Fréttablaðið - 16.04.2008, Page 24

Fréttablaðið - 16.04.2008, Page 24
10,1 45 15,5prósent er sú verðbólga sem Landsbankinn spáir að mælist hér í þessum mánuði. Gangi það eftir hefur verðbólga ekki verið meiri síðan árið 1990. milljarðar króna er sú upphæð sem greiningardeild Kaupþings spáir að FL Group tapi á fyrstu þremur mánuðum ársins. prósent eru stýrivextir Seðlabanka Íslands. Þetta eru hæstu stýrivextir í heimi með þróaðan fjármála- markað. SÍMA NÚM ER MARKAÐARINS: 512 5000, fax: 512 5301, rit stjorn@markadurinn.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Aug lýs ingadeild: auglys ing ar@markadurinn.is Veffang: visir.is B A N K A H Ó L F I Ð Óhætt er að segja að minna fari fyrir athafnamanninum Magnúsi Þorsteinssyni í íslensku sam félagi en áður. Magnús var stjórnarformaður Avion Group sem átti að verða stærsta fyrir- tæki sinnar tegundar í heimi, en það gekk ekki eftir og félaginu var skipt upp. Nú síðast var hann svo stjórnarformaður Eimskips en lét óvænt þar af störfum og hið sama gerist nú hjá Icelandic, sem glímir við mikinn rekstrar- vanda. Því er spurt; Hvað gerir Magnús nú? Hvað gerir Magnús nú? Bankarnir reyna þessa dag- ana að draga úr kostnaði og yfirbyggingu, meðal annars með fækkun starfsfólks. Enn kemur þó fyrir að tilkynnt er um ný ráðningar og það gerð- ist á dögunum þegar Kristinn Þór Geirsson var ráðinn fram- kvæmdastjóri Fjármála- og rekstrarsviðs Glitnis. Hann tekur sem slíkur sæti í fram- kvæmdastjórn bankans. Athygli vekur að ekki eru nema fáeinar vikur síðan Kristinn Þór var kosinn í stjórn Glitnis á aðal- fundi, en hann lætur nú af þeim störfum og tekur sæti í fram- kvæmdastjórninni í staðinn. Að undanförnu hefur Kristinn Þór verið stjórnarformaður og síðar forstjóri B&L, en áður hafði hann meðal annars verið framkvæmdastjóri Sunds ehf. og rekstrarsviðs Samskipa. Haukur Guðjónsson tekur sæti í stjórn Glitnis í stað Kristins Þórs. Úr stjórn í framkvæmdastjórn Enn er beðið aðalfundar hjá Árvakri, útgáfufélagi Morgunblaðsins og 24 stunda, en þar er fastlega búist við að skipt verði um stjórnarformann í ljósi þess að Björgólfur Guðmundsson hefur nú tryggt sér öll ítök í fyrir tækinu. Jafnvel er búist við að fundað verði í lok næstu viku. Sá sem líklegastur þykir sem nýr stjórnarformaður fyrirtækisins í stað Stefáns P. Eggertssonar er Þór Sigfússon, forstjóri Sjóvár og verðandi formaður Samtaka atvinnulífsins, en það mun þó ekki fullfrágengið. Almennt er ráð fyrir að eitt fyrsta verk Þórs verði að ráða Ólaf Þ. Stephensen sem ritstjóra Morgunblaðsins í stað Styrmis Gunnarssonar, en Ólafur hefur um skeið stýrt systurblaðinu. Hvort hann verð- ur einn ritstjóri er hins vegar ekki ljóst, né hver tekur þá við stjórnar- taumunum á 24 stundum. Aðalfundar beðið

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.