Tíminn - 11.02.1982, Qupperneq 1

Tíminn - 11.02.1982, Qupperneq 1
Skákskýrandi Tímans í dag: L. Alburt — bls. 4 TRAUST OG FJÖLBREYTT FRÉTT ABLAÐI Fimmtudagur 11. febrúar 1982 32. tölublað — 66. árg. Lista~ manna- laun - bis. 5 Osta- réttir — bls. 12 í Gúl- aginu - bls. 18 Heimilis- Tíminn: Ólga meðal kennara og prðfdómara á flugumferðarstjóranámskeiði: NEITA AÐ DÆMA ÚR- LAUSN EINS NEMANDA — segja hann hafa skilað inn fölsuðum prófgögnum ■ „Loftferðaeftirlitiö gat ekki farið yfir prófúrlausn þessa manns, þar eð kennararnir á flugumferðarstjóranámskeiðinu neituðu að leiðretta prófúrlausn hans og prófdómararnir sem eru til aðstoðar Loftf erðaeftirlitinu við að dæma prófúrlausnirnar að lokinni yfirferð kennaranna, neit- uðuþvi'að fara yfir þessa prófúr- lausn”, sagði Grétar Óskarsson framkvæmdastjóri Loftferða- eftirlitsins i samtali við Timann i gær, þegar hann var að þvi spurður hvort sú staða heföi kom- ið upp hjá Loftferðaeftirlitinu aö kennarar og prófdómarar á nám- skeiði fhigumferðarstjóra sem haldið varnýlega, hefðu neitað að fara yfir prófiirlausn eins nem- andans á þeim forsendum að hann hefði skilað inn fölsuðum prófgögnum, áður en hann settist á flugumferðarstjóranámskeiðið. Samkvæmtheimilduin Timans, þá skilaöi einn nemandinn á nám- skeiðinu inn afriti af stúdents- prófsskirteini, þar sem stddents- prófseinkunn i' ensku hafði verið breytt. Upprunalega einkunnin var D, en henni haföi verið breytt i B. Grétar sagði að prófi þessa til- tekna manns heföi ekki verið vis- að frá af hálfu Loftferðaeftirlits- ins heldur hefði ekki veriö hægt aö meta þaö þar sem prófdómar- ar og kennarar hefðu neitaö að fara yfir það samkvæmt fyrir- skipun Félags flugumferöar- stjóra. —AB ■ Þessi fjögur hús voru á faraldsf æti i gær úr Arbæjarhverfi út á Eiðsgranda, á vegum verktakafyrirtækis, er nú sækir á ný miö. Timamynd: Róbert. Neyslukönnun í sambandi vid nýjan vísitölugrundvöll: HLUTUR MATVÆLA LÆKK- AÐ UM RÚMAN ÞRIÐJUNG —Ad meðaltali einn bfll á hverja f jölskyldu ■ í neyslukönnun sem fram- kvæmd var 1978-79 til öflunar efniviðar I nýjan vísitölugrund- völl koma. fram mjög miklar breytingar á liðum svo sem mat- vöru, bílakostnaði og utanlands- feröum. Samkvæmt könnuninni hefur hlutfall matvöru I framfærslu- kostnaði lækkað um þriöjung eða úr um 32% samkvæmt gamla grunninum niður i 21% og jafn- framt reyndist þessi liður vega mjög svipaö á höfuðborgar- svæðinu og úti á landi. Bilaeign manna hefur aftur á móti vaxið um nær helming frá gamla grunninum þar sem 54% af fjöl- skyldum átti bil. Nú kemur einn bill á hverja fjölskyldu. Um 6% fjölskyldna áttu 2blla á árinu 1978 og um 5% engan bil. Röskur þriðjungur eða 36% af hjónum fóru i orlofsferðir til Ut- landa á árinu þar af nokkur hluti tvisvar auk þess sem um 12% karla fóru I aðrar utanlands- ferðir. Um helmingur orlofs- ferðanna var á sólarstrendur S- Evrópu. titgjöld vegna utan- landsferða reyndust að meðaltali 6.200 (á verðlagi i ágúst s.l.) sam- kvæmt könnuninni en þessi Ut- gjaldaliður er hverfandi lltill i gamla grunninum. Auk þess má bæta við að orlof s- ferðir til Utlanda voru meira en helmingi fátlðari I könnuninni hjá þátttakendum Uti á landi en á höfuöborgarsvæðinu. —HEI Sjá nánar bls. 3

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.