Fréttablaðið - 20.04.2008, Page 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 512 500020. apríl 2008 — 107. tölublað — 8. árgangur
Nóatúni 4 · Sími 520 3000
www.sminor.is
Tæki færi Bæklingurfylgir meðblaðinu í dag
Opið 13-18 í dag
LOKADAGUR!
ALLA SUNNUDAGA
SÍÐUR
8
Dekurdagar í Dubai
og golfferð til Spánar
Guðlaug Elísabet Ólafsdóttir telur að það yrði draum-
ur að fara til Dubai með Heru Björk en Sigfús Sigurðs-
son langar í golfferð með Svala og Gassa.
16
[ SÉRBLAÐ F
RÉTTABLAÐS
INS UM MEN
NINGU OG L
ISTIR ]menning
apríl 2008 12 TÓNAR
Tveir menn
eru að hor
fa á Manch
ester Unite
d á bar og
í hálf-
leik ákveða
þeir að kýl
a á það og
láta gamlan
draum ræt
ast:
Stofna plöt
ubúð
tíu ára
FYLGIR Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
ÍSLENSK
SKÖPUNARGLEÐI
Lokasýning fata-
hönnunarnema
í Listaháskóla
Íslands lofar góðu.
18
ÁFRAM HÆGVIÐRI Í dag verður
austan 5-8 m/s allra syðst, annars
hægviðri. Léttskýjað norðan til og
austan, annars skýjað með köflum.
Hiti 5-12 stig að deginum.
VEÐUR 4
7 9
9
7
7
SKOÐANAKÖNNUN 67,8 prósent
segjast nú vilja að ríkisstjórnin
hefji undirbúning aðildarum-
sóknar að Evrópusambandinu,
samkvæmt nýrri skoðanakönn-
un Fréttablaðsins. Stuðningurinn
er mestur meðal kjósenda Sam-
fylkingar, 87,2 prósent, en minnst-
ur meðal kjósenda Frjálslynda
flokksins, 42,9 prósent.
Umsókn í Evrópusambandið
hefur ekki verið á dagskrá ríkis-
stjórnarinnar og á aðalfundi Sam-
taka atvinnulífsins á föstudag
sagði Geir H. Haarde að innganga
í Evrópusambandið væri lakari
kostur en að standa utan sam-
bandsins.
Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórn-
ar Sjálfstæðisflokks og Samfylk-
ingar kemur fram að skýrsla
Evrópunefndar verði grundvöllur
ákvörðunar um það hvernig hags-
munum Íslendinga verði helst
borgið. Þeirri nefnd sé þó ekki
ætlað að taka afstöðu til þess
hvort Ísland eigi að sækja um
aðild að Evrópusambandinu. Hins
vegar kemur fram í stefnuyfir-
lýsingunni að koma eigi á fót sam-
ráðsvettvangi stjórnmálaflokk-
anna, þar sem fylgjast á með
þróun mála í Evrópu og nefndin
„leggi mat á breytingar út frá
hagsmunum Íslendinga“. Sú
nefnd fundaði í fyrsta sinn í
byrjun þessa mánaðar.
Enginn munur er á afstöðu svar-
enda könnunarinnar eftir kyni og
mjög lítill munur eftir búsetu.
Þannig segjast 69,5 prósent svar-
enda á höfuðborgarsvæðinu vilja
að undirbúningur hefjist, en 65,1
prósent íbúa á landsbyggðinni.
Munur eftir búsetu er ekki mark-
tækur.
Í febrúar spurði Fréttablaðið
hvort Ísland ætti að sækja um
aðild að Evrópusambandinu. Þá
svaraði 55,1 prósent svarenda
spurningunni játandi og hafði
stuðningur við Evrópusambands-
aðild aldrei mælst meiri í könnun-
um Fréttablaðsins. Þar sem spurn-
ingin sem borin er upp nú er ekki
hin sama, eru niðurstöðurnar ekki
alveg samanburðarhæfar, en leiða
má að því líkur að stuðningur við
umsókn í Evrópusambandið fari
vaxandi.
Fulltrúar stjórnmálaflokkanna
á þingi segja niðurstöðuna vera í
takt við efnahagsumræðuna nú.
Formenn stjórnarandstöðunnar
segja niðurstöðuna sýna vantrú
almennings á efnahagsstjórn
ríkisstjórnarinnar. - ss/ sjá síðu 4
Vilja undirbúa ESB-umsókn
Mikill meirihluti vill að ríkisstjórnin hefji undirbúning að því að sækja um aðild að Evrópusambandinu.
Stuðningurinn er mestur meðal kjósenda Samfylkingar og þeirra sem ekki gefa upp stuðning við flokk.
Á RÍKISSTJÓRNIN AÐ
HEFJA UNDIRBÚNING AÐ
AÐILDARVIÐRÆÐUM VIÐ
EVRÓPUSAMBANDIÐ?
SKV. SKOÐANAKÖNNUN FRÉTTABLAÐSINS 19. APRÍL 2008
JÁ
67,8%
NEI
32,2%
SKIPULAGSMÁL „Ég er sáttur við
niðurstöðuna,“ segir Kári Sturlu-
son tónleikahaldari en sam-
kvæmt deiliskipulagi stendur til
að grafa tónlistarsal Nasa í jörðu
niður.
Mikil ólga greip um sig meðal
tónlistarmanna fyrir tveimur
mánuðum þegar spurðist að rífa
ætti Nasa við Austurvöll en tón-
leikahaldarar líta á staðinn sem
sitt helsta athvarf. Teikningar
Björns Ólafssonar arkitekts gera
ráð fyrir því að salurinn verði
endurbyggður á sama stað nema
að hann verði færður í jörðu
niður. Tónlistarmenn telja þá
hugmynd ásættanlega.
Ekki liggur fyrir hvenær fram-
kvæmdir þessar hefjast. Það
verður þó tæpast á þessu ári.
- jbg / sjá síðu 30
Kári Sturluson fagnar því að tónleikahaldi sé borgið í miðborg Reykjavíkur:
Nasa grafið í jörðu niður
NASA Tónlistarmenn fagna hugmyndinni
um neðanjarðarstað. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
EFNAHAGSMÁL Seðlabankinn
ofmat verulega skuldastöðu
þjóðarbúsins á
hagvaxtarskeið-
inu 2003 til
2007, segir
Vilhjálmur
Egilsson,
framkvæmda-
stjóri Samtaka
atvinnulífsins.
„Opinberar
hagtölur hafa
gefið til kynna
að við værum með nettóskuldir í
120 prósent í mínus af landsfram-
leiðslu í lok þriðja ársfjórðungs í
fyrra.“
Þegar Seðlabankinn hafi farið
að skoða útreikninga sína hafi
komið í ljós að nettóskuldirnar
hafi numið 27 prósentum af lands-
framleiðslu á árabilinu, ekki 120
prósentum eins og hagtölur sýni.
Seðlabankinn eigi að viðurkenna
að hann hafi birt rangar tölur.
- bj / sjá síðu 14
Vilhjálmur Egilsson hjá SA:
Seðlabankinn
viðurkenni villu
NÁÐI ÁTTA METRA HÆÐ Það var heldur óvenjulegt farartæki sem Óli Þór Harðarson dró aftan í sæþotu við smábátahöfn Snarfara
í gær. Tækið er blanda af svifdreka og gúmmíblöðru, og getur stokkið upp í nokkurra metra hæð. „Þetta er náttúrlega geðveiki,“
segir Óli. Hann segir að Ólafur Haukur Hansen, sem var í sleðanum, hafi mest náð um átta metra hæð í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
VILHJÁLMUR
EGILSSON