Tíminn - 18.12.1981, Page 3
Föstudagur 18. desember 1981
Framkvæmdir og rekstur Borgarspítalans:
RÍKIÐ f STÓR-
VANSKILUM VIÐ
REYKJAVÍKURBORG
■ Rikið skuldar Reykjavikurborg
verulegar upphæðir vegna
reksturs og framkvæmda við
Borgarspitalann á yfirstandandi
ári. Þessar upplýsingar komu
fram i ræðu Egils Skúla Ingi-
bergssonar, borgarstjóra, á fundi
borgarstjórnar i gærkveldi, þar
sem hann flutti framsögu fyrir
frumvarpi að fjárhagsáætlun
fyrir Reykjavikurborg árið 1982.
Nefndi Egill að borgarsjóður
þyrfti stöðugt að leggja út mikið
fé til reksturs hinn ýmsu
sjúkrastofnana, ,,og má t.d.
nefna, að áætlað er að halli
Borgarspitalans verði um 14
milljónir króna á þessu ári, sem
greiðist með halladaggjöldum á
næsta ári.”
Einnig sagði Egill: „Saga fjár-
mögnunar svonefndrar G-álmu
eða þjónustuálmu Borgarspital-
ans lýsir þvi vel, hvað borgarsjóði
reynist erfitt að ná viðunandi
samningum við rikið um fram-
kvæmdir i heiibrigðismálum.
Álman hefur að mestu verið tekin
i notkun, en ýmsum frágangi er
ólokið og enn vantar margvisleg-
an búnað.
Bókfærður kostnaður án verð-
bóta verður i lok þessa árs nálægt
18 milljónum kr. Þar ætti hlutur
rikissjóðs að vera ríflega 15
milljónir kr., ef hann hefði verið
greiddur á réttum tima, skv.
gildandi lagaákvæðum. I lok
þessa árs hefur rikissjóður hins
vegar einungis greitt 4.7 milljónir
kr. til framkvæmdanna. Skuld
rikissjóðs verður þvi um 10.5
millj. kr. vegna þessarar fram-
kvæmdar án verðbóta og vaxta á
byggingartima”, sagði Egill
Skúli.
—Kás
Samið við Sovétmenn um kaup á freðfiski
Stærri samningur ekki gerð-
ur við þá á annan tug ára
■ Samið hefur verið við Sovét-
menn lun kaup á 21 þúsund tonn-
um af freðfiski á næsta ári.Er nú
liðið á annan tug ára siðan svo
stór samningur hefur verið gerð-
ur við þá um freðfiskviðskipti.
Einingarverð er hið sama og
samið var um fyrir þetta ár, en
hins vegar er heildarmagn 13,5%
meira. Samningurinn er gerður i
Bandarikjadollurum og er
heildarverðmæti hans jafnvirði
32,5milljóna Bandarikjadala, eða
15,5% meira en samið var um i
fyrra, enda magnaukningin nær
eingöngu i frystum flökum sem
seljast á hærra verði.
Samkvæmt þeim rammasamn-
ingi sem nú er i gildi á milli
íslands og Sovétrikjanna um
freðfiskviðskipti er gert ráð fyrir
að flakamagnið geti árlega verið
á bilinu 12-17 þús. tonn, en magn
af heilfrystum fiski á bilinu 4-7
þús.tonn. Nú varsamið um sölu á
17 þús. tonnum af freðfiskflökum
en 4 bús. tonnum heilfrysts fisks.
Eins og sjá má af þessu er flaka-
magnið i hámarki samkvæmt
rammasamningnum, en magnið
af heilfrystum fiski að sama
skapii lágmarki. Munu framleið-
endur ekki hafa talið sig geta af-
greitt meira en þessi 4 þús. tonn
af heilfrystum fiski. Hins vegar
varáhugihjá Sovétmönnum á þvi
að kaupa meira af heilfrystum
fiski.
Aðallega er fyrirhugað að af-
greiða karfa.ufsaog grálúðuflök
upp i flakakvóta samningsins, en
einnig ýmis önnur fiskflök. Er
seljanda i sjálfsvald sett hversu
mikið hann afgreiðir af hverri
fisktegund upp I flakasamninginn
og gildir hið sama um heilfrysta
fiskinn.
Gert er ráð fyrir að afskipanir
hefjist upp i þennan nýja samning
strax um næstu áramót, og er
gert ráð fyrir að u.þ.b. 9 þús.
tonnum verði þegar afskipað á
fyrsta ársfjóðungi ársins 1982.
Það eru Sölumiðstöð hrað-
frystihúsanna og Sjávarafurða-
deild SIS sem selja fiskinn, en
samningsgerðina fyrir seljendur
önnuðust framkvæmdastjórarnir
Arni Finnbjörnsson og Sigurður
Markússon. —Kás
■ Nú fer hver að verða sfðastur að fara með sparifötin i hreinsun fyrir
hátiöarnar. Timamynd: Róbert.
Þessar bækur vilja sjómenn
fá í jólagjöf
Togarasaga
með tilbrigðum
eftir Hafliða Magnússon
Kaflafyrirsagnir sem gefa
nokkra hugmynd um efni þessarar sérstæðu bókar:
Sj ófer ðaminningar
Sigurpáls Steinþórssonar
Sij’iirjön SigcrvggsMMi
lojtrdiiinmingw
Nú skal vera menningarleg innivera.
„Er þetta helvíti þá ekki lifandi” — Nassti voru Pólarnir —
Valkyrjan birtíst — Nú var reynt að fylla töluna — Við slumpum á
þig fertugan. — Níu barna móðir. HALDIÐ Á GRÆNLANDS-
MIÐ. ÞAR FÓRU TVEIR 1 SJÓINN. — HVER DJÖFULLiNN
ER NU ÞAÐ? - HVAR 1 ÓSKÖPUNUM ER ÉG? -
ANDRÉSARÞÁTTUR. VEIÐARNAR HEFJAST MEÐ TIL-
BRIGÐUM. Hifop — Kúnstin að bæta troll — Gúmmí Tarsan
hlýtur að slasa sig, GRÆNLANDSÆVINTÝRIÐ. Nú var öllu
stampað. — GAMANIÐ FÓR AÐ KÁRNA. — Þið megið
brjóta niður allt Grænland — „Jeg bara kvittar svo er jeg vekk”
— Portúgalar, mokkasiur og grænlenzkar meyjar — Aftakaveður
við Hvarf. Þetta er ekki skáldsaga. Ýmsum kann að finnast hún
ótrúleg en hún er sönn, sögð af manni sem sjálfur kynntist þessu.
Svona var stundum togaralífið og kannski finnast þess enn dæmi.
Skopið virðist höfuðeinkenni bókarinnar, en að baki er djúp alvara.
Þessa bók getur enginn sjómaður látið ólesna.
Ævisagan hans Sigurpáls er saga alþýðumanns, sem
alinn var upp við kröpp kjör. Hefur marga hildi háð
£,. „ . og margt reynt á langri ævi. Þar eru Ijós og skugg-
Slgurpáls Steinþorssonar ar. Oft var baráttan hörð en Sigurpáll var ekki
þeirrar gerðar að gefast upp þótt móti blési.
Höfuðeinkenni þessarar bókar er samt frábær lýsing
á atvinnuháttum og aðstöðu allri til sjósóknar og
vinnubragða í Ólafsfirði á fyrstu áratugum þessarar
aldar. Margt var þar með svo sérstæðum hætti að
dæmalaust má teljast og að þessu leyti er þessi bók
sjór af fróðleik sem ekki hefur áður verið á bækur
skráður.
Fjölmargar myndir er hér að sjá af fólki, bátum og
mannvirkjum. Vonandi verða þeir ekki fyrir von-
brigðum sem þjóðlegum fróðleik unna, því margt er
forvitnilegt að finna í bókinni hans Palla.
UM
ÆGISÚTGÁFAN