmanna
gefið kost á sér í varastjórnina.
Ef frá er skilinn Gunnar
Svavars son, sem stóð upp úr for-
stjórastólnum fyrir Þórólfi Árna-
syni, þáverandi borgarstjóra,
hafa þrír forstjórar setið við stýr-
ið hjá Icelandic Group – flestir í
skamman tíma – á jafn mörg-
um árum. Finnbogi A. Baldvins-
son, núverandi forstjóri, tók við
af Björgólfi Jóhannssyni, sem
kvaddi sjávarfangið í desember
í fyrra og tók við Icelandair. Til
marks um erfiðleikana var Ice-
landic forstjóralaust fram til
fyrstu daga í febrúar á þessu ári.
Mál manna er að slíkt eigi sér
vart hliðstæðu hjá almennings-
hlutafélagi.
Finnbogi ætlaði sjálfur að
kaupa Pickenpack-samstæðuna í
Þýskalandi og Frakklandi undan
Icelandic Group í fyrra. Vilja-
yfirlýsing um það lá fyrir í sept-
ember. Sléttum þremur mánuð-
um síðar rann salan út í sandinn.
ÞRÖSKULDAR FJÁRFESTA
Rekstrarfélög tengd sjávarútvegi
og fiskvinnslu hafa ekki átt góðu
gengi að fagna á íslenskum hluta-
bréfamarkaði og verður – þegar
Icelandic Group hverfur á braut
– aðeins eitt félag skráð á markað
hjá fiskveiðiþjóðinni Íslandi sem
sérhæfir sig í veiðum og vinnslu
á sjávarfangi.
Í tilkynningu frá Iceland-
ic Group í byrjun mánaðar þar
sem afskráningin var tilkynnt eru
tilteknar nokkrar ástæður fyrir
gjörningnum. Í fyrsta lagi sé hlut-
hafahópurinn þröngur – félagið er
að mestu í eigu sömu eða tengdra
félaga líkt og sést á hluthafalist-
anum – og verðmyndum óskil-
virk. Það eitt sé undir viðmiðun-
armörkum Kauphallarinnar.
Icelandic Group er langt í frá
eitt á báti í þeim efnum. Sjávar-
útvegsfyrirtækin hafa löngum
kvartað yfir þeim pligtum sem
á þau eru sett um eignarhald.
Eignarhaldi erlendra fjárfesta
eru settar skorður, sem beinlínis
hindra aðkomu þeirra í íslenskt
sjávarútvegs- og fiskvinnslu-
fyrirtæki. Ein þeirra leiða sem
fyrirtækin hafa í gegnum tíðina
farið í leit sinni að fjármagni til
vaxtar er ýmist miklar lántökur
eða skráning á hlutabréfamark-
að. Ætla má að Icelandic Group
hafi nýtt sér þann kost vel – jafn-
vel of vel.
Til stóð að komast hjá þröskuld-
inum um erlent eignarhald þar-
síðasta haust með skiptingu Ice-
landic Group í þrjár einingar; Ís-
lands-, Ameríku- og Evrópuhluta,
og skrá tvo síðarnefndu hlut-
ana í erlendum kauphöllum. Með
breytingunum var vonast til að
áhugi erlendra fjárfesta glædd-
ist á félaginu. Það gekk ekki eftir
og litlar líkur eru á að Icelandic
Group leggi að landi í nokkurri
kauphöll á næstu árum.
FISKMETI UNNIÐ FYRIR MARKAÐINN
Frá verksmiðju Pickenpack, dótturfélags
Icelandic Group í Þýskalandi. Icelandic
Group skrifaði undir viljayfirlýsingu um
sölu á móðurfélagi Pickenpack í fyrrahaust
til að bæta stöðuna. Þremur mánuðum
síðar var hún dregin til baka.
I C E L A N D I C G R O U P Í
H N O T S K U R N
Forstjóri Finnbogi A. Baldvinsson
Stofnár 1942
Skráð á markað 1998
Fjöldi starfsmanna ca 5.000
Tap í fyrra 3,4 ma kr.
Rekstrarhagnaður í fyrra 3,3 ma kr.
1 9 S T Æ R S T U H L U T H A F A R
Nafn Hlutur
Fjárfestingarfélagið Grettir* 28,33 %
FAB GmbH** 20,22%
Tm fe ehf 13,02%
Landsbanki Luxembourg S.A. 12,82%
Hf. Eimskipafélag Íslands 7,49%
BOM fjárfestingar*** 3,75%
Raffeisien Zentralbank Österreich 3,11%
Straumur-Burðarás 3,11%
Glitnir Bank 2,54%
Landsbanki Islands 1,82%
* Fjárfestingarfélagið Sund, Landsbankinn og
Ópera, félag Björgólfsfeðga
** Finnbogi A. Baldvinsson
*** Baldur Guðnason, fyrrv. forstjóri Eimskips og
fyrrv. stjórnarmaður IG.
Sjávarfangið hverfur úr Kauphöllinni
Afskráning Icelandic Group af hlutabréfamarkaði verður tekin fyrir á mikilvægum aðalfundi félagsins á föstudag. Með brott-
hvarfi félagsins fækkar rekstrarfélögunum um eitt og verður aðeins eitt fyrirtæki eftir sem sérhæfir sig í fiskmeti og sjávarfangi.
Jón Aðalsteinn Bergsveinsson hleypur yfir sögu Icelandic Group og veltir vöngum yfir stöðu félagsins í óráðinni framtíð.
F O R S T J Ó R A R N I R
GUNNAR
SVAVARSSON
1.4. 1999 -
31.5. 2005
ÞÓRÓLFUR
ÁRNASON
31.5 2005 -
14.10. 2005
BJÖRGÓLFUR
JÓHANNSSON
23.3. 2006 -
14.12. 2007
FINNBOGI
BALDVINSSON
18.2. 2008 -
Þróun á gengi
Icelandic Group
síðastliðin fimm
ár í íslenskum
krónum
1,81
4,99
10,75