Fréttablaðið - 21.04.2008, Blaðsíða 56
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
BAKÞANKAR
Þráins
Bertelssonar
Í dag er mánudagurinn 21. apríl,
111. dagur ársins.
5.34 13.26 21.21
5.09 13.11 21.15
Mikil opinber umræða getur verið óheppileg, skapað
óraunhæfar væntingar og þar með
haft neikvæð áhrif.“ Geir H. Haar-
de, formaður Flokksins og forsæt-
isráðherra Íslands, á fundi með
Samtökum atvinnulífsins 18. apríl
2008.
ÞESSI „sakleysislegu“ viðvörun-
arorð benda ótvírætt til þess að
það hafi farið fram hjá þessum
forsætisráðherra sem vill sveipa
aðgerða- og ráðleysi sitt dulúð, að
vestrænt lýðræði og stjórnarskrár
allra lýðræðisríkja byggja á einum
og sama hornsteini: Sá hornsteinn
sem öll hin sameiginlega velferð
okkar byggist á heitir TJÁNING-
ARFRELSI. Opinber umræða
getur vissulega verið óheppileg,
jafnvel banvæn, fyrir óhæf stjórn-
völd en hún er undirstaða velferð-
ar almennings. Á því grundvallar-
atriði að það sé best fyrir heildina
að allir hafi óheftan rétt til að tjá
sig hvílir þjóðfélagsgerð okkar.
Allt annað í stjórnarskrá okkar
leiðir af þessu atriði.
ÞAÐ er ógnvekjandi tilhugsun að
skilningur á því sem stjórnarskrá
lýðveldisins byggist á skuli ekki
hafa náð inn í höfuðkúpuna á þess-
um forsætisráðherra – heldur.
Fyrirrennari hans sem nú er seðla-
bankastjóri – ekki í Simbabve
heldur á Íslandi – vildi setja forn-
aldarlög um fjölmiðla svo að þeir
trufluðu ekki „stjórnvöld“ í sinni
djúpu hugleiðslu um hagsmuna-
gæslu og samtryggingu útvalinna.
Þessi vill ganga feti framar og
biðst undan hinum neikvæðu
áhrifum sem kunna að vera fylgi-
fiskur mikillar og líflegrar opin-
berrar umræðu.
ÉG held að þetta sé skuggalegasta
yfirlýsing sem ég hef séð koma
frá íslenskum stjórnmálamanni á
síðustu áratugum. Þó hef ég fylgst
með fjölmiðlafrumvarpi, upp-
byggingu greiningardeilda og
stofnun sérsveita. Ég hef heyrt og
séð menn réttlæta fasískar lög-
regluaðgerðir gegn kínverska
andófs- og heilsuræktarhópnum
Falun Gong. Og síðast en ekki síst
hef ég ásamt með þjóðinni fylgst
með hinum þrákelknislegu yfir-
lýsingum varaformanns Flokksins
um að hún ætli „víst og samt“ á
Ólympíuleikana í Peking hvað sem
tautar og raular og hvað sem líður
Tíbet, lýðræði og mannréttindum
– sem hún segist vera búin að ræða
nægilega oft við Kínverja.
ÞEKKIR valdhrokinn engin tak-
mörk lengur? Hvað er eiginlega í
gangi hérna?
Óheppileg
umræða!