Fréttablaðið - 23.04.2008, Blaðsíða 19
MARKAÐURINN MIÐVIKUDAGUR 23. APRÍL 2008
S P Á K A U P M A Ð U R I N N
Maður verður eitthvað svo hrika-
lega svartsýnn að umgangast ís-
lenska fjárfesta þessa dagana;
óðaverðbólga, útlánastopp, gjald-
þrot og ákall um efnahags aðgerðir
ríkisstjórnarinnar eru frasar sem
maður var eiginlega bara búinn
að gleyma.
Sjálfur er maður auðvitað orð-
inn svo international að smávegis
lægð á heimamarkaði slær mann
ekki út af laginu. Ég er að byggja
í Skotlandi og þar vildu bankarn-
ir allt fyrir mig gera, en banka-
stjórinn minn hér á Íslandi svar-
ar ekki einu sinni skilaboðum þótt
ég sé með pottþétt keis í höndun-
um. Ég heyrði á barnum um dag-
inn að amma hans fengi ekki einu
sinni bankalán þessa dagana. Það
er allt stopp.
Ég kíkti á ársfund Samtakanna
á föstudaginn og þar voru Bjöggi
og Kjartan í góðu formi, mér
sýndist þeir útsofnir og slakir.
En svo voru þarna einhverjir úr
byggingabransanum sem töluðu
bara um Evrópu og supu hveljur
yfir því að forsætisráðherrann
hefði ekki komið með einhver út-
spil á fundinum. Bara einhver út-
spil, sögðu þeir nánast óðamála.
Sjálfur er ég spenntastur yfir
uppgjörunum sem eru væntanleg
á næstunni, mér heyrist að bank-
arnir komi betur út en margir ótt-
uðust – kannski að krónan gamla
spili þar einhverja rullu.
Og svo eru það blessuð matsfyr-
irtækin. Hver er eiginlega alltaf
að spyrja þau álits? Ég man þegar
Bjarni Ármanns var svo stolt-
ur yfir því að Standard og Poor‘s
hefðu metið Glitni, en nú er það
bara bölvað vesen og Glitnir er
nú barinn oftar í hausinn en hinir
bankarnir! Fitch á leiðinni, ör-
ugglega með sama svartagalls-
rausið, og Moody‘s búinn að fara
í svo marga hringi að enginn
tekur lengur almennilegt mark á
honum.
Félagi minn hringdi alveg óður í
gær frá Danmörku. Hann sagði að
þar hefði allt verið að róast yfir
vondum fréttum frá Íslandi þegar
Eiríkur seðlabankastjóri hefði
ákveðið að spjalla um daginn og
veginn við Börsen með þeim af-
leiðingum að allir fóru á taugum!
Solla var búin að segja öllum að
ríkið myndi bakka upp bankana,
en Eiríkur sagði að Seðlabankinn
myndi varla ráða við alvöru fjár-
málakreppu.
Ég sé að núna er Eiríkur á yfir-
tíð að bera þetta til baka hér
heima; segist hafa verið að tala í
viðtengingarhætti. Halló! Á þetta
að róa markaðinn?
Mér finnst sjálfum Eiríkur
miklu betri á íslensku en dönsku.
Spákaupmaðurinn á horninu.
Spennan magnast
sk
v.
k
ön
nu
n
Ca
pa
ce
nt
1
. n
óv
. 2
00
7–
31
. j
an
. 2
00
8
20–45 ára
29,1%
18,7%
M
ar
ka
ðu
rin
n
V
ið
sk
ip
ti
–
M
or
gu
nb
la
ði
ð
25–49 ára
33,0%
22,6%
M
ar
ka
ðu
rin
n
V
ið
sk
ip
ti
–
M
or
gu
nb
la
ði
ð
Við stöndum upp úr
Markaðurinn, viðskiptablað Fréttablaðsins,
er með 55% meiri lestur en Viðskiptablað
Morgunblaðsins miðað við 20–45 ára en
46% meiri lestur miðað við 25–49 ára. Viðskiptafréttir... ...alla daga
Stjórn Íbúðalánasjóðs ákvað í tilefni af hálfrar aldar afmæli húsnæðis-
lána hér á landi að veita háskólanemum styrki til rannsókna á sviði
húsnæðismála í þrjú ár. Þessir styrkir nema samtals 2.500.000 kr.
árlega og eru síðustu styrkirnir veittir á þessu ári.
Val á þeim verkefnum sem hljóta styrki byggist á því að þau nýtist
starfsemi Íbúðalánasjóðs.
Nánari upplýsingar er að finna á www.ils.is og hjá Þórdísi B.
Sigurþórsdóttur í síma 569 6900 eða með tölvupósti thordisb@ils.is
Umsóknarfrestur er til 30. apríl 2008
Íbúðalánasjóður auglýsir til umsóknar lán og styrki til tækninýjunga
og umbóta í byggingariðnaði. Lán eða styrki má veita einstaklingum,
fyrirtækjum og stofnunum sem vinna að þróun tæknilegra aðferða og
nýjunga sem leitt geta til lækkunar á byggingarkostnaði og viðhaldi
íbúðarhúsnæðis, styttri byggingartíma eða stuðlað með öðrum hætti
að aukinni hagkvæmni í byggingariðnaði.
Umsóknum um lán eða styrki skal skila til Íbúðalánasjóðs á sérstöku
eyðublaði eða rafrænt á www.ils.is
Nánari upplýsingar veitir Einar Örn Stefánsson hjá Íbúðalánasjóði
í síma 569 6900 og með tölvupósti einarorn@ils.is
Umsóknarfrestur er til 30. apríl 2008
Íbúðalánasjóður skal samkvæmt lögum stuðla að tækninýjungum og
umbótum í byggingariðnaði, m.a. með því að veita lán eða styrki.
Munið
umsóknarfrestinn
30. apríl 2008