Tíminn - 18.12.1981, Blaðsíða 10
10
Föstudagur 18. desember 1981
heimilistíminn
Umsjón: B.St. og K.L.
Frá Ástralíu til Grundarf jardar
ffFer á fætur fjórum
tímum fyrir birtinguF’
■ Nicola Newnham er
ung stúlka frá Ástraliu,
sem er að skoða heim-
inn, og vinnur fyrir sér
i leiðinni. Nú er hún
komin til islands og í
fiskvinnu i Grundar-
firði, og segir okkur frá
einum degi i sinu lifi
þar. Henni segist
þannig frá:
,,Hér er ég þá stödd — á
íslandi, sem enn er vist land
hinna lifandi, þó aö meiri hluti
þeirra sem viö sjáum hér í
frystihiísinu séu dauöir, þ.e.a.s.
dauöir þorskar!
Dagarnir renna saman og fátt
er til að aögreina þá, nema þá
helst hvernig sjónvarpið er
þetta eða hitt kvöldið, nú og ef
það er fimmtudagur, þá er ekk-
ert í sjónvarpinu. Ég býst við
þvi, að starfsfólk sjónvarpsins
þurfi sinn fritima eins og aðrir,
— en hvilik óþægindi og leiðindi
fyrir landsfólkið allt!
Þið munduð ekki trúa þvi
hvenærég fer á fætur á hverjum
morgni virka daga — fjórum
klukkutímum fyrir birtingu!
Þið skuluð taka eftir þvi, að ég
segi: fer á fætur, en ég vakna
eiginlega ekki fyrr enþó nokkru
seinna.
Það er stundum allt aö þvi
hættulegur leiðangur að komast
á vinnustaðinn. Leiðin niður að
frystihúsi er meö svellbunkum
og sums staðar sekk ég í snjó
upp fyrir gúmmistigvél.
Klæðnaður okkar við fiskf lökun-
ina er ekki samkvæmt nýjustu
tiskunni i Paris, en hann er i
samræmi við starfið frekar en
tiskuna — siðar hvitar svuntur
og sætir litlir hattar við, og við
litum út með þá á höfðinu eins
og við séum komnar beint úr
kvikmyndinni „Gauks-
hreiörið”. Þið munið eftir öllu
skrýtna fólkinu þar.
íslenskukunnáttan
min:
Góðan daginn — Bless,
bless
Það er ös að komast inn á
vinnustað fyrir kl. 8, allir eru á
hlaupum. Ég reyni að komast
svolitið niður i islenskunni — en
enn þá kann ég litiö annað en
„góðan daginn”, semég segi við
samstarfsfólkið um leið og ég
kem inn. Þetta tungumál er
mjög erfitt, ég kann þessa
morgunkveðju og svo „bless,
bless”, og þar sem ég vil ekki
alltaf vera að heilsa eða kveðja,
þá er notkun min á islenskunni
mjög takmörkuð.
Frá því kl. 8 og til þess að
kemur að morgunteinu, er
manni tiðlitið á klukkuna,
þ.e.a.s. ef ég er þá svo heppin aö
snúa þannig við vinnuna að ég
geti séö til klukkunnar. Vinnan
er einhæf og langt frá þvi að
vera nokkuð skapandi, svo þá
notar maður imyndunarafliö til
að gera áætlanir um sumarfri,
velta fyrir sér hvað verði i mat-
inn í hádeginu, eða reikna út
hvað mikið hafi farið i siga-
rettukaup þessa vikuna.
Einhvern daginn setj-
um við lím á stól verk-
stjórans
t morguntetimanum náum við
þvíaö drekka te, boröa disk full-
an af brauði og kökum og
reykja eina eða tvær sigarettur,
— en þá heyrum við skröltið i
stól verkstjórans. Hann stendur
fyrstur upp og við eigum að fara
strax að vinna.Einhvern daginn
setjum viö sterkt lim, svo sem
„jötungrip” á stólinn hans.
Jæja.afturað vinna, flakað af
krafti og ekki litið upp. Þó ská-
skýturmaðuraugunum til að gá
hvort eftirlitsfólkið komi
nokkuð með illa flakaðan fisk til
baka. Það kemur fyrir að eftir-
litsmaður kemur, meö illgirnis-
legan glampa i' augum og færir
manni á „silfurfati” fiskstykki
með ormum eöa beini, sem
manni hefur séstyfir iflýtinum.
Nú vantar klukkuna fimm
minútur i 11 og það er kominn
timi til aö fá sér sigarettu, —
„smókpása”. Við sem erum aö
saf na fyrir sumarfrii reynum að
minnka kostnaöinn við
reykingarnar með þvi að rúlla
sjálfar sigaretturnar, en það er
ómögulegt f vinnunni, með
blautar hendur og með bundiö
um meidda fingur.
Nú vinnum við af krafti i
klukkuti'ma, og svo er ætt upp á
hótel, sem viö köllum „South-
fork”, eftir vel þekktum stað i
sjónvarpsdagskránni. A hótel-
inu fáum við einn heitan rétt og
kaffi, en það virðist sem við höf-
um rétt sest niður, þegar við
verðum að rjúka af staö aftur.
Spennandi þegar póst-
urinn kemur
Um eftirmiðdaginn virðist
vinnutiminn milli hvildar-
timanna vera miklu lengri —
ætli það hafi eitthvað aö gera
með hnattstöðuna á þessum
stað, svo langt fra miðjarðarlin-
unni. En hvað um það,
flakararnir halda áfram að
flaka, eftirlitsmenn halda á-
fram að lita eftirog vigtarmenn
að vigta og pökkunarfólk að
pakka.
í tetimanum biðum við að-
komufólkið spennt eftir þvi að
pósturinn komi, en það er vana-
lega á þessum tima dags. Allir
biða vongóðir eftir bréfi, og það
er ekki fyrr en siðasta bréfinu
hefur verið Utbýtt, að maður
gerirsérgrein fyrirþvi, að ekki
einu sinni mamma hefur skrifað
núna.
Við vonumst til að hætta um
fimmleytið og um hálffimm
dri'fum við okkur með nýjum
krafti að reyna að ljúka þvi sem
liggur fyrir, og vitneskjan um
það að enn einum vinnudegi er
að ljúka knýr okkur áfram.
Auðvitað er gott að fá stundum
aukavinnu, það munar um það i
vikukaupinu, — en stundum er
likaminn bara ekki of viljugur
að puða áfram.
íslenska brennivinið —
á að drekka það, eða
fægja silfrið með þvi?
Vinnuljósin eru slökkt og nú
hlaupum við heimað hótelinu til
að reyna aðkomast i sturtu áður
en heita vatnið er allt búið. Ekki
veitiraf að reyna að losa sig við
fisklyktina, sem loðir við allt.
Þá er farið i eldamennsku á
hitaplötu, en það verða aldrei
nein stór tilþrif í matreiðslu, en
bökuðu baunirnar hafa aldrei
smakkast jafn vel og áöur hér.
Þeir, sem ekki óska eftirað taka
þátt i þessari matargerðarlist,
fara aftur niður ífrystihús og fá
þar „fasta fæðið”, ósköp bláttá-
fram en saðsamt.
Eftir kvöldmatinn getum við
valið um margt til að skemmta
okkur við, — lesa skrifa, gera
ýmsa handavinnu (sem mæður
■ Það er þægilegt að vera stuttklippt, þá er maður fljótari
að þvo fisklyktina úr hárinu.
okkar myndu þó aldrei trúa)
vinna viö módelsmiði, fara i
heimsókn, drekka brennivin
(eða fægja silfriðmeð þvi) eða
— horfa á „Dallas”. En þrátt
fyrir allar þessar skemmtanir
(!) verður fiskvinnslukonan
fljótt þreytt og segir „bless,
bless !”og flýtir sér svo i rúmið
— og dreymir um fisk...
Dagur í lífi Nicola Newnham
Góðar æfingar til
styrktar fyrir arma
og brjóstvöðva
■ Þegar konur hafa haft barn á
brjósti vill það brenna við, að þær
veröi áhyggjufullar yfir þvi að
brjóstvöðvar hafi slappast og hiö
sama verðuroftuppiá teningnum
eftir strangan megrunarkúrs.Þá
er nauðsynlegt að gefá sér tima
til að taka smáleikfimi svona
annan hvorn dag, og ef þessar æf-
ingar eru gerðar samviskusam-
lega lætur árangur ekki standa á
sér. Æfingarnar eru númeraðar,
svo sjá má á myndinni hvernig
bera skal sig að við þær. Ekki er
nauðsynlegt að taka allar
æfingarnar i einu, heldur t.d.
þrjár i einu, eftir því hvernig
stendur á i það og þaö sinnið.
1) Takið gorm (eöa bolta) milli
handanna, sem eru i brjósthæð.
Svo á að þrýsta saman og slaka á
til skiptis, alls lOsinnum. Gotter
aö endurtaka æfinguna með
hendur yfir höfði sér og einnig
einu sinni epn með hendur fyrir
aftan bak.
2) Haldið höndum beint fram af
öxlum. Siðan á að gera „skæra-
æfingar” upp og niður til skiptis
með hendurnar. Látið armana
síga niður og endurtakiö æfing-
una með þvi að sveifla handleggj-
um fram og aftur.
3) Nú á að leggjast á stöðugt
borð, og hafa handlóð, eða eitt-
hvað álíka þungt i höndunum.
Handleggir eiga aö liggja fyrst
máttlausir niður af borðinu.
Lyftið þeim siöan hægt og kross-
leggið hendur á brjósti, en látiö
siðan armana siga aftur I
byrjunarstellingar. Þetta er
endurtekiö 10 sinnum.
4) Standa upprétt og teygja
handleggi út tú hliðar, en gera
siöan stórar hringhreyfingar,
bæði fram og aftur, nokkrum
sinnum.
5) Nú eiga armar enn að vera
teygðirút frá öxlum, en svo skal
beygja þá að brjósti, svo fingur-
gómarnir rétt mætist i brjósthæð.
Endurtekið 10 sinnum.
6) Takiö höndum utan um
framhandleggi, eins og myndin
sýnir. Halda skal þétt um hand-
leggina og gera átak eins og til að
ýta skinninu upp á við. Haldið
handleggjum i brjósthæð. Gotter
að horfa i spegil m eðan æfingin er
gerð, en þá sést vel hvernig
brjóstið lyftist. Ýtt er saman
nokkrum sinnum og slakaö á á
milli.
7) Liggið á hnjánum, með bil
milli hnjánna — eins og myndin
sýnir — Nú á aö þrýsta hökunni
niður að bringu og um leið lyfta
öðrum fæti fram og að höku.
Siðan á að teygja fótinn aftur og
lyfta höfðinu um leið upp. Þetta
er endurtekið 5 sinnum með
hvorn fót.
8) Standa skal og hafa bil milli
fótanna og handlóð á báöum
höndum. Fyrst skal standa upp-
rétt, en beygja sig niður með
hægrihönd en upp með þá vinstri,
og sveifla þannig til skiptis
nokkrum sinnum.
9) Nú á að liggja á bakinu og
lyfta örmum hægt upp, sveifla
þeim siðan út til hliðari gólfiö og
afur til baka sömu leið. Þetta er
gert rösklega 10 sinnum.