Tíminn - 18.12.1981, Síða 18
Kvikmyndir og leikhús
kvikmyndahornið
* 1,5;FÖ.«j-íÖ'í1
iFaye Dunaway í hlutverki Joan Crawford IMommie Dearest
Joan Crawford
rökkuð niður
Joan Crawford var ein af
stórstjörnum Hollywood. Þeg-
ar i lok þriöja áratugarins
varö hún heimsfræg, og lék i
hverri kvikmyndinni á fætur
annarri fyrir MGM-fyrirtækiö
i nær tvo áratugi. Þegar hún
var látin hætta hjá MGM
vegna þess, aö kvikmyndir
sem hún lék aöalhlutverk i
hættu aö skila hagnaöi og
flestir töldu hana tir leik i
kvik myndaheiminum, snéri
hún séraö Warner Bros og sló
þar i gegn, m.a. i „Mildred
Pierce”, sem veitti henni
Oscarsverðlaun. Hún hélt
áfram aö leika i kvikmyndum
ailt til ársins 1970, þá 64 ára aö
aldri.
Ferill hennar i kvikmynda-
heiminum er þvi’ svo sannar-
lega litrikur, en þaö er ekki sií
staðreynd sem gerö er að um-
talsefni i nýrri kvikmynd um
þessa merku leikkonu sem
frumsýnd var fyrir nokkrum
dögum i London. Sú mynd
heitir „Mommie Dearest” og
fjallar um vissa þætti i einka-
lifi Joan Crawford. Myndin er
auglýst meö slagorði, þar sem
þvi er haldiö fram að drama-
tiskasta hlutverkið, sem Joan
hafi leikið, hafi veriö hennar
eigið lif.
Joan Crawford, sem lést
áriö 1977, skrifaði endurminn-
ingar sinar og komu þær Ut i
tveimur bindum, hið fyrra
árið 1962 en hið siðara árið
1971. Kvikmyndin er hins veg-
ar ekki byggö á þessum
endurminningum heldurá bók
sem eitt af uppeldisbörnum
Joan Crawford — en hún 61
upp og ættleiddi fjögur böm,
Christina að nafni.skrifaði og
gaf Ut ári eftir andiát fóstur-
móður sinnar. Þessi bók bar
nafnið „Mommie Dearest”,
eöa „Elsku mamma”, en
þannig kenndi Joan henni að
ávarpa sig. Er skemmst frá
því að segja, að þessi bók er
þrungin af hatri i garð Joan
Crawford sem er lýst sem ill-
gjarnri fyllibyttu sem hafi
farið illa með þessa dóttur
sina.
Framleiðandi myndarinnar
er Frank Yablans, leikstjóri
Frank Perry, en Paramount
sér um dreifinguna. Fyrst og
fremst. er þetta þó mynd
bandarisku leikkonunnar
Faye Dunaway, sem fer með
hlutverk Joan Crawford.
Þegar ég sá myndina i
London á dögunum vakti
tvennt einkum athygli mina.
Annars vegarhversu vel hefur
tekist að farða Dunaway, sem
likist Joan Crawford ótrúlega
mikið. Hins vegar hversu
fjandsamleg myndin er i garð
þessarar miklu leikkonu, þótt
það þyrfti ef til vill ekki að
koma svo mjög á óvart, þegar
þess er gætt á hvaða bók
myndin er byggð.
Kvikmyndin hefst þegar
Joan Crawford er á hátindi
frægðar sinnar hjá MGM
kvi kmyndafy rirtækinu á
fjórða áratugnum. Hún hafði
þá þegar margreynt að eign-
ast barn en alltaf misst fóstur.
Þvi fór svo að hún ákvað að
taka fósturbarn, og var
Christina sú fyrsta. Siðar
bætti hún þremur börnum við
og er eitt þeirra sýnt i mynd-
inni en ekkert minnst á hin tvö
— þótt myndin endi eftir and-
lát Joan Crawford árið 1977.
Valin eru úr æfi Joan ýmis
atvik sem sýna hana i sem
verstu ljósi og þeir oft tengdir
atburðum á kvikmyndaferli
hennar, þegar hún varð fyrir
áföllum — svo sem eins og
þegar hún var nánast rekin Ur
MGM. Mun hér oft farið ansi
frjálslega með staðreyndir.
Mikið er gert úr ofsafengnum
reiðiköstum Joan Crawford:
eftirbrottreksturinn frá MGM
er hún t.d. látin klippa öll
blómin i garði sinum og
höggva þar niður tré i’ æðis-
kasti um miðja nótt. A öðrum
stað kemst hún aö þvi um
miðja nótt (drukkin), að dóttir
hennarhefur hengt eitthvað af
fötum sinum á herðatré úrvir
og tekur þá annað æðiskast og
lemur dóttur sina ótæpilega.
Mikið er gert úr hreinlætisæði
Joan Crawford og áhersla lögð
á harkalegar tilraunir hennar
til að fá Christinu til að láta að
vilja sinum. Eitt langdregið
atriöi af þvitagi er, þegar hUn
reynir að fá dótturina til að
borða léttsteikt kjöt sem henni
býður við.
1 þessari mynd er Joan
Crawford lýst meö mjög öfga-
kenndum hætti og nánast
hvergi litið á jákvæðar hliðar
hennar: hún er sjálfselsk,
eitilhörð, drottnunarsjúk,
drykkfeld og stundum illgjörn
skapofsamanneskja. Minn-
ingu hennar er þvi litill sómi
sýndur meö „Mommie
Dearest”, og vandséð hvaða
tilgangi myndin þjónar öðrum
en að græða peninga á þvi að
ófrægja látna kvikmynda-
stjörnu. 1 hugum ýmissa er
það vafalaust nægilegt mark-
mið kvikmyndageröar.
Ellas Snæland
Jónsson
skrifar
Stjörnugjöf Tfmans
* * * * frábær ■ * * * mjög göð ■ * * góð ■ * sæmileg ■ O léleg