Fréttablaðið - 20.04.2008, Blaðsíða 6
6 20. apríl 2008 SUNNUDAGUR
Eldri borgarar 60+
Byrjendur
30 kennslustunda byrjenda-
námskei›. Engin undirsta›a
nau›synleg, hæg yfirfer› me›
reglulegum endurtekningum í
umsjá flolinmó›ra kennara.
A›almarkmi› námskei›sins er
a› gera flátttakendur færa a›
nota tölvuna sjálfstætt, m.a. til
a› skrifa texta og prenta, nota
Interneti› sér til gagns og
gamans, taka á móti og senda
tölvupóst.
Kennsla hefst 28. apríl og lýkur 21. maí
Kennt er mánudaga og miðvikudaga kl. 13 - 16
Ver› kr. 20.500,- Vegleg kennslubók innifalin.
Framhald I
30 kennslustundir. Hentar fleim sem loki› hafa byrjendanámskei›inu
e›a hafa sambærilega undirstö›u.
Byrja› er á upprifjun á›ur en haldi› er lengra í ritvinnslu í Word.
Framhaldsæfingar á Internetinu og í allri me›fer› tölvupósts.
Kennsla hefst 29. apríl og lýkur 22. maí.
Kennt er þriðjudaga og fimmtudaga kl. 13 - 16
Ver› kr. 20.500,- Vegleg kennslubók innifalin.
FAXAFEN 10
108 REYKJAVÍK
GLERÁRGATA 36
600 AKUREYRI
WWW.TSK.IS
SKOLI@TSK.IS
SÍMI: 544 2210
BANDARÍKIN, AP „Ég held að við
höfum sett nýtt met vegna þess
að það tók okkur 45 mínútur áður
en við byrjuðum að ræða um þau
mál sem skipta almenning máli,“
sagði Barack Obama, sem hefur
gagnrýnt ABC-sjónvarpsstöðina
fyrir ómálefnalegar spurningar í
kappræðum hans við Hillary
Clinton á miðvikudagskvöld.
Stjórnendur kappræðnanna
beindu athyglinni að nokkrum
mismælum og mistökum, sem
þeim Obama og Clinton, en þó
einkum Obama, hefur orðið á í
kosningabaráttunni upp á síð-
kastið.
Þau áttu bæði fullt í fangi með
að svara fyrir sig, og Obama
kvartaði undan því að athyglinni
væri beint að aukaatriðum, og
skaut í leiðinni á Clinton fyrir að
notfæra sér þetta pólitíska and-
rúmsloft til að „snúa hnífnum
aðeins í sárinu“.
Stjórnendur kappræðnanna
svara hins vegar fullum hálsi og
segja ekkert rangt við spurning-
arnar.
„Spurningarnar voru erfiðar,
sanngjarnar, viðeigandi og mikil-
vægar,“ sagði George Stephan-
opolous, einn stjórnendanna.
„Við vildum fyrst beina athygl-
inni að þeim málum sem athyglin
hefur ekki beinst að í síðustu
kappræðum.“
Skoðanakannanir staðfesta að
Repúblikaninn John McCain
eykur fylgi sitt meðan þau Clin-
ton og Obama skjóta skotum
hvort á annað. Samkvæmt nýrri
könnun bandarísku fréttastof-
unnar Associated Press þykir
Obama þó eiga meiri möguleika
en Clinton í forsetakosningum
gegn McCain.
Þetta kemur sér sérstaklega
illa fyrir Clinton, því til að saxa á
það forskot sem Obama hefur í
prófkjörum flokksins þarf hún
fyrst og fremst að sannfæra
„ofurfulltrúa“ flokksins um að
hún eigi, þegar til kastanna
kemur, betri möguleika en
Obama um að vinna sigur á
McCain.
Ofurfulltrúarnir svonefndu
eru þingmenn og aðrir helstu
leiðtogar flokksins, sem ganga
óbundnir til atkvæða á flokks-
þinginu í lok ágúst, þegar endan-
lega verður tekin afstaða til þess
hvort Obama eða Clinton verður
forsetaefni flokksins í nóvem-
berkosningunum.
Síðasta stóra prófkjörið verð-
ur haldið í Pennsylvaníu næst-
komandi þriðjudag. Nú er svo
komið að Clinton þarf að vinna
harla stóran sigur þar til að geta
réttlætt fyrir flokksfélögum
sínum framhald kosningabaráttu
sinnar.
gudsteinn@frettabladid.is
Styttist í úrslitaátök
Bandaríska sjónvarpsstöðin ABC sætir gagnrýni fyrir að ráðast gegn Barack
Obama í kappræðum hans við Hillary Clinton sem fram fóru í liðinni viku.
Kjósendur telja hann þó eiga meiri möguleika en Clinton gegn John McCain.
CLINTON OG OBAMA Myndin er tekin
þegar þau mættu til kappræðna í sjón-
varpi á miðvikudagskvöldið.
NORDICPHOTOS/AFP
STJÓRNMÁL Opinn borgarafundur í Reykjanesbæ
skorar á forsætisráðherra að leysa deilur um
lögreglustjóraembættið á Suðurnesjum.
Þingmenn Framsóknarflokksins í Suðurkjör-
dæmi stóðu fyrir fundinum. Í ályktun fundarins
segir að „ekki sé skynsamlegt að hrapa að breyt-
ingum og uppstokkun á embættinu því sameinað
lögreglu- og tollstjóraembætti hefur náð miklum
árangri“.
Guðni Ágústsson segir augljóst að málið sé
komið í hnút og á hann þurfi að höggva. Málið sé
nú komið í þá stöðu að dómsmálaráðherra sé
opinberlega farinn að deila á embættið, sem ekki
gangi upp.
Guðni segir miklar tilfinningar vera í málinu og
farið sé að reyna mjög á starfsfólkið. Hann segir
Björn Bjarnason dómsmálaráðherra kominn á villi-
götur og ekki ráða við að koma málinu í gegnum
þingið. „Það botnar enginn í því um hvað deilan
snýst. Embættið hefur sýnt hvað í því býr eftir
sameininguna. Ríkisendurskoðandi hefur staðfest í
sínum úttektum að það vantar fé inn í embættið.
Fulltrúar embættisins segja það vera um 200
milljónir. Væri því skipt upp liggur fyrir að ríkið
þyrfti að blæða 400 til 500 milljónum í embættin
þrjú.
Þetta er farið að verða eins og klöppin óbilgjarna
og komin mikil þreyta og angist í starfsfólkið.
Forsætisráðherra verður að leysa málið.“ - kóp
Formaður Framsóknar um löggæslumál á Suðurnesjum:
Segir deiluna persónulega
ÁKALLAR GEIR Fundur Framsóknarflokksins hvatti Geir H.
Haarde til að leysa deilur um löggæslumál á Suðurnesjum.
FRÉTTABLAÐIÐ/VÍKURFRÉTTIR
© GRAPHIC NEWS
Barack Obama 1.643
Hillary Clinton 1.504
1 Pennsylvania, 22. apríl
2 Gvam, 3. maí
3 Indiana, 6. maí
4 Norður-Karólína, 6. maí
5 Vestur-Virginía, 13. maí
6 Kentucky, 20. maí
7 Oregon, 20. maí
8 Púertó Ríkó, 1. júní
9 Montana, 3. júní
10 Suður-Dakota, 3. júní
Prófkjörum til forsetaframboðs bandarísku
stjórnmálaflokkanna lýkur ekki fyrr en 3. júní.
Enn eru tíu prófkjör eftir. Hillary Clinton þarf
að vinna afgerandi sigur í næsta prófkjöri, sem
verður í Pennsylvaníu í næstu viku, til þess að
sannfæra óbundna kjörmenn. Þeir ráða á endan-
um úrslitum á flokksþingi Demókrataflokksins í lok ágúst um hvort
hún eigi enn möguleika gegn Barack Obama.
Kapphlaupið að ná hámarki
Fjöldi öruggra atkvæða* Fjöldi atkvæða sem þarf til sigurs: 2.025
*Samkvæmt talningu fréttastofunnar AP Myndir: AP
Á Orkuveita Reykjavíkur að
selja Reykjavik Energy Invest?
Já 36,5%
Nei 63,5%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Styður þú framboð Íslands
til Öryggisráðs Sameinuðu
þjóðanna?
Segðu þína skoðun á visir.is
STJÓRNMÁL Á meðan borgarfull-
trúar mynda ekki meirihluta um
að sigla Orkuveitu Reykjavíkur
út úr villu vegna mála Reykjavik
Energy Invest (REI) er haldið
áfram á ógæfubraut fyrir sjálf-
stæðismenn og aðra í borgar-
stjórn. Þetta skrifar Björn Bjarna-
son dómsmálaráðherra á vef
sinn.
Eðlilegt er að litið sé til borgar-
fulltrúa Sjálfstæðisflokksins um
að hafa forystu um að leysa úr
vandanum, með hagsmuni borg-
arbúa að leiðarljósi, skrifar
Björn. Sjálfstæðismenn skorti þó
afl til að standa einir að málinu,
og hafi ekki „borið gæfu til þess
að halda á málinu á nægilega
traustvekjandi hátt“.
„Lausnin er ekki á færi neins
eins flokks í borgarstjórn. Á
meðan borgarfulltrúar bera ekki
gæfu til að mynda neinn meiri-
hluta um að sigla OR úr þessari
villu er haldið áfram á ógæfu-
braut fyrir sjálfstæðismenn og
alla aðra í borgarstjórn,“ skrifar
Björn.
Hann minnir á sín fyrri skrif
um að „slík leyndarhyggja sé inn-
byggð í stjórnarhætti Orkuveitu
Reykjavíkur, að borin von sé að
óbreyttu, að tekið sé á málefnum
fyrirtækisins eða undirfyrir-
tækja þess á þann veg, að sæmi
fyrirtæki í opinberri eign“.
Björn segir vandann allra
flokka í borgarstjórn. Fyrrver-
andi meirihluti fjögurra flokka
hafi skotið sér undan málinu með
„þagnarbindindi“ á meðan málið
hafi verið til skoðunar. Skoðunin
hafi ekki leitt til neinnar niður-
stöðu. - bj
Björn Bjarnason dómsmálaráðherra um REI og borgarstjórnarsamstarfið:
Áfram haldið á ógæfubraut
BJÖRN BJARNASON
Segir sjálfstæðis-
menn skorta afl til
að standa einir að
málefnum REI.
NEW YORK, AP Fréttamaðurinn
Richard Quest, sem fjallar á
hressilegan hátt um viðskipta-
ferðalög á sjónvarpsstöðinni
CNN, var handtekinn í Central
Park í New York með fíkniefni í
fórum sínum.
Hann hefur samþykkt að fara í
vímuefnameðferð og sleppur því
við fangelsisvist. Quest, sem er
46 ára Breti, var handtekinn um
miðja nótt með lítið magn
methamfetamíns sem talið er að
hann hafi sjálfur ætlað að neyta.
Hann var einnig ákærður fyrir að
ganga um í Central Park að kvöldi
dags en þá er garðurinn lokaður.
- fb
Fréttamaður CNN handtekinn:
Með fíkniefni í
Central Park
KJÖRKASSINN