Tíminn - 18.12.1981, Page 7
íi^r
i_> 11 >>;_l J
Föstudagur 18. desember 1981
erlent yfirlit
■ EINS OG sagt var frá i fjöl-
miðlum, átti Haig utanrikisráð-
herra Bandarikjanna stutta dvöl
á Keflavikurflugvelli siðastliðinn
mánudag. Ef hann hefði fylgt
upprunalegri ferðaáætlun sinni,
hefði hann átt að vera staddur i
Ankara á mánudaginn. Ætlun
hans var að heimsækja siðan
lsrael, Pakistan, Egyptaland og
Marokkó.
Þessu ferðalagi var aflýst
vegna fréttanna af þeim atburði,
að herlög voru sett 1 Póllandi að
morgni sunnudagsins. Af þeim
ástæðum var talið heppilegt, að
Haig héldi strax heimleiðis til að
vera þar til ráðuneytis varðandi
Póllandsmáliö.
Þetta mun þó ekki eina
ástæðan. Eins og Haig skýröi
fréttamönnum frá, mun Banda-
rikjamönnum þykja hyggilegast
að biða átekta um stund og sjá
hver atburðarásin verður i Pól-
landi áður en ákvaröanir eru
teknar vegna ástandsins þar.
Undir þessum kringumstæðum
verður jafnt að sýna festu og
gætniog rasa ekki um ráð fram.
Setning herlaganna i Póllandi
átti á annan hátt einnig þátt i þvi,
að Haig hætti við hina fyrirhug-
uðu ferð sina. Það hefði ekki verið
neittheppilegt fyrir Haig aðvera
staddur i Tyrklandi á sama tima
ogþað vaktiandúð viða umheim,
að herlög höfðu verið sett i Pól-
landi.
iKenan Evren, æðsti maður herstjórnarinnar.
Haig frestaði
Tyrklanrlsfnr
Herstjórnin þar veldur Nató áhyggjum
Dvöl Haigs i Tyrklandi um
þessar mundir hefði dregið
óheppilega athygli að ástandinu
þar.
í TYRKLANDI fer nú herstjórn
. meö völd likt og i Póllandi. Her-
inn tók þar öll völd i sinar hendur
12. september 1980 og hefur farið
með þau síðan.
1 fyrstu var yfirleitt ekki
brugðizt illa við þessari valda-
töku hersins. Um nokkurt skeið
hafði rikt hálfgerð borgarastyrj-
öld I landinu. Ofgaflokkar til
hægri og vinstri höfðu haldið uppi
manndrápum á vixl. í þinginu var
flokkaskipan þannig háttað að
erfitt var að koma starfhæfri
rikisstjórn á laggirnar. Vaxandi
upplausn og stjórnleysi virtist
framundan.
Þvi er ekki að neita að ástandið
var einnig erfitt i Póllandi, þótt á
annan hátt væri. Hungursneyö
virtist yfirvofandi og hefði
magnazt, rf illindi og átök milli
Samstöðu og kommúnista hefðu
aukizt. Herinn hefði að lokum
orðið aðskakka leikinn, ef RUssar
áttu ekki að gera það. Það gat
verið hyggilegt að gera það áður
en f meira óefni var komið.
Herstjórnin i Tyrklandi hefur
óneitanlega komið aftur á röð og
reglui landinu og nokkur viðreisn
hefur átt sér stað i efnahagsmál-
um, en þó minni en bdizt var við.
Jafnvel einræðisstjórn getur
reynzt erfitt að glima við efna-
hagsvandann um þessar mundir.
Annað hefur að margra dómi
snúizt á verri veg. Þegar hers-
höfðingjarnir tóku völdin, lofuðu
þeir þvi', að þeir myndu endur-
reisa lýðræði i landinu við fyrsta
tækifæri. Enn hefur ekki orðið
neitt úr efndum.
Herstjómin hefur að visu settá
laggirnar eins konar þing, sem
hún hefur skipað sjálf að mestu
leyti. Þvier ætlað að setja rikinu
nýja stjórnarskrá. Það, sem
hefur frétzt af fyrirætlunum þess,
virðist benda til, aö hin nýja
stjómarskrá verði næsta ólýð-
ræðisleg.
Hershöfðingjarnir réttlæta
þessar fyrirætlanir sinar m eð þvi,
að reynslan sýni, að Tyrkjum
henti ekki sama frjálsræði og
gildandi er i Vestur-Evrópu og
Bandarikjunum.
ENN hefur tyrkneska her-
stjórnin ekki nefnt timasetningu
varðandi það hvenær hin nýja
stjórnskipan eigi aö taka gildi. 1
Vestur-Evrópu aukast þvi kröfur
um að Atlantshafsbandalagið
beiti áhrifum sinum til að knýja
herstjórnina til hraðari aðgerða i
þessum efnum. Annars verði
erfiðara fyrir Nató að halda þvi
fram, að tilgangur þess sé aö
treysta lýöræöi og frelsi i sessi.
Það hefur ekki siður vakiö
andúðaröldu gegn tyrknesku her-
stjórninni, að handtökum og
fangelsunum er enn haldið
áfram, en þetta þótti ekki óeðli-
legt I fyrstu meðan verið var að
Bulent Ecevit
handsama spellvirkja öfgahóp-
anna til hægri og vinstri.
Þegar hafa verið kveðnir upp
dómar yfir fjölda manna. All-
margir hafa verið dæmdir til
dauða en aörir til lengri eða
skemmri fangavistar.
Þvi fer fjarri að þessum dóms-
fellingum sé að ljúka. Stööugt eru
að hefjast réttarhöld i málum,
sem ná til stórra hópa sakborn-
inga, sem tengdir hafa veriö viss-
um samtökum.
I byrjun þessa mánaðar hófust
réttarhöld i málum nær tvö
hundruð manna, sem gegndu
trúnaðarstörfum hjá annarri
stærstu verkalýöshreyfingu
landsins, sem var undir stjórn
vinstri manna. Krafizt er dauða-
dóms yfir 52 þeirra. Meö þessum
réttarhöldum munu fylgjast
margir fulltrúar erlendra aðila,
m.a. frá Alþjóðasam bandi
frjálsra verkalýðsfélaga og
Evrópuráðinu.
Þá hefur þaö vakið andúð viða
um heim, að nýlega var aðalleið-
togi jafnaðarmanna og þekktasti
stjórnmálamaður Tyrkja, Bulent
Ecevit, dæmdur i fjögurra
mánaða fangelsi fyrir aö gagn-
rýna herstjórnina. Hann er nú i
fangelsi.
Atburðimir i Póllandi munu
vafalitið herða þá baráttu i'Nató-
löndunum, að herlögum verði af-
létt i Tyrklandi og komið þar á
lýöræðisstjórn, þvi aðeins geti
Nató með góðu móti andmælt
herstjórninni i Póllandi.
Sagt er, að það hafi átt að vera
eitt erindi Haigs til Ankara að
hvetja herstjórnina til að flýta
þessum fyrirætlunum, en rétt
áður var Weinberger varnarmála-
ráðherra þar á ferð og lofaði
Tyrkjum aukinni hernaðarlegri
og efnahagslegri aðstoð.
Þórarinn Þórarinsson,
ritstjóri, skrifar
Allt X hers höndum
í Póllandi:
Einhverjir
sagdir hafa
týnt líf i
■ Enn er simasambandslaust
v.ð Pólland og i gær voru þessi
engin merki I Póllandi að
ganga sú sem fara átti i tilefni
þess aö þá voru 11 ár liðin frá
óeirðunum I Gdansk, sem voru
vegna verðhækkana, hafi ver-
ið farin, né að fundur sá sem
Eining hafi boðað til i sama
tilefni að göngunni lokinni hafi
verið haldinn.
Herinn er sagður allsráð-
andi I Póllandi, gjörvallt land-
ið undir herlögum og Varsjár-
útvarpiö er sagt hafa sent út
stöðugar aðvaranir til fólks,
þess efnis að það ætti ekki að
taka þátt i göngu þeirri og
fundi sem Eining haföi þegar i
siöustu viku skipulagt, eða áð-
ur en herlög tóku gildi i land-
inu. Fylgdu orðsendingunum i
útvarpinu hótanir þess efnis,
að þeir sem tækju þátt i slfk-
um aðgerðum gætu átt
fangelsisvist eða dauðarefs-
ingu ýfir höfði sér.
öll félags- og stjórnmála-
starfsemi liggur nú niðri i' Pól-
landi, jafnvel starfsemi
pólska kommúnistaflokksins.
stártsmanni IVarsjá i gær, að
3.500 manns hefðu veriö hand-
teknir i Póllandi siðan her-
lögin tóku gildi, en áreiðanleg-
ar heimildir frá Varsjá herma
að fjöldi handtekinna nái
a.m.k. tölunni 13.000, og aðrar
heimildir hafa nefnt tölur allt
frá 15.000 og upp i 70.000.
Yfirvöld f Póllandi komast
þannig aöoröi þegar þau iýsa
andstöðu við herlögin i landinu
að hvert einstakt tilfelli sé tek-
ið fyrirsér. Heimildir frá iðn-
aðarhéruðum Suður-Póllands
herma að einhverjir hafi látið
lifið i átökum hermanna óg‘
verkamanna, en þær fást ekki
staöfestar.
Að þvi er virðist, veit enginn
i Varsjá hverskonar langtima-
áætlun pólski herinn, eöa
stjórnvöld I Póllandi hafa. En
þó viröist ljóst aö ekki veröi
aftur horfið til frjálslyndis-
stefnu þeirrar sem ríkt hefur i
pósku þjóðlifi undanfama 18
mánuði, og allt virðist benda
til þess að i framtiöinni verði
engin samtök til í Póllandi
sem bera nafnið Eining.
Lord Carrington, utanrikis-
ráðherra Bretlands ávarpaði
Evrópuþingið i Strassburg i
gær og sagði þá m .a. að himn-
ar Póllands héldu áfram aö
myrkvast. Utanrikisráðherr-
ann sagði jafnframt að þótt
fregnir frá Póllandi væru rit-
skoðaðar af pólska hernum,
samband rofið og diplómatisk
réttindi takmörkuð, þá væri
það ljóst mál að einhverjir
hefðu þegar týnt lifi i átökun-
um i Póllandi.
Argiðanleear jrpj>x>jr_icá
Walesa, leiðtogi ‘ Einingar,
væri i stofufangelsi utan við
Varsjá, þar sem honum væri
haldið með öllu i einangrun, i
þeim tilgangi að brjóta niður
mótstöðuþrek hans.
Hópur fulltrúa Einingar,
sem lenti i Sviss i gær, sagöist
nú þurfa að skipulegga starf-
semi Einingar i útlegö. Hópur.
þessi reynir nú að ná sam-
bandi við aðra leiðtoga Ein-
ingar sem dveljast utan Pól-
lands, til þess að skipuleggja
starf sitt sem best.
Sýrlendingar
krefjast
skyndifundar
■ Sýrlendingar hafa farið
fram á að utanrikisráðherrar
Arabarlkjanna héldu með sér
skyndifund hið fyrst, til þess
að ræða innlimun Israels-
manna á Golanhæðum, i riki
sitt. Sýrlendingar segja að á
þessum fundi þurfi utanrikis-
ráðherrarnir að ákveða til
hvaða gagnaðgerða skuli grip-
ið vegna þessarar ákvörðunar
Israelsmanna. Innanrikisráð-
herra Sýrlands sagði við sama
tækifæri, að þó svo að Sýrlend-
ingar vildu ekki fara út i
striðsaðgerðir, þá yrðu þeir
svo sannarlega að svara þess-
ari gjörræðislegu ákvörðun Is-
raelsmanna á viðeigandi hátt.
Útvarps- og
sjónvarpsein-
okun afnumin
í Noregi
■ 1 fyrradag ákvað stjórn
Kaare Willoch að afnema ein-
okun á útvarps- og sjónvarps-
rekstri i Noregi og veitti
stjórnin hvorki meira né
minna en 40 samtökum og
fyrirtækjum leyfi til reksturs
útvarpsstöðva og kapalsjón-
varpsstöðva. Eru þessi leyfi
veitt i tilraunaskyni, til eins
árs.
Norska rikisútvarpið hefur
haft einkaleyfi á þessum,
rekstri i 48 ár, og þótti timi til
kominn I Noregi, aö einokun
þess yröi afnumin. Eins og áð-
ur segir fengu 40 samtök eöa
fyrirtæki leyfi til eins árs i til-
raunaskyni, en alls lágu fyrir
yfir 200 umsóknir um leyfi til
sliks reksturs.