Tíminn - 18.12.1981, Qupperneq 6
6
Föstudagur 18. desember 1981
Engin miskunn eftir Dick Francis er fyrsta skáldsag-
an sem kemur út eftir þennan kunna höfund á ís-
lensku. Hann er þekktur breskur rithöfundur, sem
hefur sent frá sér fjölda skáldsagna, er hlotið hafa lof
lesenda og gagnrýnenda. Með atburðaríkum, en trú-
verðugum söguþræði, tekst höfundi að vekja eftir-
væntingarfulla forvitni lesenda þegar á fyrstu blað-
síðunum. Bækur hans seljast í stórum upplögum og
eftir hverri nýrri bók frá hans hendi er beðið með
óþreyju af stórum hópi aðdáenda. Lesið „Engin
miskunn" og kynnistfrábærum höfundi.
Víveró-bréfið eftir Desmond Bagley, ein af vinsæl-
ustu skáldsögum þessa dáða rithöfundar er komin út
í nýrri útgáfu.
SUÐRI
Rsher'Price
LEIKFÖNG í MIKLU ÚRVALI
10 mismunandi gerðir af
barna-fararskjótum.
Nýtt leikfang Playmobil
á hverjum degi. * miklu úrvali.
Póstsendum.
w w
LEIKFANGAVERZLUNIN J0J0
AUSTURSTRÆTI8 - SÍM113707
Gangbrautarvörður
Hálft starf gangbrautarvarðar við Digra-
nesskóla (Nýbýlavegur — Skemmuvegur)
er laust til umsóknar frá næstu áramót-
um.
Upplýsingar i sima 41863 milli kl. 10 og 12.
Skólafulltrúi
bingfréttir
Iþróttakennaraskólinn á Laugarvatni
Fe veitt til ad
hefja framkvæmdir
■ Talsverðar breytingar urðu á
fjárlagafrumvarpinu frá því það
var lagt fram í þingbyrjun og þar
til fjárveitinganefnd skilaði þvi til
annarrar umræðu. Einn er sá
liðurerhvað mestum breytingum
tók, en þaö er fjárveiting til
íþróttakennaraskóla Islands á
Laugarvatni. Þar hafði upphaf-
lega verið ætlað 250 þús. kr. til
bygginga nýrra iþróttamann-
virkja en sá liður var hækkaöur
um 4 milljónir króna og er þvi
kominn upp i 4.250 þús. kr. Auk
þess eru ætlaðar 150 þús. kr. til
kviðhalds.
Þórarinn Sigurjónsson al-
þingismaður hefursýnt skólunum
á Laugarvatni mikinn áhuga og
skólamálum á Suðurlandi yfir-
leitt, en hann á sætii f járveitinga-
nefnd. Aðspurður um þessa m iklu
hækkun á fjárveitingu til bygg-
íngar tþróttakennaraskólans
sagði Þórarinn að það hafi verið
sýnt þegar er fjárlagafrumvarpiö
var lagt fram, fjárveitingin til
mannvirkjagerðar við Iþrótta-
kennaraskólann hafi ekki náö
neinni átt. Langt væri siöan farið
var að undirbúa byggingafram-
kvæmdir en mörg ljón hafi staöið
i veginum svo sem aö fá sam-
þykktar teikningar.
„Fyrr á þessu ári var endan-
lega ákveðið að hefja byggingu
iþróttahúss ásamt tilheyrandi
mannvirkjum. 1 þeirri áætlun
sem fyrir liggur er m.a. sund-
laug. Þau iþróttamannvirki sem
byggja þarf eru fyrir alla skólana
á Laugarvatni en sérstaklega er
bagalegt að ekki hefur verið hægt
að fullnægja kennsluskyldu i sviði
iþrótta í íþróttakennaraskólanum
né í öðrum skólum á Laugarvatni.
■ Þórarinn Sigurjónsson
Þegar iljós kom að fjárveiting-
in til íþróttakennaraskólans var
ekki nema 250 þús. kr. sem ætluð
var til tækjakaupa var brugðið
skjótt við og knúiö á um fjárveit-
ingu til að hægt væri að hefja
byggingu á nauðsynlegum mann-
virkjum, eins og ákveðið hafði
verið.
Var það mál komið á góðan
rekspöl þegar fram kom þings-
ályktunartillaga um að flýta
framkvæmdum við Iþrótta-
kennaraskólann”.
Það sem Þórarinn á hér við er
að varaþingmaður Suðurlands-
kjördæmis rauk til og lagði fram
tillögu um byggingu iþróttahúss
en þá þegar var búið að ákveða að
hefja framkvæmdir og þeir fjár-
veitinganefndarmenn sem báru
málið fyrir brjósti lögðu þvi það
lið er þeir gátu. Þegar málið var
til umræðu á Alþingi fylltu nem-
endur og kennarar frá Laugar-
vatni palla og fylgdust með um-
ræðum.
„Mér þótti vænt um” sagði
Þórarinn, „þann áhuga sem
Laugvetningar sýndu þessu máli
og sýnir það góðan hug þeirra tU
fþróttakennaraskólans og
menntastofnanna á staðnum.
En þá var málið komið i þann
farveg i fjárveitinganefnd að full-
ur vilji var fyrir að láta fjármagn
til þessara framkvæmda.
Lagt var kapp á að fjárhæðin
yrði sem mest til að flýta fram-
kvæmdum og tókst að fá hana
hækkaða um 4 millj. kr.
Fyrirhugaö er að bjóða allt
verkið við byggingu iþróttahúss-
ins Ut i einu og gera húsið fokhelt i
einum áfanga og er stefnt að þvi
að koma tveim þriðju hlutum af
iþróttahúsi og fyrirhugaðri að-
stöðu undir þak.
A næsta ári þarf síðan enn að
knýja á um meiri fjárveitingu til
að mögulegt verði að ljúka fram-
kvæmdum sem allra fyrst”.
ÓO
Kronboig
I BATA Blokkarstærð:
A: 535x1070x100/75
B: 535x535x100/75
SAMBAND ÍSLENZKRA SAMVINNUFÉLAGA
@ Sjávarafurdadeild
SAMBANDSHÚSINU REYKJAVÍK SÍMI 28200