Tíminn - 02.02.1982, Side 1
Hudson árgerd 1937 gerdur upp — sjá bls. 12-13
TRAUST OG
FJÖLBREYTT
FRÉTT ABLAÐI
Þriöjudagur 2 febrúar 1982
24. tölublað — 66. árg.
Skjáfylli
fródleiks
— bls. 9
Fjölmidlun:
Haukarnir
og Haig
— bls. 7
Ólafur
tekinn tali
— bis. io-n
Svar Alusuisse til ríkisstjórnarinnar:
NEITA AÐ RÆÐA END-
URSKODUN A SAMNINGI
— fyrr en deilumál aðila hafa verið leyst
■ ,,Ég verð að segja að þetta
eru allt önnur svör en ég hafði
reiknað með i ljósi þess sem
fram kom á siðasta viðræðu-
fundi aðila i desember. Eftir
þann fund töldu menn ástæðu til
að ætla að Alusuisse féllist á að
taka upp samninga, gegn þvi að
ágreiningsefni aðila yrðu látin
biða, meðan farið yrði yfir
möguleika á að ná samkomu-
lagi,” sagði Hjörleifur Gutt-
ormsson, iðnaðarráðherra,
þegar Timinn innti hann eftir á-
liti hans á svörum Alusuisse við
óskum um endurskoðun á aðal-
samningi og fylgisamningum
um álverið i Straumsvik, en
tveir yfirmenn fyrirtækisins
báru stjórnvöldum svör þess nú
i gær.
I svari Alusuisse kemur fram
að fyrirtækið telur sig ekki
reiðubúiö til raunhæfra við-
ræðna um breytingar á
samningi, fyrr en deilumál aðila
vegna viðskipta Alusuisse við
ISAL á undanförnum árum hafa
verið leyst.
Rikisstjórnin geröi samþykkt
varðandi þetta mál þann 9. des-
ember 1980 og itrekaöi hana 16.
júli 1981. Eftir viðræöufundi
Islands og Alusuisse 3. og 4. des-
ember sl. urðu aöilar ásáttir um
að leggja skoðanaágreining
varöandi túlkun á ákvæðum
samninganna i sambandi viö
verðlagningu á hráefnum til
hliðar i bili og kanna leiðir til á-
framhaldandi samstarfs. Hét
Alusuisse svari viö tilmælum
rikisstjórnarinnar fyrir 15.
janúar, en fékk siöar frest til 1.
febrúar samkvæmt sérstökum
tilmælum. Þaö vorp tveir yfir-
manna Alusuisse, þeir dr.
Mð'ller, stjórnarformaður og
Weibel framkvæmdastjóri, sem
fluttu islensku stjórnvöldum
þessi svör nú.
Iðnaðarráðherra kvaðst
mundu leggja svörin fyrir rikis-
. stjórnarfund nú i dag og kvaðst
þvi ekki vilja tjá sig strax um
hver viöbrögö islenskra stjórn-
valda yröu. ,,Ég minni þó á þá
stöðu sem nú er varöandi
samninga um raforkuveröið og
held að þjóðin átti sig á þvi aö
við slikt er ekki hægt aö búa,”
sagði hann. AM
■ ■
■ ,, Borgarf ógeti setti
lögbann á sýningu
myndarinnar meðan
verið var að sýna hana í
vídeókerfinu í stóru
blokkinni við Asparfell og
Æsufell," sagði Ingvi Þór
Thoroddsen, fram-
kvæmdastjóri Tónabíós
þegar Tíminn spurði
hann hvort rétt væri að
sýning hefði verið stöðv-
uð á myndinni „The Post-
man Always Rings
Twice," með Jack
Nicholson og fleirum, en
Tónabíó mun hefja
sýningar á myndinni
innan skamms .
,,Ég fékk pata af þvi að
myndin heföi veriö auglýst á
stigagangi umræddrar blokkar,
og þar sem ég vissi um ólög-
mæti þess fékk ég borgarfógeta
til að setja lögbann.
Framleiöendum myndar-
innar er óheimilt aö leigja hana
hingaö á videóspólum i þrjú ár
eftir að viö geröum við þá
samninga um sýningarréttinn á
henni. Enda er öllum ljóst hvert
tjón það gæti verið okkur ef þús-
undir manna væru búnir aö sjá
myndina.
Það var Videoleigan Laugar-
vegi 27 sem leigði spóluna til
sýningar á kerfinu sem rekið er
af ibúum blokkarinnar sjálfrar.
-Sjó.
■ Um helgina tókust samningar ikjaradeilu sjómanna á stóru togurunum og var samið um 14% hækk-
un á fastakaupi. 1 gær var þvi ekki eftir neinu að biða meö aö drifa sig um borð, og ekki veröur betur séö
en að minnsta kosti skipshundurinn á Karlsefni hafi veriö áfjáöur i aö komast á sjóinn aftur.
Timamynd: GE
Sjá nánar frétt á bls. 5.
Eld-
huginn
■